Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - aug 2019, Blaðsíða 36

Læknablaðið - aug 2019, Blaðsíða 36
344 LÆKNAblaðið 2019/105 Alls 88 útskrifast úr læknisfræði á þessu vori, 46 úr læknadeild Háskóla Íslands en 42 úr erlend- um skólum. Stærsti hópurinn erlendis frá nam í Slóvakíu, eða 22. Ellefu útskrifast í Ungverjalandi, fimm í Danmörku og einn frá Noregi, Svíþjóð, Eistlandi og Bandaríkjunum. „Þetta hefur einkennt íslenska læknastétt í langan tíma. Fólk hefur sótt menntun sína erlend- is,” sagði Reynir Arngrímsson, formaður Lækna- félags Íslands við læknana sem komu í húsakynni félagsins til að undirrita læknaeiðinn. Í fyrsta skipti væru yfir 1.700 læknar á Íslandi. Reynir benti á að nú stækkaði sá hópur óðum sem sækti grunn- menntunina ytra. „Þess vegna höfum við það besta úr læknaþjónustunni og þekkingu úr heiminum bæði austan- og vestanhafs hér á Íslandi,“ sagði Reynir við þessa hátíðarstund. Alma Möller landlæknir hvatti ungu læknana til þess að efla lýð- heilsu landsmanna. Fyrirbyggja þyrfti sjúkdóma vegna lengri ævi lands- manna. Þau þyrftu einnig að hlúa að eigin heilsu og líðan. „Mikilvægt meðal á kulnun og streitu, bæði fyrir skjólstæðinga ykkar og ykkur sjálf, er svefn.“ Vel á sjötta tug mætti og ritaði undir læknaeiðinn á þessum sólríka eftirmiðdegi í júní í ár. Læknablaðið óskar læknunum sem nú stíga sín fyrstu skref eftir útskrift innilega til hamingju með áfangann. ■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Anna María Toma, HÍ, og kærasti hennar Daði Halldórsson, Eydís Ósk Jónasdóttir, HÍ, og kærasti hennar Atli Valur Jóhannsson. Frá vinstri: Hildur Inga Einarsdóttir og Una Egilsdóttir (th.) sem báðar út- skrifast frá Danmörku. Hér ásamt kærustum sínum. Frá vinstri: Sigmar Atli Guðmundsson úr HÍ , Jón Bjarnason, HÍ, og kærasta hans Adéla Stehlíková, Gunnar Bollason, HÍ, og Daníel Björn Yngvason, HÍ. Runólfur Pálsson læknir hélt utan um undirritun læknaeiðsins. Unnsteinn Júlíusson læknir á Húsavík fór yfir kosti þess að starfa úti á landi. Alma Möller landlæknir flutti hvatn- ingu til læknanna. Ragnheiður Úlfarsdóttir, Slóvakíu, ritar undir læknaeiðinn. Bjarni Rúnar Jóhannsson, HÍ, ritar undir læknaeiðinn. Aldrei fleiri útskrifast sem læknar

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.