Læknablaðið - feb. 2019, Side 3
Hlíðasmára 8
201 Kópavogi
sími 564 4104
Útgefandi
Læknafélag Íslands
Ritstjórn
Magnús Gottfreðsson,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Elsa B. Valsdóttir
Gerður Gröndal
Hannes Hrafnkelsson
Ingibjörg Jóna Guðmundsdóttir
Magnús Haraldsson
Sigurbergur Kárason
Tölfræðilegur ráðgjafi
Thor Aspelund
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaður
Gunnhildur Arna
Gunnarsdóttir
gunnhildurarna@gmail.com
Auglýsingastjóri og ritari
Esther Ingólfsdóttir
esther@lis.is
Umbrot
Sævar Guðbjörnsson
saevar@lis.is
Upplag
1950
Prentun, bókband
og pökkun á Íslandi
Prenttækni ehf.
Vesturvör 11
200 Kópavogi
Áskrift
16.900,- m. vsk.
Lausasala
1690,- m. vsk.
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta og
geyma efni blaðsins á rafrænu formi, svo
sem á netinu. Blað þetta má eigi afrita
með neinum hætti, hvorki að hluta né í
heild, án leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru skráðar
(höfundar, greinarheiti og útdrættir) í
eftirtalda gagnagrunna: Medline (National
Library of Medicine), Science Citation
Index (SciSearch), Journal Citation
Reports/Science Edition, Scopus og
Hirsluna, gagnagrunn Landspítala.
The scientific contents of the Icelandic
Medical Journal are indexed and
abstracted in Medline (National Library of
Medicine), Science Citation Index (SciSe-
arch), Journal Citation Reports/Science
Edition and Scopus.
ISSN: 0023-7213
LÆKNAblaðið 2019/105 55
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL
www.laeknabladid.is
„Sjálfstraust er lykillinn að góðu starfsumhverfi.
Ég vil sjá sjálfstraust hjá hverjum einasta starfs-
manni stofnunarinnar. Ég trúi því að við vinnum
öll í sama liði og ef stjórnandi ákveði að stýra
fólki, missi það sköpunargáfu sína. Það mun að-
eins vinna innan rammans sem þú setur. Alltaf,“
sagði Per Skaugen Bleikelia, forstjóri Martina
Hansens sjúkrahússins í Osló í upphafi Lækna-
daga 2019. Þeir voru haldnir í Hörpu dagana 21.-
25. janúar. Hann sagði góð sambönd grundvöll
góðs árangurs.
„Við þurfum sambönd. Við þurfum að tala við
hvert annað,“ segir Bleikelia sem ferðast gjarna
um á hlaupahjóli innan stofnunar sinnar „og seg-
ir hæ“ svo fólkið viti að hann sé á staðnum. „Bein
samskipti fara aldrei úr tísku. Þeim verður ekki
skipt út fyrir samfélagsmiðla.”
Fyrrum ráðuneytisstjóri
Bleikelia stýrði heilbrigðisráðuneyti Noregs á
árum áður á tíma 6 heilbrigðisráðherra. Hann
kom að stjórn við björgun á ungmennunum sem
urðu fyrir hryðjuverki Breiviks 22. júlí 2011 og
stýrði björgunarsveit Norðmanna þegar flóð-
bylgjan skall á Asíu um jólin 2004.
„Treystu böndin,“ sagði hann. „Gefðu fólki
tækifæri til að tala frjálslega og vertu viss um
hvert þú vilt stefna,“ sagði Per. „Og ef þú vilt
verða leiðtogi, þarftu að hafa margt fram að færa.
Ekki verða leiðtogi ef þú hefur ekkert að bjóða.“
Bleikelia sagði mikilvægt að hlusta á ólík sjón-
armið. „Fólk sem tjáir sig óheft er mikilvægast
innan spítalans.“ Hann fari að ráðum föður síns:
„Ég hlusta á fólk sem hefur aðrar skoðanir en ég.
Faðir minn sagði mér að ég yrði að hlusta. Ef ég
væri leiðtogi þyrfti ég að taka ákvarðanir sem
yrðu betri ef ég þekkti öll sjónarmið.“
Allir hlekkir í mikilvægri keðju
Bleikelia sagði hvert starf innan spítalans skipta
máli. Öll væru þau hlekkir í að lækna fólk.
Markmið hans væri að starfsfólk sæi að það
væri partur af liðsheild sem þyrfti að skilja hvert
grundvallarmarkmiðið væri: Að líkna sjúkum.
Hann sagði mikilvægt að mæla árangurinn.
Sýna fólki hvernig það stendur sig. „Fólk tekur
ríkari þátt ef þú segir þeim hver árangurinn er.
Ef þú segir þeim það ekki mun það ekki vinna
með þér. Þú verður að eiga samskipti. Ef þú gerir
það ekki, vinnur fólk ekki fyrir þig,“ sagði hann.
„Virðið hvert annað og vinnið saman. Búið
til sambönd og hafið skýr markmið. Gerið ein-
falda hluti,” sagði Per sem hefur hlotið verðlaun
sem stjórnandi. „Ég stjórna ekki til þess að vera
vinsæll, ég stjórna vegna þess að ég hef trú á
verkefninu og tel að ég vinni í mikilvægasta geira
heimsins: að hjálpa fólki. Læknar vinna gull-
fallegt starf,“ sagði Per Bleikelia að lokum.
„Ég stjórna ekki til þess að vera
vinsæll, ég stjórna vegna þess að ég
hef trú á verkefninu og tel að ég vinni í
mikilvægasta geira heimsins: að hjálpa
fólki.“
Gefa þarf starfsfólki sjálfstraust í starfi
Þetta segir Per Skaugen Bleikelia, forstjóri Martina Hansens sjúkrahússins í Osló
Per Bleikelia forstjóri hefur vakið athygli fyrir góða stjórn og hlotið fjölda verðlauna fyrir. Mynd/gag
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
PP-XAR-IS-0001-1 Nóvember 2018 XARD0188 – Bilbo
▼
a. NOAC: non-vitamin K antagonist oral anticoagulant/segavarnarlyf
til inntöku sem ekki er K vítamín hemill.
b. Sjúklingar með gáttatif án lokusjúkdóms.
Heimildir: 1. Patel MR, Mahaffey KW, Garg J, et al. Rivaroxaban versus warfarin
in non-valvular atrial fibrillation. N Engl J Med. 2011;365(10):883–91.
2. SmPC fyrir Xarelto, uppfært 08/2018. 3. SmPC fyrir Eliquis, uppfært 06/2018.
4. SmPC fyrir Pradaxa, uppfært 06/2018. 5. SmPC fyrir Lixiana, uppfært 07/2017.
Vörn gegn heilaslagi með einni töflu á dag2
GÁTTATIF ÁN LOKUSJÚKDÓMS
Hvaða NOACa þegar
hætta á heilaslagi
er mikil?1
Xarelto hefur staðfesta virkni og öryggi hjá
gáttatifssjúklingumb með hærra CHADS2-skor
en nokkuð annað NOAC1–5
Í 3. stigs klínísku rannsókninni ROCKET AF voru
87% sjúklinga með CHADS2-skor 3 eða hærra1