Hugur og hönd - 01.06.1988, Blaðsíða 40

Hugur og hönd - 01.06.1988, Blaðsíða 40
Tvöfalt prjón Barnateppi Tvöfalt prjón er sérstætt að því leyti að það myndar tvær voðir sem bindast sam- an aðeins þar sem litaskipti eru í munstrinu. Verkið er jafn nothæft báðum meg- in, hvorki ranga né rétta, en litir gagnstæðir. Stærð: 63 X 86 cm. Efni: Safari bómullargarn, blátt og hvítt, um 300 g af hvorum lit. Prjónar: 70 cm langur hringprjónn. Fitjað er upp með báðum litum samtím- is. Fyrst 1 lykkja með báðum þráðum (jaðarlykkja), síðan er fitjuð 1 lykkja hvít og 1 lykkja blá til skiptis. Fitjað er með húsgangsfit, þannig að hvíti liturinn er á vísifingri og blár um þumalfingur þegar fitjuð er hvít lykkja en öfugt þegar blá lykkja er fitjuð. Þræðirnir eru snúnir saman um leið (alltaf á sama veg) svo að voðirnar festast saman að neðan. Fitjað- ar eru 126 lykkjur með hvorum lit, auk jaðarlykkja með báðum, samtals 254 lykkjur. Prjónað er eftir rúðumunstri þar sem ein rúða táknar 4 lykkjur, 2 bláar á ann- arri hlið og2 hvítaráhinni. Flverumferð er tvöföld, prjónuð tvisvar sinnum frá hægri til vinstri, fyrst með öðrum litnum og síðan með hinum, alltafí sömu röð, þ.e. ef fyrsta umferð er prjónuð, fyrst með bláa litnum og síðan þeim hvíta, verða allar umferðir að prjónast þannig. Fyrir hverja rúðuröð í munstrinu eru prjónaðar 3 tvöfaldar umferðir, þannig að 3 lykkjuraðir koma á hvort borð, talið eins og í venjulegu sléttu prjóni. Byrjað er að prjóna kant sem er blár á þeirri hlið sem við köllum til hægðar- auka ,,réttu“ en hvítur á ,,röngu“: 1. umferð: Jaðarlykkjaertekinóprjónuð, síðan eru allar bláar lykkjur prjónaðar sléttar með bláu en hvítu lykkjurnar teknar fram af óprjónaðar með bandið fyrir framan og jaðarlykkja tekin óprjón- uð. Þá er prjónað með hvítu frá sömu hlið, jaðarlykkja tekin óprjónuð, allar hvítar lykkjur brugðnar en bláu lykkj- urnar teknar óprjónaðar fram af með bandið fyrir aftan. Síðasta lykkja, jaðar- lykkjan, er nú prjónuð með báðum þátt- um. (Jaðarlykkjur eru alltaf prjónaðar eins og lýst er hér fyrir framan.) 2. umferð: Prjónað með bláu, bláar lykkjur brugðnar en þær hvítu teknar óprjónaðar. Prjónað með hvítu, hvítar lykkjur sléttar og bláar teknar óprjónað- ar. 3. umferð er prjónuð eins og 1. umferð. Nú er búið að prjóna sem svarar einni rúðuröð í munstrinu. 4. umferð, sem er fyrsta umferð í næstu rúðuröð, er prjónuð eins og 2. umferð og 5. umferð eins og 1. umferð. Þannig er 40 HUGUR OG HÖND

x

Hugur og hönd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.