Læknablaðið - aug. 2019, Blaðsíða 47
LÆKNAblaðið 2019/105 355
F R Á E M B Æ T T I L A N D L Æ K N I S 3 0 . P I S T I L L
Ávísanir flogaveiki-
lyfja á Íslandi
Árið 2015 fóru Íslendingar fram úr Finn-
um í sölu flogaveikilyfja og eru þar með
komnir í efsta sætið á Norðurlöndum varð-
andi sölu þessara lyfja, sjá mynd 1. Sala
flogaveikilyfja hefur aukist jafnt og þétt
á öllum Norðurlöndunum frá árinu 2004
samkvæmt tölum frá Nomesco.
Ávísanir gabapentíns og pregabalíns
hafa aukist mikið á Íslandi frá árinu 2007,
sjá mynd 2. Ávísanir pragabalíns náðu
hámarki 2010 en eftir það dró úr þeim
við breytingu á greiðsluþátttöku Sjúkra-
trygginga Íslands.
Flogaveikilyf eru iðulega tekin reglu-
lega árum saman. Árið 2018 fengu rúmlega
15 þúsund Íslendingar ávísað flogaveiki-
lyfjum. eða um 4% landsmanna. Auk
ábendinga við flogaveiki er lyfjunum
ávísað við taugaverkjum, kvíða, geðhvarfa-
sýki o.fl. Gabapentín er mun meira notað
en önnur flogaveikilyf. Árið 2018 var
gabapentíni ávísað handa 8.500 einstak-
lingum og hefur fjöldinn tvöfaldast frá ár-
inu 2011. Árið 2018 fengu 13 einstaklingar
lyfinu ávísað frá 8 eða fleiri læknum. Til
samanburðar fengu rúmlega 14 þúsund
einstaklingar ávísað háþrýstingslyfinu
amlódipíni árið 2018 en enginn frá 8
eða fleiri læknum. Árið 2018 greindist
gabapentín í einhverju magni í sýnum
13 látinna einstaklinga af þeim 55 sem
voru til skoðunar hjá lyfjateymi embættis
landlæknis. Tvö dauðsföll voru á Íslandi af
völdum flogaveikilyfja árið 2018, eitt vegna
gabapentíns og eitt vegna pregabalíns og
zopiclons. Gabapentín hefur verið álitið
mjög öruggt lyf (sjá t.d. Sérlyfjaskrá).
Töluvert er ritað um misnotkun prega-
balíns, en gabapentín er einnig misnotað
þótt það gefi ekki eins mikla vímu og
pregabalín (www.who.int/medicines/
access/controlled-substances/Pregabalin_
FINAL.pdf?ua=1). Þessi lyf eru fyrst og
fremst misnotuð af einstaklingum sem eru
að misnota önnur lyf og ættu læknar að
vera meðvitaðir um þessa áhættu.
Heimildir
nowbase.org
Lyfjagagnagrunnur Embættis landlæknis.
Lyfjateymi Embættis landlæknis: Ólafur B. Einarsson sérfræðingur, Andrés Magnússon fíknigeðlæknir