Skessuhorn - 19.06.2019, Qupperneq 8
MIÐVIKUDAGUR 19. jÚnÍ 20198
Boðið að skoða
starfsemina
STYKKISH: Kanadíska fyr-
irtækið Acadian Seaplants
hefur boðið fulltrúum Stykk-
ishólmsbæjar í heimsókn til
nova Scotia til að kynna sér
starfsemi fyrirtækisins, stefnu
þess í auðlindastjórnum,
rannsóknum og þróun. Bæj-
arráð Stykkishólmsbæjar sam-
þykkti á síðasta fundi sínum
að senda oddvita flokkanna í
bæjarstjórn ásamt bæjarstjóra
til nova Scotia. jafnframt
var bæjarstjóra falið að kanna
hvort Íslenska kalkþörunga-
félagið hefði áhuga á að kynna
starfsemi sína með sambæri-
legum hætti. Þessi tvö fyrir-
tæki hafa lýst yfir áhuga á að
uppbyggingu þörungavinnslu
í Stykkishólmi, eins og áður
hefur verið greint frá í Skessu-
horni. -kgk
Þrír deildu stóra
pottinum
LANDIÐ: Þrír heppnir lottó-
miðaeigendur skiptu með sér
sjöfalda lottópottinum sem
dreginn var út á laugardag-
inn. Fær hver og einn þeirra
rúmlega 34,5 milljónir króna.
Einn þeirra keypti miðann í
Olís í norðlingaholti en hinir
tveir á heimasíðu Lottó. Átta
deildu bónusvinningnum og
fær hver þeirra rúmlega 150
þúsund króna vinning. níu
miðaeigendur voru með fjór-
ar réttar tölur í jókernum.
Heildarfjöldi vinningshafa að
þessu sinni var 16.507.
-kgk
Stútur undir
stýri
VESTURLAND: Ökumað-
ur var stöðvaður á Skagabraut
á Akranesi þriðjudaginn 11.
júní, grunaður um ölvun við
akstur. Maðurinn var hand-
tekinn og gert að gefa blóð-
og þvagsýni. Málið er til rann-
sóknar. Tilkynnt var um hugs-
anlega ölvaðan ökumann sama
dag við Hyrnuna í Borgarnesi
en ökumaðurinn fannst ekki.
Ökumaður var stöðvaður á
Vesturlandsvegi við Bifröst
miðvikudaginn 12. júní, grun-
aður um akstur undir áhrifum
ávana- og fíkniefna. Maðurinn
var handtekinn. Efni fundust
við leit í bílnum og neysla hef-
ur verið staðfest.
-kgk
Brotist inn í bíla
AKRANES: Tveir grun-
samlegir menn í bláum úlp-
um með bláar húfur, sáust á
ferð í jörundarholti á Akra-
nesi miðvikudaginn 12. júní.
Sást til mannanna fara inn í
bíla. Lögregla kannaði málið
og fann mennina í felum við
tré nálægt golfvellinum. Ann-
ar þeirra náðist á hlaupum og
var færður í handjárn en hinn
komst undan. Sá sem náð-
ist neitaði sök en þegar ver-
ið var að færa þann sem náð-
ist í fangaklefa fannst hassmoli
á honum. Maðurinn viður-
kenndi að eiga efnið og verð-
ur kærður fyrir vörslu og með-
ferð ávana- og fíkniefna. Inn-
brotin í bílana eru hins vegar
enn til rannsóknar.
-kgk
Gúanó á götunni
AKRANES: Umferðaróhapp
varð á gatnamótum Akranes-
vegar og Akrafjallsvegar síðasta
miðvikudag. Ökumaður vöru-
bifreiðar tók full snarpa vinstri
beygju með þeim afleiðingum
að hleri á hlið bílsins opnaðist
og átta 300 lítra fiskikör féllu
út úr bílnum. Körin voru full
af laxaúrgangi sem ætlaður var
í bræðslu. Kallað var eftir að-
stoð vinnuvéla við að hreinsa
upp úrganginn. Að sögn lög-
reglu var töluverð lykt á vett-
vangi og ekki af betri gerðinni.
Sama dag varð árekstur á Inn-
nesvegi til móts við Grunda-
skóla. Engin slys urðu á fólki.
-kgk
Kannabislykt
lá í loftinu
AKRANES: Tilkynnt var um
kannabislykt í húsi á Akranesi
í liðinni viku. Lögregla fór
á stúfana, bankaði á dyrnar á
viðkomandi heimili og kann-
aði málið. Íbúi viðurkenndi
að hafa verið að reykja kanna-
bis og leyfði lögreglu að leita á
heimili sínu. Ekkert efni fannst
við leit lögreglu og málið telst
upplýst.
-kgk
Dæmdur í
nálgunarbann
BORGARNES: Maður í
Borgarnesi brást ókvæða við
umkvörtunum nágranna síns
um hávaða í vikunni sem leið.
Sparkaði hann upp hurð ná-
granna síns með hníf í hönd.
nágranninn gerði lögreglu
viðvart sem kom og hand-
tók manninn. Maðurinn við-
urkenndi brot sitt en vildi þó
ekki meina að hann hafi ógnað
nágranna sínum með hnífn-
um. Hann var úrskurðaður
í sex mánaða nálgunarbann
gagnvart nágranna sínum.
-kgk
Ekið aftan á bíl
BORGARFJ: Umferðarslys
varð á Vesturlandsvegi við
Galtarholt á föstudag. Um aft-
anákeyrslu var að ræða. Öku-
maður fremri bílsins kvaðst
hafa dregið úr ferð til að bjóða
gangandi vegfaranda far þegar
hinn bíllinn ók aftan á hann.
Bifreiðin sem ekið var aftan á
endaði utan vegar. Ökumað-
ur og farþegi þeirrar bifreið-
ar voru fluttir á heilsugæsluna
í Borgarnesi til aðhlynningar.
Báðar bifreiðarnar eru mikið
skemmdar og þurfti að fjar-
lægja þær með kranabíl. -kgk
Kveiktu varðeld
SKORRADALUR: Lög-
reglu og viðbragðsaðilum var
tilkynnt um lausan eld við
Skorradalsvatn á sunnudags-
kvöld. Kom í ljós að krakkar á
tjaldsvæði höfðu kveikt varð-
eld. Aðrir gestir á tjaldsvæð-
inu slökktu eldinn. Krakkarnir
sögðust einfaldlega ekki hafa
áttað sig á hættunni, en mikið
hefur verið rætt um hættuna af
gróðureldum í Skorradal und-
anfarna viku vegna viðvarandi
þurrka. Aftur var tilkynnt um
eld í dalnum þegar fólk sagð-
ist hafa séð reyk, en reykur-
inn reyndist vera gufa úr lekri
heitavatnslögn. -kgk
Um klukkan hálf eitt í gær voru
björgunarsveitir á norðanverðu
Snæfellsnesi kallaðar út þegar fjöl-
veiðiskipið Blíða SH steytti á skeri
hálfa aðra sjómílu frá Stykkishólmi,
skammt frá Hvítbjarnarey. Björg-
unarbátur frá Stykkishólmi var
kominn á vettvang skömmu síðar
og þá kom björgunarskipið Björg
frá Rifi einnig á vettvang, sem og
eftirlits- og sjómælingaskipið Bald-
ur. Aðgerðum á strandstað var stýrt
um borð í Baldri.
Fjórir voru um borð í Blíðu þeg-
ar báturinn strandaði. Staðan um
borð var góð, enginn slasaðist og
gott veður var á strandstað. Afráð-
ið var að bíða þess að flæddi undir
bátinn. Það gerðist nálægt klukkan
16:00 síðdegis í gær og var Blíðu
siglt áleiðis til hafnar í Stykkis-
hólmi á eigin vélarafli eftir að hún
var komin á flot.
kgk
Búið er að opna formlega dósam-
óttöku Fjöliðjunnar í Akurshúsinu
við Smiðjuvelli 9 á Akranesi. Að
sögn Ástu Pálu Harðardóttur, yfir-
þroskaþjálfa hjá Fjöliðjunni, verður
starfsemi Fjöliðjunnar komin á fullt
á morgun, fimmtudag. „Þá opnum
við fyrir hæfingarhlutann og mat-
inn. Dósamóttökuna höfum við
ekki auglýst sérstaklega en strax frá
fyrsta degi hefur verið alveg brjálað
að gera,“ segir hún kát. Hún seg-
ir að enn eigi eftir að klára að setja
upp merkingar svo fólk viti hvert
skuli fara með dósirnar en þær
merkingar eru væntanlegar. „Þegar
komið er að húsinu sér fólk timbur-
girðingu sem skilur að útisvæðið en
móttakan er þar fyrir aftan. Þetta
verður vonandi merkt von bráðar,“
segir hún.
arg
Lögreglan á Vesturlandi var við
hraðaeftirlit með myndavéla-
bíl embættisins í vikunni sem leið.
Fimmtudagin 13. júní milli kl.
14:00 og 15:00 var fylgst með há-
markshraða á Ketilsflöt á Akranesi,
til móts við leikskólann Akrasel, þar
sem hámarkshráði er 30 km/klst.
Alls var hraði 105 bíla mældur. Af
þeim voru 60 bílar yfir leyfilegum
hámarkshraða og 28 ökumenn voru
kærðir. Meðalhraði kærðra var 42,7
km/klst. Lögregla fór á sama stað
með myndavélabílinn morguninn
eftir kl. 9:00. Þá var hraði 74 mæld-
ur og 15 kærðir fyrir of hraðan
akstur. Meðalhraði kærðra var 40
km/klst. og sá sem hraðast ók var
á 47 km/klst. Sama dag, 14. júní,
fór lögregla með myndavélabílinn
að Þjóðbraut á Akranesi, en þar
er leyfilegur hámarkshraði 50 km/
klst. Hraðamældir voru 238 bílar.
Af þeim óku 76 yfir leyfilegum há-
markshraða og 14 voru kærðir. Á
laugardag var lögregla við hraðaeft-
irlit með myndavélabílnum á Vest-
urlandsvegi við Galtalæk milli kl.
13:30 og 15:00. Á þessum 90 mín-
útum voru 557 bílar hraðamældir.
Meðalhraði allra bíla var 84 km/
klst en 14% voru yfir leyfilegum
hámarkshraða. Meðalhraði þeirra
sem ók of hratt var 106 km/klst. og
sá sem hraðast ók var mældur á 129
km/klst.
kgk
Blíða strand. Meðfylgjandi mynd var ekki tekin í gær, heldur í október 2015 þegar
sami bátur strandaði skammt frá Kiðey. Ljósm. úr safni/ sá.
Blíða steytti á skeri
Markvisst hraðaeftirlit lögreglu
Myndavélabúnaður lögreglu. Ljósm. úr safni/ arg.
Hér má sjá aðkomuna
að dósamóttökunni
en farið er fyrir aftan
skjólvegginn sem
sjá má til vinstri á
myndinni. Ljósm. mm.
Dósamóttakan formlega opnuð
á Akranesi
Nóg hefur verið að gera í dósamóttökunni frá opnun. Hér eru systkinin Addi og
Emma að telja drykkjarvöruumbúðir.