Skessuhorn - 19.06.2019, Page 14
MIÐVIKUDAGUR 19. jÚnÍ 201914
Bílvelta á Snæ-
fellsnesi
EYJA- OG MIKL: Bílvelta varð
á Snæfellsnesvegi á laugardag-
inn skammt frá bænum Gröf í
Eyja- og Miklaholtshreppi. Öku-
maður var í æfingarakstri ásamt
móður sinni og þremur öðrum
farþegum, sem allir eru börn.
Ökumaðurinn missti bílinn út í
hægri kant vegarins, tók í stýr-
ið með þeim afleiðingum að bíll-
inn valt nokkrar veltur og end-
aði utan vegar. Allir voru með ör-
yggisbeltin spennt þegar óhapp-
ið varð en loftpúðarnir sprungu
ekki. Þegar lögregla kom á stað-
inn voru allir komnir út úr bíln-
um og afturkölluð aðstoð tækja-
bifreiðar slökkviliðs. Svo heppi-
lega vildi til að læknir og hjúkr-
unarfræðingur áttu leið hjá slys-
stað og gátu komið fólkinu til
aðstoðar á meðan beðið var eft-
ir sjúkrabílum sem sendir voru
frá Stykkishólmi og Borgarnesi.
Fólkið kenndi sér eymsla en eng-
inn virðist hafa slasast alvarlega.
-kgk
Of ungur til að
aka
BORGARFJ: Lögregla stöðvaði
ökumann við almennt umferðar-
eftirlit í Borgarfirði aðfararnótt
laugardags. Kom þá á daginn að
ökumaðurinn hafði ekki náð 17
ára aldri og reyndist ekki hafa
fengið ökuréttindi. Haft var sam-
band við foreldra viðkomandi og
Barnavernd Borgarbyggðar til-
kynnt um málið, eins og lögreglu
ber skylda til að gera. -kgk
Aflatölur fyrir
Vesturland
8.-14. júní
Tölur (í kílóum) frá Fiski-
stofu:
Akranes: 20 bátar.
Heildarlöndun: 29.095
Mestur afli: Ísak AK: 3.675 kg í
tveimur róðrum.
Arnarstapi: 24 bátar.
Heildarlöndun: 45.136 kg.
Mestur afli: Bárður SH: 5.704
kg í tveimur róðrum.
Grundarfjörður: 18 bátar.
Heildarlöndun: 406.401 kg.
Mestur afli: Bylgja VE: 140.225
kg í tveimur löndunum.
Ólafsvík: 34 bátar.
Heildarlöndun: 125.760 kg.
Mestur afli: Ólafur Bjarnason
SH: 33.373 kg í þremur róðrum.
Rif: 21 bátur.
Heildarlöndun: 93.864 kg.
Mestur afli: Særif SH: 34.066 kg
í tveimur löndunum.
Stykkishólmur: 25 bátar.
Heildarlöndun: 102.144 kg.
Mestur afli: Blíða SH: 8.204 kg í
fjórum róðrum.
Topp fimm landanir á tíma-
bilinu:
1. Bylgja VE - GRU: 79.253 kg.
10. júní.
2. Breki VE - GRU: 68.095 kg.
10. júní.
3. Hringur SH - GRU: 66.703
kg. 12. júní.
4. Sigurborg SH - GRU: 64.799
kg. 10. júní.
5. Bylgja VE - GRU: 60.972 kg.
13. júní.
-kgk
Spánýtt listaverk prýðir nú gafl
íþróttahússins á Hellissandi og gríp-
ur auga bæði íbúa og gesta bæjar-
ins. Frystiklefinn í Rifi stóð fyrir al-
þjóðlegri hugmyndasamkeppni um
vegginn og á endanum var myndin
af hrútnum sem nú prýðir vegginn
valin. Höfundar þess eru þær Lacey
jane og Layla Folkmann, en þær
koma frá Kanada. „Eins og sjá má
heppnaðist verkið mjög vel og við
erum stolt af því að hafa hrundið
þessu í framkvæmd. Til gamans má
geta að við töldum 200 ferðamenn
stoppa við til þess að taka mynd af
verkinu í gær,“ segir á Facebook-
síðu Frystiklefans á þjóðhátíðar-
daginn.
kgk/ Ljósm. Snæfellsbær.
Skógræktarfélag Borgarfjarðar,
Skógræktin á Vesturlandi og Fé-
lag skógarbænda á Vesturlandi efna
í sameiningu til skógardags í Reyk-
holti í Borgarfirði fyrir alla fjöl-
skylduna, laugardaginn 22. júní nk.
Ætlunin er að hafa samkomustað
í Eggertslundi, en þar verða leik-
ir, plöntuhappdrætti, leiðbeining-
ar í tálgun og söngur. Farið verð-
ur í skógargöngu og boðið uppá
veitingar. Samkoman stendur frá
klukkan 13.00 til 16.00. Í fyrra var
slíkur dagur haldinn um allt land,
hér í héraðinu í Selskógi í Skorra-
dal. „Hugmynd er að félagsmenn í
FsV hittist og borði sameiginlega
að lokinni samkomu annað hvort
í Hótel Reykholti eða í veitinga-
húsinu Kraumu við Deildartungu-
hver. Áhugasamir hafi samband við
Bergþóru formann FsV á netfang-
ið hrútsstaðir@simnet.is eða í síma
866-4175.
Heimsókn til skógar-
bænda á Oddsstöðum
Félag skógarbænda á Vesturlandi
var stofnað 23. júní 1997. Hefð er
að félagsmenn hittist þennan dag
hjá einhverjum skógarbónda innan
félagsins og skoði skógræktina hjá
honum. nú í ár bjóða skógarbændur
á Oddsstöðum II í Lundarreykjadal,
þau Sigrún Kristjánsdóttir og Guð-
mundur Sigurðsson, til heimsóknar
í skógræktina á Oddsstöðum sunnu-
daginn 23. júní n.k. Oddsstaðir 1 og
II eru með sameiginlegan skógrækt-
arsamning frá árinu 2000. Skógar-
bændur á Oddsstöðum I eru Sigurð-
ur Oddur Ragnarsson og Guðbjörg
Ólafsdóttir. Mæting á Oddsstöðum
er klukkan 14.00 og er þá boðið upp
á ketilkaffi að sið skógarbænda. Síð-
an verður skógarganga og að henni
lokinni verður boðið uppá veitingar.
„Æskilegt er að gestir tilkynni þátt-
töku á netfangið furutun@simnet.
is eða í síma 862-6361,“ segir í til-
kynningu. mm
Umfangsmestu sinueldar í sögunni urðu á Mýrum
í lok mars og byrjun apríl 2006 þegar um 70 hekt-
arar lands brunnu. Í ljósi þess að nú er búið að lýsa
yfir viðbúnaðarstigi vegna þurrka á öllu Vestur-
landi, er rétt að rifja það upp að Mýraeldarnir urðu
vegna þess að sígarettu var kastað út um glugga á
bíl sem ekið var um Snæfellsnesveg í Hraunhreppi
á Mýrum. Kveikti stubbur þessi eld í sinu og lauk
ekki slökkvistarfi fyrr en þremur sólarhringum síð-
ar. Meðfylgjandi mynd var tekin af þeim stað sem
eldarnir hófust vorið 2006, rauði hringurinn mark-
ar svæðið þar sem glóðin kveikti þennan mikla eld.
Förum varlega!
mm
Yfirlitsmynd af Reykholti tekin sumarið 2016. Ljósm. gó.
Líf í lundi í Reykholtsskógi
á laugardaginn
Hrútur á Hellissandi
Listaverkið af
Hrútnum á gafli
íþróttahússins
á Hellissandi.
Það eru listakonurnar Lacey Jane og Layla Folkmann sem eru höfundar verksins, en þær eru teymi frá Kanada.
Varúð í ljósi sögunnar