Læknablaðið - feb. 2019, Blaðsíða 35
LÆKNAblaðið 2019/105 87
Ólafur Þór Ævarsson geðlæknir segir
vinnuálag á læknum meira en hann hugði.
Það hafi komið honum á óvart hve margir
upplifi kvíða og depurð.
Læknar eru ekki hvattir nægilega
áfram í vinnu, starfsaðstæður þeirra eru
ekki alltaf nægilega góðar og starfslýs-
ingum er ábótavant. Þetta sagði Ólafur
Þór Ævarsson geðlæknir við Læknablaðið
eftir að hafa kynnt læknum niðurstöðu
könnunar sinnar á líðan og starfsumhverfi
lækna á Læknadögum. Ólafur segir ljóst
að vinnuálag á læknum sé mikið.
„Það er heldur meira, algengara heldur
en ég bjóst við. Það eru meiri einkenni,
eins og svefntruflanir hjá fleirum en ég
átti von á. Það kom mér á óvart hvað
margir eru með kvíða og depurð. Þessar
tölur eru allar í hærra lagi og skrifast á
álagið.“
Áreittar þrátt fyrir góða menntun
Ólafur segir kynbundna áreitið einnig
hafa komið á óvart. „Ég hafði ímyndað
mér að okkar konur yrðu minna fyrir
þessu. Þær eru vel menntaðar; eru í hærri
stöðu.“ Ólafur segir að niðurstöðurnar
sýni að læknar hafi ekki viljað þegja held-
ur tala opið um aðstæður sínar. „Fyrst
með því að svara könnuninni einlægt, og
svo með því að spyrja: Hvað getum við
gert?“
Hver eru næstu skref? „Að við vinnum
sem félag úr upplýsingunum. Brjótum þær
niður í þær einingar sem hafa mest gagn
af því og að við síðan tökum upp umræðu
við okkar vinnuveitendur og stjórnendur
og fáum þá með okkur í leikinn, sem og
heilbrigðisyfirvöld, um hvernig við getum
bætt stöðuna,“ segir Ólafur.
Áætlana þörf til að bregðast við
Ólafur telur að álagið á læknum eigi eftir
verða meira í umræðunni. „Núna erum
við búin að opna umræðuna. Nú er eðli-
legast að fræða fólk meira um eðli streitu,
fræða fólk um hvað hægt er að gera í
stjórnun til þess að draga úr streitu og búa
til forvarnar- og aðgerðaáætlanir,“ segir
hann og útskýrir betur.
„Forvarnaráætlanir eru víðtækari til
þess að takast á við hvernig við vernd-
um geðheilsuna og heilsuna almennt í
vinnunni. Aðgerðaráætlanir eru skipulag
á því hvernig bregðast á við þegar fólk tel-
ur sig til dæmis hafa orðið fyrir einelti eða
alvarlegum hegðunartruflunum,“ segir
Ólafur.
En hvað eiga læknar að gera nú þegar
ef þeir finna fyrir streitu? „Læknar eiga
að ræða um steituna, hugsa meira um það
hvernig þeir geta brugðist við og reyna
að átta sig á streituvöldum í lífi sínu og
hverju þeir geta breytt. Umfram allt eiga
þeir að hvílast.“
Ólafur ánægður með einlægni lækna
„Læknar eiga að ræða um
steituna, hugsa meira um
það hvernig þeir geta brugðist við
og reyna að átta sig
á streituvöldum í lífi sínu og
hverju þeir geta breytt. Umfram
allt eiga þeir að hvíla sig.“
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
# Podcast / Hlustaðu á Ólaf og Ölmu
í hlaðvarpi Læknablaðsins á heimasíðu þess.
Ólafur Þór Ævarsson kynnti niðurstöðu umfangsmikillar rannsóknar Læknafélagsins á Læknadögum í Hörpu. Rann-
sóknin hefur fengið mikla athygli samfélagsins. Mynd/Védís
ÍSLENSKI LÆKNIRINN – KÖNNUN Á LÍÐAN OG STARFSUMHVERFI