Skessuhorn - 19.06.2019, Side 10
MIÐVIKUDAGUR 19. jÚnÍ 201910
Brynhildur Óla Elínardóttir hef-
ur verið ráðin sóknarprestur Staf-
holtsprestakalls og tók hún við
embætti til eins árs 1. júní síðast-
liðinn. Brynhildur var áður sókn-
arprestur í Skeggjastaðaprestakalli
austur á Bakkafirði sem svo varð
Langanesprestakall, auk þess sem
hún gegndi þjónustu á Vopnafirði
í tvö ár. „Ég flutti að Skeggjastöð-
um 1995, vígðist til Skeggjastaða-
prestakalls í febrúar 1996 og hef
kunnað vel við mig á norðaustur-
horni landsins, enda alin upp í ein-
angrun á jökuldal,“ segir Brynhild-
ur í samtali við Skessuhorn. En
hvernig kom það til að hún færði
sig í Borgarfjörðinn? „Það voru
gerðar kerfisbreytingar á skipan
þar eystra og ég ákvað bara að slá
til og skipta um starfsvettvang eft-
ir tæpan aldarfjórðung fyrir austan.
Það er sannarlega eftirsjá að flytja
frá Bakkafirði en norðausturhornið
er mér ákaflega kært. Það er óhætt
að segja að hjarta bóndans slái hratt
þegar þarf að bregða búi en Borg-
arfjörðurinn hefur tekið vel á móti
mér,“ segir Brynhildur.
Mikil áhugakona
um sauðfé
„Hér hef ég kynnst prýðis mann-
eskjum, svo sem eins og safnaðar-
nefndafólki hér í kallinu og sé strax
að Borgarfjörðurinn er búsældarleg
sveit,“ segir Brynhildur og heldur
áfram: „Þá kemur mér í huga vísa
sem landsþekktur sæmdarmaður
orti þegar við hittumst á sauðburð-
arvaktinni hér í sveit skammt frá,
en Helgi Björnsson heitir maður-
inn. Svo hljóðar vísan:
„Brynhildur kann búfé að að hlú,
menn búast ekki við að neinu halli
með að dável muni sinna sú
sauðunum í Stafholtsprestakalli.“
Mér þótti þessi vísa bæði góð og
mjög viðeigandi, en ég hef ákaflega
mikinn áhuga á íslensku sauðkind-
inni og sauðfjárrækt. Auk þess sem
að sjálfsögðu uni ég mér einstaklega
vel í starfi sem prestur,“ segir Bryn-
hildur. Aðspurð segist hún reka
sauðfjárbú austur á Skeggjastöð-
um. „Vinkonu minni lánaði ég búið
þegar ég fór í frí og námsleyfi sem
ég var að koma úr núna. Ég mun
trúlega bregða búi eystra en segi nú
eins og séra Elínborg Sturludóttir
sem hér þjónaði; „á þeim heilaga
stað sem Stafholt er,“ hyggst ég
með haustinu taka fé á hús, en fal-
ast eftir hreinmórauðum, vel gerð-
ur gimbrum í haust, sem og fallega
mómögóttum ef þær finnast. Það
tók mig heil átta ár þar eystra að
rækta vel byggt litfrítt mómögótt,“
segir Brynhildur.
Góðar móttökur
Fyrsta guðsþjónusta Brynhildar í
Stafholtskirkju var 9. júní síðast-
liðinn. „Eftir athöfn var kaffi og
hitti ég þar sveitunga mína sem var
sérlega ánægjulegt. Þá var einnig
messa í Hvammskirkju 16. júní og
kirkjukaffi eftir athöfn. Þar hitti ég
norðdælinga hverjir voru gestrisnir
heim að sækja. Meðal annarra hitti
ég markavörðinn Þóri Finnsson
og hef ég mælt mér mót við hann
að finna mér þægilegt eyrnamark
hið fyrsta,“ segir Brynhildur kát.
„Starfið leggst allt vel í mig. Söfn-
uðirnir hafa tekið vel á móti mér og
nú þegar hafa nokkrir látið mig vita
af mislitu fé hér í sveit. Fyrir ligg-
ur að komast að því hvort hægt sé
að sækja námskeið hér í Borgarfirði
og að ég geti þjálfað Border Col-
lie hvolpinn minn hann Dreka og
verð þá vel sett,“ segir Brynhildur
að endingu.
arg
Gamli leikfimisalurinn við Grunn-
skóla Borgarness hefur nú verið
rifinn. Ráðist var í niðurrif á þeim
hluta skólans á þriðjudaginn í lið-
inni viku. nokkrir Borgnesingar
fylgdust með niðurrifinu og bærð-
ust blendnar tilfinningar í hugum
sumra að sjá gamla leikfimisalinn
hverfa endanlega. Með niðurrifinu
opnast skólalóðin betur og verður
til pláss fyrir nýja starfsemi. Yngri
kynslóðin af þeim nemendum sem
hafa gengið í grunnskólann kannast
betur við þennan hluta sem smíða-
stofuna en nú verða allar list- og
verkgreinar á sama stað í vestur-
enda hússins þegar framkvæmdum
þar verður lokið síðar á árinu.
glh
Undanfarin þrjú sumur hafa ljós-
myndasýningar verið á Stálpastöð-
um í Skorradal. Staðurinn er sér-
stakur og sýningarsvæðið óvenju-
legt þar sem sýnt er undir berum
himni, í skjóli hárra trjáa, í og við
gömlu hlöðuna sem fyrir hálfri öld
þjónaði sem gististaður ungmenna
sem unnu við plöntun barrtrjáa á
svæðinu.
Í ár verður fjórða ljósmyndasýn-
ingin á Stálpastöðum. nú er það
Guðlaugur Óskarsson fv. skóla-
stjóri sem sýnir og er þema sýning-
arinnar hestar, menn og náttúran.
Guðlaugur mun opna sýninguna
kl. 15:00 laugardaginn 22. júní og
verður hún opin allan sólarhringinn
til 29. september. Það er Uppbygg-
ingarsjóður Vesturlands sem styður
framtakið. Enginn aðgangseyrir er
á sýninguna og allir velkomnir.
-fréttatilkynning
Hið árlega norðurálsmót í knatt-
spyrnu fer fram á Akranesi um
helgina, dagana 21.-23. júní. Mótið
er eitt stærsta íþróttamót landsins,
ætlað drengjum í 7. flokki, á aldr-
inum sex til átta ára. „Það stefnir
í metþátttöku í ár,“ segir Sigurður
Þór Sigursteinsson, framkvæmda-
stjóri Knattspyrnufélags ÍA, í sam-
tali við Skessuhorn. „Búast má við
því að mikill fjöldi fólks sæki Akra-
nes heim á meðan mótinu stend-
ur. Ég hvet alla bæjarbúa til að taka
höndum saman og gera þetta að
frábærri helgi, því norðurálsmótið
er mikil lyftistöng fyrir bæjarfélag-
ið,“ segir Sigurður.
Dagskrá mótsins er með hefð-
bundnu sniði. Keppendur ganga í
skrúðgöngu frá bæjarskrifstofun-
um kl. 10:45 á föstudaginn. Leið-
in liggur í Akraneshöllina þar sem
mótið verður sett. Að lokinni setn-
ingu mótsins hefst síðan keppni
fyrsta mótsdags og stendur þar til
mótinu lýkur kl. 13:00 á sunnudag.
Að sögn Tjörva Guðjónssonar,
verkefnastjóra hjá KFÍA, hafa 1.450
keppendur frá 36 aðildarfélög-
um boðað komu sína á mótið þeg-
ar þessi orð eru rituð á mánudegi.
Áætlað er að keppendum fylgi sam-
tals um 4.500 manns. Heildarfjöldi
gesta sem sækir Akranes heim á
meðan mótinu stendur er því farinn
að nálgast 6.000. Enn fremur kveðst
hann eiga von á því að fleiri dvelji
á Akranesi alla mótsdagana en áður.
„Skráning á tjaldsvæðið er meiri
en verið hefur. Það virðist vera að
færast í aukana að fólk úr Reykja-
vík verji allri helginni á Akranesi, í
stað þess að keyra á milli kvölds og
morgna. Það stefnir allt í blússandi
flott mót,“ segir Tjörvi að endingu.
kgk/ Ljósm. úr safni/ gbh.
Stefnir í metþátttöku í Norðurálsmótinu
Ekkert gefið eftir í viðureign Fram og KR á síðasta móti.
Ungur Skagapiltur fagnar eftir að hafa komið boltanum í netið á Norðurálsmótinu
í fyrra.
Ein mynda Guðlaugs á sýningunni er
af Ingimar Sveinssyni á reið skammt
frá Hvanneyri.
Guðlaugur sýnir ljós-
myndir á Stálpastöðum
Niðurrif hófst á þriðjudaginn í liðinni
viku og lauk síðar í vikunni.
Ljósm. Sólrún Lind Egilsdóttir.
Gamli leikfimisalurinn
horfinn af sjónarsviðinu
Brynhildur Óla er nýr sóknarprestur
í Stafholtsprestakalli
Brynhildur Óla Elínardóttir í fyrstu guðsþjónustu sinni við Stafholtskirkju Hvítasunnudag 9. júní síðastliðinn.
Ljósm. Kristján Friðriksson.