Hugur og hönd - 01.06.1988, Blaðsíða 36

Hugur og hönd - 01.06.1988, Blaðsíða 36
Ofnir gólfrenningar Falleg ofín gólfteppi eru heimilisprýði, enda virðist ríkja mikill áhugi fyrir þeim á vefnaðarnámskeiðum, í ýmsum stærðum og gerðum. Tvö- föld binding er sérlega hentug vefnaðargerð á mottur þar sem nota má þær báðum megin og lítil hætta er á að þær verði of linar. Hér birtast uppskriftir að tveimur gólfrenningum sem ofnir voru á vefnaðarnám- skeiðum í Reykjavík veturinn 1987—1988. Sama vefnaðargerð er á báð- um. I vefur er ofínn og hannaður af Ásu Gunnarsdóttur á námskeiði í Heimilisiðnaðarskólanum undir leiðsögn Elísabetar Þorsteinsdóttur. II vef óf og hannaði Málfríður G. Hákansson á námskeiði í Hússtjórnar- skóla Reykjavíkur, kennari var Jakobína Guðmundsdóttir. I vefur Stærð: 90 x 180 cm. Vend: Tvöföld binding. Uppistaða: Óbl. hör nr 8/4 (um 700 g). ívaf: Álafoss teppaband í 5 litum, undið þrefalt (um 2,5 kg). Skeið: 30/10, 1 þráður í hafaldi og tönn. í jöðrum 2x2 þræðir í tönn. Breidd í skeið: 96 cm. Þráðafjöldi: 292. Slöngulengd: 2,5 m. II vefur Stærð: 75 x 200 cm. Vend: Tvöföld binding. Uppistaða: Óbl. hör nr 8/4 (um 600 g). ívaf: Álafoss teppaband undið þrefalt, 2 litir. Skeið: 25/10, 1 þráður í hafaldi og tönn. í jöðrum 2x2 þræðir í hafaldi og tönn. Breidd í skeið: 81,6 cm. Þráðafjöldi: 208. Slöngulengd: 2,8 m. Ofið er með tveimur skyttum sem elta hvor aðra með viðeigandi litum. Alltaf er stigið í sömu röð á skammelin, þ.e. með beinu stigi (1,—2.—3.—4.). Annar litur- inn kemur þá á 1. og 3. skammel, en hinn á 2. og 4. Við kaflaskipti er litum víxlað þannig að þar koma einu sinni tvö fyrir- drög í röð með sama lit, þ.e.a.s. ef halda á áfram með sömu liti, sjá stigmunstur. Mjög mikilvægt er að gefa ríflega og jafnt upp í, þá hylst uppistaðan betur og ekki er hætta á að jaðrarnir dragist inn meira en eðlilegt er. Mæla verður kafl- ana ríflega (sérstaklega þá stóru) vegna þess að voðin skreppur þegar hún er tek- in úr vefstólnum. II vef er fyrsti ljósi kaflinn 40 cm lang- ur, þá kemur 5 cm tvískiptur kafli með skærari litum. Síðan koma til skiptis 30 cm ljósir kaflar og 7 cm þrískiptir kaflar, alls þrisvar sinnum og endað á 25 cm löngum ljósum kafla. Ofin lengd verður þannig um 180 cm. III vef er fyrsti og síðasti kaflinn um 20 cm langur. Síðan skiptast á 5 cm og 10 cm langir kaflar. Hægt er að ganga frá ofnum mottum á mismunandi vegu. Ása hefiir brugðið s.k. austurlenskan kant á sinn renning, sjá skýringarteikningu. Endarnir eru síðast dregnir með grófri jafanál inn í vefinn niður með uppistöðunni eða til baka gegnum fléttuna. Málfríður hefur hins vegar fléttað kögur með þremur tvö- földum þáttum. Afvikurnar eru notaðar til að hnýta inn í kögrið, til þess að gera það fyllra, sjá skýringarteikningu. Fléttað kögur og austurlenskur kantur. .Á i'&?'j ffitl 'Zþr- Z bt' . s X X cf X p i/t j-r X s ■ r~ — v_ — lX/ ~ ■ ~ ■ ■ ~ X - - < _ ... ■ _ ■ . ■ ■ ■ X ■ ■ 1 y 6 X 3 X X (^ -< f 'Z P c . 2* P C X X H ■; 1 V 1 <] o LL 5 </ z r. /<? þ ’o þt : <e t>< f 36 HUGUROG HÖND

x

Hugur og hönd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.