Hugur og hönd - 01.06.1988, Blaðsíða 4

Hugur og hönd - 01.06.1988, Blaðsíða 4
Arnheiður Jónsdóttir Arnheiður Jónsdóttir, formaður Heimil- isiðnaðarfélags Islands í 19 ár, lést há-’ öldruð í Hveragerði 15. des. 1987. Hún fæddist að Hæringsstöðum í Stokkseyr- arhreppi 10. jan. 1894. Arnheiður mun snemma hafa sýnt hæfileika og áhuga fyrir allri handa- vinnu. Hún sigldi til Kaupmannahafnar til þess að afla sér menntunar á því sviði, sat listiðnaðarskóla 1921—22. 12 árum síðar fór hún á ný til Danmerkur og tók þá handavinnukennarapróf. Eftir það var hún í mörg ár handavinnukennari við Kennaraskóla Islands og námsstjóri í handavinnu við barna- og gagnfræða- skóla Reykjavíkur var hún 1954—68. Auk þess starfaði Arnheiður mikið að fé- lagsmálum, hafði áhuga á uppeldis- heilsuræktar- og heimilisiðnaðarmálum og mörgum fleirum og var jafnan kjörin í forustulið þeirra félaga sem hún starf- aði í. Hlaut hún fyrir þau störf sín marg- háttaða virðingu og þökk sem dæmin sanna. Hún var gerð að heiðursfélaga í Náttúrulækningafélagi Islands, Norræna félaginu, Barnavinafélaginu Sumargjöf og Heimilisiðnaðarfélagi Islands (1974), en þar var hún formaður 1949—68 og varaformaður næstu 10 ár á eftir. Árin sem hún var varaformaður var hún einn- ig stjórnarformaður í verslun félagsins, Islenskum heimilisiðnaði, en hún bar jafnan hag hennar mjög fyrir brjósti. Arnheiður tók við HI á erfiðleikatím- um eftirstríðsáranna. Starfsemi félagsins hafði fallið í lægð á stríðsárunum meðan óeðlilega örar breytingar urðu á íslensku þjóðfélagi. Hvers konar gömlum heimil- isiðnaði var kastað á glæ, bæði sjálfu handverkinu og heimagerðum hlutum og þeim sem vinna vildu háði skömmtun eða alger efnisskortur. Síðar flæddu lit- sterk og gljáandi gerviefni inn í landið og allt heimafengið féll í skuggann, þótti hversdagslegt og ófínt. Þrátt fyrir þetta missti hópur kvenna aldrei trúna á framtíð íslensks heimilis- iðnaðar, þekkti vel undirstöðu hans, ís- lensku ullina, og vann ötullega að viður- kenningu hennar og breyttu verðmæta- mati. Segja má að störf þessara kvenna hafi borið ávöxt á 6. áratugnum þegar lopapeysan með hringúrtökunni kom fram. Hún varð fljótt mjög eftirsótt verslunarvara, skapaði fjölda heima- vinnandi kvenna atvinnu í misstórum stfl, varð ímynd íslensks heimilisiðnað- ar. Velgengni lopapeysunnar hygg ég að liggi að baki hinni miklu ullar- og prjónavöruframleiðslu sem enn er stund- uð í landinu, þó að höllum fæti standi hún nú. Árið 1948 var haldið í Reykjavík Nor- rænt heimilisiðnaðarþing, hið 6. í röð- inni og hið 1. á íslandi. Ef til vill hefur það haft örvandi áhrif á íslenskan heimil- isiðnað. En um þetta leyti fer starfsemi Heimilisiðnaðarfélagsins að vaxa fiskur um hrygg. Eins og áður er getið tekur Arnheiður við formennsku í félaginu 1949 og skulu hér nefndir helstu þættir starfseminnar í hennar tíð. Árið 1951 gekk HÍ til samstarfs við Ferðaskrifstofu ríkisins um rekstur heildsölu og smá- sölu. 1957 yfirtekur HI verslunina Is- lenskan heimilisiðnað og hefur rekið hana fram á þennan dag, 1959—83 að Laufásvegi 2 og síðan 1969 einnig í Hafnarstræti 3, þar sem hún er nú. 1962 var haldið mjög fjölmennt norrænt heim- ilisiðnaðarþing í hinum nýbyggða Iðn- skóla í Reykjavík með afar fallegri sýn- ingu sem mörgum er í fersku minni. Árið 1966 kom út í fyrsta sinn ársrit félagsins Hugur og hönd sem kemur nú út í 22. sinn og 1967 hófst reglulegur nám- skeiðarekstur sem síðar (1979) varð að Heimilisiðnaðarskólanum á Laufásvegi 2. Má nærri geta að ýmislegt hefur lagst á herðar Arnheiði íyrir þessar fram- kvæmdir. Á þessum uppgangsárum félagsins hafði Arnheiður með sér í stjórn mjög fórnfúsa og samhenta samstarfsmenn þar sem voru Helga Kristjánsdóttir, Sig- rún Stefánsdóttir og Ingibjörg Eyfells. Einnig var Stefán Jónsson, formaður HÍ 1968—81, farinn að starfa íyrir félagið. Allt þetta góða fólk var síðar gert að heiðursfélögum. Árið 1927 gekk HÍ í Heimilisiðnaðar- samband Norðurlanda og hefur síðan tekið þátt í þingum þess og sýningum sem haldin eru á þriggja ára fresti, þó ís- lenski hópurinn hafi jafnan verið fálið- aður. Kom jafnvel fyrir að Arnheiður færi ein á þessi þing, lagði á sig löng og erfið ferðalög með sýningarefni í farteski sínu. Arnheiður sýndi norræna sam- starfinu sérstakan áhuga og eignaðist marga góða vini gegnum þá vinnu. Á norrænu heimilisiðnaðarþingi sem hald- ið var í Reykjavík 1977 veitti finnska heimilisiðnaðarsambandið henni æðsta heiðursmerki sitt úr gulli fyrir forystu- hlutverk. Arnheiði Jónsdóttur vottum við virð- ingu og þökk fyrir áratuga störf í þágu Heimilisiðnaðarfélags Islands. Sigríður Halldórsdóttir 4 HUGUROG HÖND

x

Hugur og hönd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.