Hugur og hönd - 01.06.1988, Blaðsíða 8

Hugur og hönd - 01.06.1988, Blaðsíða 8
Alltaf sat amma Theó við glugga. Stóllinn hennar og saumaborðið voru á palli, naut hún þá birtunnar, sá betur út og hafði góða yfirsýn yfir steinana sína, sem fylltu gluggakistuna ásamt öðrum hlutum sérkennilegum úr ríki náttúrunn- ar. Glugginn minn er geislahýr geymir margt í leyni. I urðinni minni álfur býr inni í hverjum steini. Þegar angur að mér fer og eymsl í fornu meini léttir þraut að leika sér við lítinn álf í steini. bauka þetta eða ígrunda raulaði hún jafn- an fyrir munni sér ókennilegt stef, þekkt- ist ekki úr því nein laglína, og sögðu börn hennar það með ólíkindum, að hún hefði í æsku verið forsöngvari í Breiða- bólstaðarkirkju. Þau Katrín og Guðmundur höfðu efni á og tækifæri til að mennta börn sín. Dæturnar voru sendar í Kvennaskólann í Reykjavík en Olafur í Lærða skólann og varð hann síðar læknir. — Ég tel, að á þessum árum hafi amma verið meira fyr- ir bókina en formfastar hannyrðir, en hitt er víst að síðar á lífsleiðinni þegar hún var laus við stagl og stag, sem alltaf er hlutskipti húsmóður á barnmörgu heim- ili, notfærði hún sér það, sem hún lærði til verka í æsku. Ég man best eftir ömmu sitjandi við gluggann með kaffibolla og sígarettu og eitthvað milli handanna. Væri hún að prjóna lá opin bók á borðinu. Gat það verið enskur reyfari, sígilt verk á norður- landamálum, íslenskar bókmenntir eða alþýðufróðleikur. Hún prjónaði margvíslega muni, dúka og púða, trefla og teppi, en aldrei man ég eftir henni heklandi nema þá við frá- gang. Þó kunni hún vel til þeirra verka, því bæði á ég smádúk, þar sem hún hekl- ar utan um snæri, og svo sagði mér Helga Laufey, tengdadóttir hennar, listahekl- ari, að amma Theó hefði kennt sér list- ina. Ekki var hún mikið í vettlinga- og hosuprjóni, þó gerði hún háleista á kornabörn, sem voru með svo góðu lagi, 2- ber ég móður mína fyrir því, að erfitt var fyrir barnið að sparka þeim af sér. Á þessum árum prjónaði hún þó nokkra trefla og gaf vildarvinum. Þá prjónaði hún á lengdina á hringprjón úr íslensku eingirni og gátu verið í hverjum trefli allt 3. Mitt var starfið hér í heim heita og kalda daga að skeina krakka og kemba þeirn og keppast við að staga. Ég þráði að leika lausu við sem lamb um græna haga en þeim eru ekki gefin grið sem götin eiga að staga. 8 HUGUR OG HÖND

x

Hugur og hönd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.