Skessuhorn - 19.06.2019, Side 27
MIÐVIKUDAGUR 19. jÚnÍ 2019 27
Á laugardaginn, 22. júní næstkom-
andi, verður brautskráning frá Há-
skólanum á Bifröst. Þá munu alls
80 nemendur útskrifast úr grunn-
námi og meistaranámi við skól-
ann ásamt nemendum Háskóla-
gáttar og símenntunar. Vilhjálmur
Egilsson, rektor Háskólans á Bif-
röst, mun útskrifa nemendur ásamt
sviðstjórum. Tónlistaratriði verða í
höndum Karlakórsins Söngbræðra
ásamt undirleikurum.
Útskriftarathöfnin hefst kl. 13:00
og boðið verður upp á móttöku að
athöfn lokinni.
kgk
Gamall draumur bræðranna Haf-
þórs og Sævars Benediktssona hjá
BB og sonum í Stykkishólmi varð
loksins að veruleika á þriðjudaginn
í síðustu viku. Þá hófst jarðvinna
við lóð grunnskólans og Amtsbóka-
safnsins. „Okkur bræður hafði allt-
af dreymt um að fá að fara á belta-
vél í skólann,“ segir Hafþór í sam-
tali við Skesshorn en bætir því við
að á sínum tíma hafi þeir farið til
og frá skóla á ýmsum farartækjum.
„Við tókum skellinöðruprófið 15
ára gamlir og fórum á skellinöðr-
unum í skólann. Þá fylgdu skelli-
nöðruprófinu réttindi til að aka
snjósleða þannig að þegar var snjór
þá fórum við á sleðum. En við feng-
um aldrei að fara í skólann á gröfu,“
segir hann léttur í bragði.
Aðspurður segir Hafþór að end-
urgerð lóðarinnar fari vel af stað.
„Búið er að fjarlægja allt yfirborð-
sefni og verið að gera klárt fyrir
stoðveggina sem á að steypa. Þá
verður efni keyrt inn í lóðina og
hún hækkuð svolítið,“ segir Haf-
þór. Verkinu verður lokið áður en
kennsla hefst að nýju í ágústmán-
uði. kgk
Staðan í laxveiðinni þessa dagana á
Vesturlandi er hreint ekki góð. Ekki
hefur komið deigur dropi úr lofti
í meira en fimm vikur og lítil rign-
ing sjáanleg í kortunum. norðurá og
Þverá eru t.d. orðnar vatnslitlar og
erfitt að fá fiskinn sem þó er kominn
á svæðið til að taka. Úr báðum þess-
um ám eru komnir innan við tíu laxa
á land. Brennan hefur verið að gefa
fisk en þar er eins og kunnugir þekkja
nóg vatn, líkt og í Straumunum.
„Við vorum að opna Laxá í
Leirársveit og það er kominn
einn lax á land. Það er eitth-
vað af laxi genginn í ána,“ sagði
Haukur Geir Garðarsson í gær-
morgun. „Þetta er mjög erfitt,
en laxinn veiddist í neðsta hyl-
num í ánni og þar slapp af annar.
Það sáust einnig laxar í Laxfossi-
num,“ sagði Haukur Geir. Þegar
rennt var framhjá Laxá í gær voru
veiðimenn að kasta flugunni í
næsta veiðistaðnum við þann sem
gaf fyrsta laxinn. Laxá er engu að
síður að verða vatnslítil eins og
aðrar ár um vestan- og suðvestan-
vert landið. Leirá er til dæmis að
komast að þolmörkum. Það sama
á við um Gufá í Borgarhreppi sem
þornar upp á efri hlutanum þegar
svona viðrar. Eina hreyfingin við
Gufuá var Stelkur sem varla blot-
naði í fætur í polli úti í miðri á.
gb
Ólafsvíkurvaka verður haldin fyrstu
helgina í júlí og er undirbúning-
ur í fullum gangi. Að þessu sinni
eru það appelsínugula og græna
hverfið sem standa að hátíðinni.
Að sögn þeirra Ara Bjarnasonar úr
appelsínugula hverfinu og Ríkarðs
Kristjánssonar úr því græna geng-
ur undirbúningur vel og hafa all-
ir í hverfunum verið áhugasam-
ir og margir komið að undirbún-
ingnum.
Fjölbreytt dagskrá verður í boði
og verður hún blanda af viðburð-
um sem hafa verið margar undan-
farnar Ólafsvíkurvökur og nýjum
og spennandi viðburðum. Má þar
nefna skákkennslu og skákmót,
ratleikinn „Ólafsvíkurdrauminn“
og gardenpartý í Sjómannagarð-
inum þar sem þau Trausti og Lena
sjá um fjörið, Herra Hnetusmjör
mun verða á Þorgrímspalli á laug-
ardeginum ásamt fleiri skemmtiat-
riðum, BMX-Bros munu mæta á
svæðið og sýna listir sínar og átt-
hagagangan „engu logið“ ásamt
byssusýningu. Einnig er stefnt
að því að setja upp húsdýragarð
um helgina svo eitthvað sé nefnt.
Hestamannafélagið verður á sín-
um stað eins og áður sem og dorg-
veiðin og hoppukastalarnir. Mark-
aðurinn verður einnig á sínum stað
og enn hægt að fá pláss með því að
hafa samband við Laufeyju Krist-
mundsdóttur í síma 899-6904. jón
Sigurðsson Idol stjarna stjórnar
brekkusöng í Sjómannagarðin-
um á laugardagskvöldinu og held-
ur uppi stuðinu. Þar verða einnig
flutt skemmtiatriði frá hverfunum.
Vill undirbúningsnefndin hvetja
hverfin til að fara að byrja að æfa
og undirbúa svo allt verði nú til-
búið. Hljómsveitin Stjórnin mun
svo halda uppi stuðinu í Klifi á
laugardagskvöldið og fram á nótt.
Af allri þessari upptalningu má sjá
að það stefnir í góða Ólafsvíkur-
vöku. þa
Vera Líndal Guðnadóttir opnaði
myndlistarsýningu sem hún nefnir
Óþekkt landslag, að Stillholti 16-18
á Akranesi síðastliðinn laugardag. Í
dag og fram á föstudag verður sýn-
ingin opin frá klukkan 17 til 19, en
um helgina frá kl. 14-17.
mm/ Ljósm. gh
Hraðhleðslustöðvum við þjóðveg-
inn verður fjölgað verulega og blás-
ið verður til átaks með ferðaþjón-
ustunni til að stuðla að orkuskipt-
um hjá bílaleigum, sem hafa víðtæk
áhrif á samsetningu bílaflota lands-
manna. Þetta kom fram á blaða-
mannafundi þriggja ráðherra ríkis-
stjórnarinnar sem nýverið kynntu
næstu skref varðandi orkuskipti í
samgöngum á Íslandi. Tilkynnt
var á fundi ráðherranna um ráð-
stöfun 450 milljóna króna vegna
orkuskipta í samgöngum á árunum
2019-2020 en samkvæmt fjármála-
áætlun er áætlað að verja 1,5 millj-
arði króna til orkuskipta á fimm ára
tímabili.
„Þriðjungur þeirrar losunar
gróðurhúsalofttegunda sem er á
beinni ábyrgð íslenskra stjórnvalda
kemur frá vegasamgöngum. Stærsta
einstaka aðgerðin sem mögulegt er
að ráðast í til að mæta skuldbind-
ingum Íslands er því að draga úr
þessari losun – með breyttum fer-
ðavenjum og orkuskiptum í veg-
asamgöngum. Rafvæðing fólksbíla-
flotans mun skila mestu í orkuskip-
tunum en gert er ráð fyrir að hún
geti skilað allt að 250.000 tonna ár-
legum samdrætti í losun,“ segir í
tilkynningu frá ráðuneytunum sem
hlut eiga í máli.
mm
Ólafsvíkurvaka verður fyrstu helgina í júlí
Brautskráð frá Bifröst
á laugardaginn
Vera opnaði
myndlistarsýningu
Vilja hraða orkuskiptum
Þrír ráðherrar kynntu nýverið áform
um uppbyggingu innviða vegna
orkuskipta á blaðamannafundi. F.v.
Sigurður Ingi, Þórdís Kolbrún og Guð-
mundur Ingi.
Lítil veiðivon í
enn vatnsminni ám
Jarðvinna hófst við lóð Grunnskólans í Stykkishólmi og Amtsbókasafnsins á
þriðjudaginn í síðustu viku. Ljósm. Hafþór Benediktsson.
Fengu loksins að fara á
gröfunni í skólann