Hugur og hönd - 01.06.1988, Qupperneq 19
í mörgum munum þeirra hjóna eru
geislandi litbrigði, t.d. tveir litir notaðir
samofnir, annar myndar mynstur en hinn
ef til vill bakgrunn eða óljóst ský. Litir
eru mismunandi gagnsæir og stundum er
annar litur að utan en innan í gripum.
Fínlegar línur eða teikningar vekja at-
hygli, ristar með tannlæknabor og síðan
brætt glerduft í sárið. Sandblástur er og
ein aðferð þeirra Bergvíkinga til skreyt-
inga. Og ekki er hvað síst áhugavert að
virða fyrir sér glerskúlptúrana sem
steyptir eru í mót. Sá ferill er ærið tíma-
frekur, því að fyrst þarf að móta hlutinn
úr leir og taka af honum gifsmót, sem
síðan er gert sandmót yfir og þá loks er
fljótandi glerinu hellt í. í upphafi starfs
síns notuðu Sigrún og Sören rúðugler í
verk sín, en eru mun ánægðari síðan þau
hófu notkun vandaðri efna, sem þau
flytja inn sjálf og skapa úr kristalstæra
hluti.
Margt í deiglunni
Listhandverksfólkinu í Bergvík hafa ver-
ið falin margvísleg verkefni, eins og að
útbúa verk fyrir kirkjur og gripi til tæki-
færisgjafa, bæði staka gripi og marga
eins. Eitt nýjasta verkið sem þeim var
falið er gluggaskreyting í verslunina Ep-
al í Rcykjavík.
Oft hafa þau Sigrún og Sören sýnt verk
sín bæði hér á landi og erlendis. Nú ný-
verið héldu þau farandsýningar á fjórum
stöðum í Þýskalandi og Belgíu, en sýn-
ingarnar stóðu yfir í heilt ár og lauk í
september á þessu ári. Þau eiga verk á
farandsamsýningunni „Nordisk glas
’88“ sem einnig stendur yfir á þessu ári,
og kom til Svíþjóðar eftir viðkomu á
þremur stöðum í Noregi. A listahátíð í
júní hér heima áttu þau verk á samsýn-
ingu í verslun Heimilisiðnaðarfélags Is-
lands, sem reyndar hefur haft á boðstól-
um verk þeirra frá upphafi, og síðla
Á
HUGUROG HÖND
5. Glermeistararnir Sigrún Ólöf Einars-
dóttir og Sören Larsen.
6. Kirkjumunir gerðir fyrir Ólafsvalla-
kirkju á Skeiðum, 1987. Silfurkrossar á
lokum eru eftir Einar Esrason, gu!l-
smið.
7. Skýringarmynd um vinnubrögð við
glerblástur.
8. Storkar og eðlur eftir Sigrúnu, 1988.
9. Dýraflaska (ilmflaska) Sigrúnar, 1987.