Hugur og hönd - 01.06.1988, Blaðsíða 6

Hugur og hönd - 01.06.1988, Blaðsíða 6
Bókatíðindi Hugur og hönd hefur haft spurnir af eða borist í hendur eftirfarandi bækur. Kynningareintök frá útgefendum eru varðveitt í bókasafni Heimilisiðnaðarfé- lags Islands í Heimilisiðnaðarskólanum að Laufásvegi 2. FÖT FYRIR KRAKKA 7—12 ÁRA. Höf. Sigrún Guðmundsdóttir. Mál og menning, Reykjavík, 1988. 159 blaðsíð- ur. Þetta er þriðja bók Sigrúnar um fata- saum. Leiðbeiningar eru um snið og saum á ýmsum fatnaði fyrir börn á aldr- inum 7—12 ára með fjölmörgum vinnu- teikningum og litmynd af hverri flík. Auk þess fylgja bókinni tvær sniðarkir. Verð 2490 krónur. DEN KULTIVERADE NATUREN. Nordiska museets och Skansens árbok, Fataburen, 1987, Uddevalla, 1988. 260 blaðsíður. I bókinni eru greinar eftir marga höfunda sem tengjast á einhvern hátt ræktun. Sýnd eru dæmi frá ýmsum tímum um það hvernig maðurinn hefúr reynt að rækta og bæta náttúruna í kring- um sig. ULL. Hemligheter — Möjligheter — Fárdigheter. Studiebok. Höf. Kerstin Gustafsson og Alan Waller. LTs förlag, Stokkhólmi, 1987. 208 blaðsíður. Bókin fjallar um hina margvíslegu eiginleika ullar, fjárstofna, meðferð á ull frá því hún vex á sauðkindinni þar til hún er komin í flík. Stór hluti bókarinnar er um handspuna með ýmsum aðferðum og áhöldum. Verð um 300 sænskar krónur. FÁRG för ULL, SILKE, BOMULL, LIN. Höf. Margrét Kállberg. LTs förlag, Stokkhólmi, 1987. 94 blaðsíður. í bók- inni eru leiðbeiningar um kemiska litun á ull, silki, bómull og hör, ágrip af vefj- arefnafræði og litafræði, auk nokkurra uppskrifta fyrir prjón og vef. Verð um 175 sænskar krónur. RIPS. Fakta och tips om varprips. Höf. Catharina Carlstedt og Ylva Kongbáck. LTs förlag, Stokkhólmi, 1987. 105 blað- síður. Þetta er vefnaðarbók um þá vefn- aðargerð sem á íslensku hefur verið nefnd þráðabrekán. Fyrri hluti bókar- innar er m.a. um efni, uppsetningu og tækni. I síðari hluta eru 18 vefjaupp- skriftir. Verð um 190 sænskar krónur. SVENSK SLÖJD HISTORIA. Höf. Gertrud Grenander Nyberg. LTs förlag, Stokkhólmi, 1988. 205 blaðsíður. Þetta er saga sænsks heimilisiðnaðar. Tekið er á ýmsum þáttum, svo sem um tækni, verkfæri, alþýðulist, fatahefð o.fl. Einn- ig er kafli um heimilisiðnaðarhreyfing- una í Svíþjóð. Verð um 270 sænskar krónur. TÁLJA MED KNIV OCH YXA. Höf. Wille Sundqvist. LTs förlag, Stokk- hólmi, 1988. 141 blaðsíða. Bókin er kennslubók í að telgja og forma smáhluti úr tré. Fjallað er um hvernig á að brýna bitjárn, forðast óhöpp, leiðbeint um mis- munandi verkfæri, tækni o.fl. Verð um 235 sænskar krónur. Komin er út bókin ÞRÍHYRNUR OG LANGSJÖL Heimilisiðnaðarfélag íslands gefur bókina út í tilefni 75 ára afmælis síns. Megininntak bókarinnar er fyrirsagnir um prjón á þríhyrnum og langsjölum. Sigríður Halldórsdóttir vann uppskriftirnar aðallega eftir gömlum fyrirmyndum og samdi einnig nokkrar nýjar. Þær eru teikn- aðar á rúðupappír og úrvinnsla því mjög aðgengileg. ítarlegur leiðar- vísir fylgir uppskriftunum úr hlaði. Fallegar ljósmyndir tók Rut Hallgrímsdóttir. Bókin fæst hjá íslenskum Heimilisiðnaði, Hafnarstræti 3, Reykja- vík. Verð kr. 1875. STICKAT FRÁN NORDEN. Höf. Susanne Pagoldh. Anfang förlag AB, Stokkhólmi 1987. 120 blaðsíður. Höf- undur hefur ferðast um öll Norðurlönd og skrifað kafla um hefðbundið prjón í eftirfarandi löndum: Danmörku, Fær- eyjum, Grænlandi, íslandi, Noregi, Sví- þjóð, Álandseyjum og Finnlandi. Fjöldi litmynda er í bókinni og prjónaupp- skriftir frá öllum löndunum. Verð 200 sænskar krónur. SY I SAUESKINN. Höf. Ragnhild Huse. Landbruksforlaget, Osló, 1986. 68 blaðsíður. I bókinni eru ieiðbeiningar um hvernig ýmiss konar fatnaður er sniðinn og handsaumaður úr gæru- skinni. Ljósmyndir og skýringarteikn- ingar eru með saumaleiðbeiningum, auk þess fylgir bókinni sniðörk. Verð 105 norskar krónur. STRIKKING I NORGE. Höf. Anne Kjellberg, Ingebjörg Gravjord, Gerd Aarsland Rosander og Anne-Lise Svend- sen. Landbruksforlaget, Osló, 1987. 160 blaðsíður. Bókin er gefin út af Land- bruksforlaget í samvinnu við Norges Husflidslag og er byggð á farandsýning- unni „Strikking för og ná“ sem send var um allan Noreg. Hún varpar ljósi á norska prjónhefð og sögu, veitir innsýn í mikilvægan þátt kvennamenningar og almennrar menningarsögu. I bókinni er fjöldi mynda af hefðbundnu norsku prjónlesi, að hluta í lit. Verð 220 norskar krónur. SiGRlÐUR HAIiÞÓRSDÖTTlR ÞRÍHYRNUR OG LANGSJÖL HEIMILISIÐNAÐARFÉLAG fSLANDS 6 HUGUROG HÖND

x

Hugur og hönd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.