Hugur og hönd - 01.06.1988, Blaðsíða 14

Hugur og hönd - 01.06.1988, Blaðsíða 14
Islenskt víravirki Víravirki er gömul handiðn sem tilheyrir gull- og silfursmíði. Islenskt víravirki hefur nær eingöngu verið unnið úr silfri. í það eru notaðir silfurþræðir (vír). Al- gengast er að nota sívalan vír, 1 mm í þvermál, í uppistöður sem eru kallaðar höfuðbeygjur eða aðalbeygjur. Fyrst er vírinn valsaður flatur og síðan beygður í lauf eða önnur ytri form, eftir því hvað á að búa til. Fyrir upphlutsmillur, doppur, nælur o.fl. eru búin til ákveðin lauf. Til þess að þau verði alltaf eins er búið til mát, oftast teinar, reknir í kubb sem fer vel í hendi. Milli þessara teina er lengd þeirra laufa sem á að búa til og er vírinn þræddur á milli og beygður um teinana. Síðan er grindin jöfnuð til með flatri töng (flat- kjöftu) og kveikt saman. Þá eru laufin jöfnuð. Innan í er fyllt upp með beygjum sem unnar eru úr fínni vír. Notaður er sí- valur vír, 0,7 mm í þvermál. Vírinn er fyrst valsaður flatur, síðan skrúfaður, þ.e. dreginn í gegnum skrúflöð sem snýst og myndar rillur á brúnir vírsins (gerir hann eins og tenntan). Að lokum er vír- inn dreginn í draglöð til að jafna hann. Þá er hann tilbúinn til að búa til úr hon- um innanbeygjur. Að vísu þarf að eld- bera vírinn öðru hverju, því að við að valsa hann og draga stælist hann og verð- ur harður og stífur og vill þá gjarnan hrökkva sundur. Þess vegna þarf að eld- bera vírinn, þ.e. að hita hann með gas- loga til að mýkja hann. Þegar vírinn er tilbúinn er notuð töng með sívölum odd- um, s.k. beygjutöng, til að beygja rúllur og lauf sem síðan er raðað innan í og fyllt upp eftir ákveðnu munstri. Þegar búið er að fylla þannig upp í öll laufin eða uppi- stöðurnar þarf að festa þetta saman með kveikingu. Borið er lóðvatn á allan hlut- inn og stráð yfir slaglóði sem hefur verið sorftð niður í duft og blandað með bór- axdufti. Þetta er hitað með gasloga þar til slaglóðið bráðnar og kveikir þannig alla þræðina saman. Á þessu stigi er hver hlutur alveg flat- ur, þannig var eldra víravirkið. Það er sorfið með fínni þjöl að ofan og farið yfir með búffli sem er tréþjöl, klædd með fínum sandpappír. Einnig er sorfið að neðan. Nútíma víravirki er beygt til svo að það verður á lofti, stundum nefnt loft- víravirki. Kann það að draga nafn af öðru handverki í þessari iðn sem kallað var loftverk en er mjög sjaldséð núorðið. Algengast er að slá hlutinn aðeins niður í miðju og beygja síðan endana aðeins niður líka. Allir innri vafningar eru með gati í miðju. Notaður er bor til að snara úr og jafna götin (gera holu). Þá eru búin til korn og rósettur. í korn- in er notaður silfurvír sem er klipptur niður í jafnar stærðir, raðað á tréfjöl og partarnir hitaðir með gasloga þar til þeir skreppa saman í korn. Hverju korni er dýft í lóðvatn og síðan í slaglóðsduftið og sett á sinn stað (í sína holu). Ef rósetta á að vera (oftast höfð í miðju) er hún höfð til. Rósettan er búin til úr enn fínni vír, 0,4 mm. Vírinn er vafinn þétt utan um tein og verður eins og gormur. Með vasa- hníf eða líku áhaldi er farið á milli þráð- anna í gorminum, venjulega 2 og 2 þráða saman (auðveldar talningu á hringun- um). Síðan eru klipptir niður t.d. 6 eða 8 hringir saman, eftir því hve rósettan á að vera stór, jafnað í hring, dýft í lóðvatn og slaglóðsduft og sett á sinn stað og stærra korn í miðju. Þá er hitað með gas- loga til að kveikja öll kornin föst. Eftir hverja kveikingu er eldhúð á hlutunum, þeir eru því settir í sýru sem nefnist kokk (og er brennisteinssýra í vatni) og hituð. Þegar silfrið er orðið vel hvítt eru hlutirnir burstaðir upp úr hreinsilegi sem er búinn til úr kwillaia- 14 HUGUR OG HÖND

x

Hugur og hönd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.