Læknablaðið - aug. 2019, Síða 21
LÆKNAblaðið 2019/105 329
Y F I R L I T S G R E I N
skaðinn er skeður, hafa heilbrigðisyfirvöld í fjöldamörgum lönd-
um tekið þá ákvörðun að banna notkun asbests þegar líklegt þykir
að það valdi auknu asbestryki í andrúmslofti. Notkun í bremsu-
borðum í bílum var hins vegar leyfð til skamms tíma en þar er
um að ræða mjög lítið magn. Frá 1. janúar 2005 var slíkt einnig
bannað. Reykingar eru mikilvægur áhættuþáttur. Reykingamenn
án asbestútsetningar höfðu 11-falda áhættu á lungnakrabbameini
en reykingar og asbestútsetning juku áhættuna 59-falt.20 Gildir
þetta væntanlega einnig um samspil annarra krabbameinsvalda
og asbests þó slíku sé ekki eins vel lýst.
Notkun asbests á Íslandi
Byggingar
Mikið magn af asbesti var notað í ýmsar byggingar á Keflavíkur-
flugvelli eins og stór flugskýli sem byggð voru fyrir bandaríska
herinn. Þá var asbest einnig notað í útihús hjá bændum eins og
fjárhús og fjós.
Skip
Vegna eiginleika asbests sem eldvarnarefni, hitaeinangrun og
hljóðeinangrun var það mikið notað í íslenskum skipum sem
smíðuð voru allt frá 1945 og fram til 1980. Það var sérstaklega mik-
ið notað í vélarrúmum skipa og því voru margir íslenskir vélstjór-
ar útsettir fyrir asbesti.
Hitaveitulagnir
Margar hitaveitur á Íslandi voru stofnaðar eða efldar mikið á ár-
unum milli 1970 og 1980. Asbest var mikið notað til einangrunar
á hitaveitulögnum. Búið er að skipta út mörgum af þessum lögn-
um nú. Þeir sem unnu við uppsetningu þessara hitaveitukerfa og
viðhald þeirra urðu fyrir umtalsverðri asbestútsetningu.
Staðan í dag
Í dag er öll vinna við asbest bönnuð nema vegna viðhaldsverkefna
þar sem verið er að fjarlægja asbest. Umfang þessarar vinnu er
mikið en allir sem koma að slíkri vinnu þurfa að sækja námskeið
um hvernig þetta er gert með öruggum hætti. Flestir þeirra sem
sótt hafa slík námskeið hafa gert það í tengslum við tiltekin verk.
Í dag hafa fleiri en 900 einstaklingar sótt slík námskeið, sem veit-
ir rétt til að fjarlægja asbesteiningar, en gera má ráð fyrir að um
sé að ræða yfir 200 verk á síðastliðnum 20 árum. Þessi verkefni
hafa verið alls staðar á landinu, í öllum tegundum bygginga og
mannvirkja, opinberum sem einkaheimilum sem flest hver hafa
verið reist á árunum eftir stríð fram til 1980. Fjöldi verka er ekki að
minnka en á árinu 2018 hafa verið veitt 35 leyfi til slíks niðurrifs og
gera verður ráð fyrir að fjöldi þessara verkefna muni aukast þegar
kemur að stórviðhaldi mannvirkja eftirstríðsáranna fram til 1980.
Grundvallaratriði við þessa vinnu er að tryggja réttan hlífðarbún-
að og notkun á réttum öndunargrímum við verkið.
Verkefni vegna lauss asbests eru fá og hafa flest tengst veru
Bandaríkjahers hér á landi. Vinna vegna slíks krefst mjög sér-
hæfðrar þjálfunar vegna mikillar hættu á rykmengun. Asbesti ber
að farga á viðurkenndum förgunarstöðum.
Asbesttengdir sjúkdómar
Asbestveiki/Asbestosis
Um er að ræða dreifða lungnatrefjun með hægri framþróun sem
stafar af innöndun á asbestþráðum.21 Hún er yfirleitt staðsett í
neðri blöðum lungnanna og rétt undir fleiðrunni eins og sést á
mynd 2. Í vefjasýnum frá lungum sjást asbestþræðir í tengslum
við svæði með bandvefsmyndun í millivef. Vefjamynstrið sam-
ræmist mynstri venjulegrar millivefslungnabólgu en ekki sjást
mörg trefjafrumuknippi og það sést bandvefsmyndun í fleiðru.22
Einkenni koma oftast fram 20-30 árum eftir asbestútsetningu. Ein-
kennin grundvallast á því að örvefsmyndunin eyðileggur teygj-
anleika lungnanna. Algengust er vaxandi mæði við áreynslu og
brakhljóð geta heyrst við lungnahlustun.23 Við lungnarannsóknir
kemur fram herpa með skertum rúmmálum og skerðing á loft-
dreifiprófi fyrir kolmónoxíði.21,24 Háskerputölvusneiðmynd af
lungum sýnir línulegar þéttingar af mismunandi lengd sem liggja
rétt undir fleiðru og eru samsíða fleiðrunni.24 Einnig sést í neðri-
og afturhlutum lungna bandvefsmyndun með trefjun.25 Það geta
verið grófir strengir í lungnavef sem eru 2-5 cm að lengd og tengj-
ast fleiðrunni. Í langt gengnum sjúkdómi sést býkúpumynstur.26
Fleiðruskellur geta sést og eru mikilvægar til að greina frá öðrum
gerðum millivefslungnasjúkdóma. Þegar fleiðruvökvi fer saman
við millivefslungnasjúkdóm er ástæða til að gruna asbestútsetn-
ingu.27 Þrátt fyrir að við greiningu á asbestveiki þá liggi fyrir
röntgengreinanlegar breytingar þarf að hafa í huga að starfrænar
breytingar geta verið komnar fyrr.28
Hjá sumum leiðir sjúkdómurinn til öndunarbilunar. Engin sér-
hæfð meðferðarúrræði eru til en almenn stuðningsmeðferð eins
Mynd 2. Tölvusneiðmynd af asbestbreytingum í brjóstkassa. Það sjást kalkaðar
fleiðruskellur, fleiðruvökvi og bandvefsbreytingar í lunga.