Skessuhorn - 19.06.2019, Qupperneq 6
MIÐVIKUDAGUR 19. jÚnÍ 20196
Fleiri vilja í HÍ
LANDIÐ: Háskóla Íslands
bárust nærri 5.600 umsókn-
ir um grunnám fyrir skólaár-
ið 2019-2020, sem er tæplega
13% fleiri umsóknir en í fyrra.
Umsóknarfjöldinn er umtals-
vert meiri en sem nemur fjölda
þeirra sem lýkur stúdentsprófi
í ár. Heildarfjöldi umsókna í
grunn- og framhaldsnám er
tæplega níu þúsund, þar af
eru um 1.200 umsóknir frá er-
lendum nemendum. Aðsókn
í kennaranám eykst töluvert
milli ára, eins og áður hefur
verið greint frá. Sömu sögu er
að segja um umsóknir um nám
í hjúkrunarfræði, sálfræði, til-
teknar verkfræðigreinar og
félagsráðgjöf. -kgk
Byggingavörur
seljast vel
LANDIÐ: Velta bygginga-
vöruverslana var 13,7% meiri
í maí síðastliðnum en í sama
mánuði í fyrra. Þá var hún
29.9% hærri í maí en í apríl.
Er aukin sala á bygginga-
vörum rakin til góðrar tíð-
ar. „Veðrið lék við bróðurpart
landsmanna í maí og virðast
margir hafa tekið forskot á
sæluna í útiverkunum,“ seg-
ir í tilkynningu frá Rannsókn-
arsetri verslunarinnar. Sumar-
ið er jafnan veltuhæsta árstíðin
í byggingavöruverslunu, bæði
vegna háanna í ýmsum fram-
kvæmdum en einnig vegna
árstíðarvara, svo sem garðá-
halda og grillvara. „Til þess
að útskýra frekar veltuaukn-
inguna í maí var haft samband
við kaupmenn í bygginga-
vöruverslunum. Tóku við-
mælendur undir þá skýringu
að veðrinu væri um að þakka.
Lítill munur væri á markaðs-
setningu borið saman við síð-
asta ár, ásamt því að ekki væri
um að ræða fleiri afsláttardaga
en venjulega. Ljóst væri á söl-
unni að margir hefðu uppfært
sláttuvélar og grill, ásamt því
að sinna viðhaldi utanhúss.“
-kgk
Geta keypt tölv-
ur við útskrift
HVALFJSV. Sveitarstjórn
Hvalfjarðarsveitar samþykkti
á síðasta fundi sínum breytt
verklag um notkun spjald-
tölva í Heiðarskóla, sem snýr
að endurnýjun tækjanna. jafn-
framt var samþykkt að veita
skólastjóra heimild til að selja
útskriftarnemum fjögurra ára
gömul tæki fyrir lágmarks-
gjald. Greiðslan verður inn-
heimt af skrifstofu sveitar-
félagsins og færist sem tekjur á
Heiðarskóla. Þær tekjur verði
nýttar til kaupa á aukabúnaði
sem tengist notkun tækjanna.
-kgk
Hjálmlaus
á bifhjóli
AKRANES: Ungur vegfar-
andi var stöðvaður hjálmlaus
á léttu bifhjóli á Kirkjubraut
á Akranesi þriðjudaginn 11.
júní. Hann var sendur heim
með hjólið, auk þess sem for-
eldrum hans var gert viðvart
og sent bréf með leiðbeining-
um um notkun léttra bifhjóla.
Lögregla minnir á að skylda er
að vera með hjálm þegar létt-
um bifhjólum er ekið. -kgk
Datt af mótor-
krosshjóli
AKRANES: Mótorkrossslys
varð á æfingasvæði Vélhjóla-
félags Akraness við Akra-
fjall síðdegis á sunnudaginn.
Ökumaður eins hjólsins féll
fram fyrir sig og fékk hjól-
ið ofan á sig. Hann kenndi
sér eymsla í handlegg og
var fluttur með sjúkrabíl á
sjúkrahúsið á Akranesi til að-
hlynningar.
-kgk
Laust barn í bíl
BORGARNES: Lögreglu
var tilkynnt um laust ung-
barn í bíl sem ekið var á Snæ-
fellsnesvegi í gegnum Borg-
arnes að morgni síðasta mið-
vikudags. Viðkomandi öku-
maður fannst ekki en lög-
regla lítur slíkt athæfi mjög
alvarlegum augum.
-kgk
Tilraun
til innbrots
AKRANES: Maður kom á
lögreglustöðina á Akranesi á
miðvikudaginn í síðustu viku
og tilkynnti að hugsanlega
hefði verið reynt að brjótast
inn á heimili hans á Garða-
braut. Skófar var á hurðinni
að íbúð hans þar sem reynt
hafði verið að sparka henni
upp. Maðurinn kvaðst ekki
vita hver hefði hugsanlega
verið þar að verki.
-kgk
Myndlistarmaðurinn Bjarni Skúli
Ketilsson, eða Baski eins og hann
er jafnan kallaður, er bæjarlista-
maður Akraness 2019. Tilkynnt var
um valið á hátíðardagskrá á Akra-
torgi á þjóðhátíðardaginn, venju
samkvæmt.
Baski er fæddur á Akranesi 5.
september 1966. Hann tók snemma
upp pensilinn og var farinn að tjá
sig með myndlist strax á barna-
skólaárum sínum. Sem unglingur
sótti hann námskeið hjá Bjarna Þór
og Hrönn Eggerts og lærði módel-
teikningu í Myndlista- og handíða-
skólanum. Árið 1987 hélt Baski til
noregs og nam leikmyndahönnun.
næstu árin sótti hann ýmis nám-
skeið þangað til hann hóf nám í
myndlistarakademíu AKI Aca-
demie voor beldende kunst í Ensc-
hede í Hollandi árið 1994. Þaðan
útskrifaðist hann með BA gráðu
fjórum árum síðar. „Frá þeim tíma
hefur Baski verið búsettur í Hol-
landi ásamt hollenskri eiginkonu
sinni og þremur börnum þeirra.
Síðar náði Baski sér í réttindi til
kennslu í myndlist í Zwolle í Hol-
landi og hefur jafnframt lokið námi
í viðgerðum og hreinsun eldri mál-
verka,“ sagði Valgarður Lyngdal
jónsson, forseti bæjarstjórnar Akra-
ness, á athöfninni.
Baski hefur haldið margar sýn-
ingar víða um Evrópu, hannað leik-
myndir, unnið að forvörslu og hald-
ið námskeið. „Þrátt fyrir að vera
búsettur erlendis hefur Baski hald-
ið tryggð við heimahagana og verið
ötull við að rifja upp gamlar minn-
ingar frá heimabænum Akranesi í
gegnum verk sín. Hann málar mik-
ið af eldri húsum, götum og íbúum
Akraness og heldur minningum um
mannlífið sem áður var á lífi. Þær
myndir hafa bæði varðveislu gildi
og vekja oftar en ekki upp bros og
hlýjar minningar samferðarmanna
sinna. Hann heimsækir Akranes á
hverju ári og heldur árlega mynd-
listanámskeið og sýningar,“ sagði
Valgarður.
kgk
Söluskálinn Ó.K. í Ólafsvík hefur
verið settur á sölu en um er að ræða
skyndibitastað sem hefur starfað
undir merkjum Orkunnar og sem
söluaðili fyrir Skeljung. Hjónin
Þórður Stefánsson og Ólína Krist-
jánsdóttir hafa átt og rekið skálann
frá upphafi. „Þetta eru komin upp
undir 25 ár í þessu,“ segir Þórður
þegar Skessuhorn heyrði í honum
hljóðið. Aðspurður segir hann ekki
standa til að loka skálanum ef hann
selst ekki innan ákveðins tíma. „Það
er engin ástæða til þess. Veltan er
góð og þessi skáli verður áfram op-
inn. Það er alltaf opið hér, fyrir utan
tvo daga á ár, jóladag og nýársdag,“
segir Þórður. Spurður hvers vegna
þau hafi sett skálann á sölu seg-
ir hann enga sérstaka ástæðu liggja
þar að baki. „Við höfum verið lengi
að, lengur en flestir aðrir held ég,
og okkur finnst þetta bara fínn tími.
Ég er samt viss um að það séu bjart-
ir tímar framundan í öllu sem varð-
ar ferðaþjónustu,“ segir Þórður.
arg
Bjarni Skúli Ketilsson, eða Baski eins og hann er jafnan kallaður, með blómvönd-
inn og viðurkenningarskjalið.
Baski er bæjarlistamaður Akraness
Söluskálinn Ó.K. settur á sölu