Læknablaðið - feb. 2019, Blaðsíða 48
100 LÆKNAblaðið 2019/105
„Í starfi mínu rekst ég oft á að konur geta
verið bæði hissa og örvæntingarfullar
þegar þær standa frammi fyrir breytt-
um líkama í kjölfar barnsfæðingar. Þær
áttuðu sig ekki á því hvaða afleiðingar
fæðing getur haft,“ segir Þorgerður Sig-
urðardóttir, sjúkraþjálfari og doktorsnemi.
Doktorsrannsókn hennar sýnir að 40%
kvenna sem fæða fyrsta barn sitt um
fæðingarveg finna fyrir áreynsluþvagleka.
Slíkur þvagleki mældist marktækt hærri
hjá þeim sem fæddu um fæðingarveg, en
23% kvenna sem fæddu með valkeisara
fundu fyrir leka og 19% þeirra sem fóru í
bráðakeisara fundu fyrir vandanum. Ýmis
sigeinkenni, eins og sig á blöðru, leghálsi,
legi, ristli og endaþarmi mælast einnig al-
geng í kjölfar fæðingar.
„Grindarbotnsvandamál kvenna eru
lýðheilsuvandi. Þau eru mjög oft upp-
haf óæskilegrar þróunar. Margar konur
detta út úr líkamsrækt og virkum lífsstíl
vegna einkenna frá grindarbotni. Það
eykur hættuna á öðrum lífsstílstengdum
vandamálum,“ segir Þorgerður, sem hefur
fengist við sjúkraþjálfun vegna grindar-
botnsvanda allt frá 10. áratugnum. Hún
kynnti niðurstöður sínar á 19. líf- og heil-
brigðisvísindaráðstefnu Háskóla Íslands.
Mikilvægt að fræða konur
„Mikilvægt er að benda konum á leiðir
til að takast á við vandann.“ Hún leggur
áherslu á að niðurstöðurnar hafi sýnt að
þótt áreynsluþvagleki trufli daglegt líf
margra trufli veikleikamerki frá enda-
þarmi og kynlífstengd vandamál meira í
kjölfar fæðingar. Alls svaraði 721 kona af
858 (84%) spurningalistanum eftir að hafa
fætt börn sín á Landspítala. Gagnasöfnun
stóð frá apríl 2015 til mars 2017.
„Þvagleki er aldrei eðlilegt ástand og
kynlíf á ekki að vera sársaukafullt, en er
það hjá ótrúlega mörgum konum,“ segir
hún í viðtali við Læknablaðið. Heilbrigðis-
starfsmenn tali oft ekki um þessa fylgi-
kvilla fæðinga. „Ég er mikill talsmaður
þess að allir beri ábyrgð á eigin heilsu,
en til þess að svo geti orðið verðum við
að fræða, því þekkingin gefur fólki vopn
í hendurnar til að takast á við vandann,“
segir Þorgerður.
Alls töldu 27% kvennanna þvag-
færaeinkenni trufla daglegt líf, 55% þeirra
töldu ristil- og endaþarmseinkenni trufla
sig. Þá töldu 13% þeirra sigeinkenni trufl-
andi fyrir daglegt líf og 47% kvennanna
höfðu áhyggjur af því sem þær töldu kyn-
lífstengd vandamál.
Hafa áhyggjur af kynlífinu
„Kynlífstengd atriði eru ekki mikið rædd.
Konur hafa áhyggjur af þeim, þær hafa
áhyggjur af því að vera ekki eins og áður
og þær glíma við sársauka, það er eitthvað
sem þarf að kenna konum að bregðast
við,“ segir hún.
„44% kvenna voru ekki orðnar kynferð-
islega virkar 6-10 vikum eftir fæðingu og
töldu 10% þeirra að kynlíf yrði sársauka-
fullt,“ segir Þorgerður. „64% kvenna sem
voru byrjaðar að stunda samfarir greindu
frá sársauka og 47% allra svarenda höfðu
áhyggjur af kynlífstengdum vandamálum.
Að missa þvag í samförum eða hafa ekki
nægilegan raka eru meðal þeirra.“
Fæðingin sé mikið álag fyrir líkamann
og konur verði að leggja ofurkonustimp-
ilinn á hilluna á meðan þær jafni sig.
Þær verði að hvílast og forðast að fara of
snemma af stað í ræktina.
„Við erum með alla þessa vefi neðarlega
í bolnum á okkur sem verða fyrir áhrifum
meðgöngu og fæðingar. Fæðingin sem slík
er jafngildi íþróttaáverka – bjúgur, bólgur,
tognun og vöðvaskaðar. Bandvefur og
vöðvar þurfa að jafna sig,“ segir hún.
Lífsstíll og æfingar svörin
Þorgerður telur að hátt svarhlutfall bendi
til þess að konur séu tilbúnar að ræða
einkenni sín þegar spurt er þó að þær geri
það ekki að fyrra bragði. „Það er afar mik-
ilvægt að heilbrigðisstarfsmenn fræði kon-
ur um áhrif fæðingar á kvenlíkamann og
bendi þeim á leiðir til að bregðast við. Þar
eru sterkustu vopnin; lífsstíll og æfingar.“
Þessum vanda kvenna sé ekki nægilega
fylgt eftir í kjölfar fæðinga hér á landi.
„Skoðun mín er sú að við þurfum sjón-
armið allra fagstétta til að vinna saman
þar. Stöður sjúkraþjálfara eru varla til í
heilsugæslunni eða mæðraverndinni. Við
þurftum að dekka þetta betur,“ segir hún
því konur hugsi oft minna um eigin heilsu
en beini í stað þess sjónum að nýfæddu
barni í kjölfar fæðingar.
„Við þurfum að horfa til Frakka. Þar fá
allar konur ákveðið marga tíma hjá sjúkra-
þjálfara eftir fæðingu. Það er partur af
mæðravernd og frítt eftir því sem ég best
veit. Við þurfum að bjóða konum farveg til
þess að leita lausna.“
„Kynlífstengd atriði eru ekki mikið rædd. Konur hafa áhyggjur af þeim,
þær hafa áhyggjur af því að vera ekki eins og áður og þær glíma við
sársauka, það er eitthvað sem þarf að kenna konum að bregðast við.“
40% kvenna finna fyrir þvagleka
eftir fyrstu barnsfæðingu
Þetta sýna niðurstöður spurningakönnunar sem 721 kona sem fæddi sitt fyrsta barn á Landspítala svaraði.
Þorgerður Sigurðardóttir segir grindarbotnsvandamál kvenna vera lýðheilsuvanda sem verði að taka á
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir