Fréttablaðið - 14.03.2020, Side 8
Café
Komdu í kaff i
AUSTURSTRÆTI • SKÓLAVÖRÐUSTÍG • LAUGAVEGI • AKUREYRI • VESTMANNAEYJUM
settu upp
vinnuaðstöðu
heima
31.995
SAMSUNG
GALAXY TAB A
10,1” SPJALDTÖLVA
SMT510NZSDNEE 29.995
NETGEAR
ORBI AC1200
MESH NETBEINAR
NGRBK12100PES 29.990
TRUST
VERO FULL HD
VEFMYNDAVÉL
TRUST22397 9.995
LENOVO
27’’ TÖLVUSKJÁR
65E0KAC1EU
TRUST
PRIMO
TÖLVUHEYRNARTÓL
TRUPRIMOHSBLK 1.490
um allt hús
stöðugt net
LOGITECH
ÞRÁÐLAUST
LYKLABORÐ OG MÚS
LTMK270NORDIC 5.495
dekkar
280m2
fyrir fjarfundinn
vertu tilbúinn
SAMGÖNGUR Sundabraut og tvö-
földun Hvalfjarðarganga eru meðal
þeirra sex samgönguverkefna sem
Vegagerðinni verður heimilt að
semja um við einkaaðila, sam-
kvæmt frumvarpi samgöngu- og
sveitarstjórnarráðherra sem lagt
var fram á Alþingi í gær.
Samninga við einkaaðila getur
Vegagerðin gert að undangengnu
útboði og eingöngu um sex til-
teknar framkvæmdir; Hringveg
norðaustan Selfoss og brú á Ölfusá,
Hringveg um Hornafjarðarf ljót,
Axarveg, tvöföldun Hvalfjarðar-
ganga, Hringveg um Mýrdal og jarð-
göng í Reynisfjalli og Sundabraut.
Heimild er til eignarnáms vegna
framkvæmdanna eftir reglum
eignarnámslaga. Kveðið er á um
að mannvirkin teljist til þjóðvega
þegar framkvæmdum er lokið.
Frumvarpið tekur einnig til
veggjalda fyrir akstur um þau sam-
göngumannvirki sem um ræðir sem
fjármagna myndu framkvæmdirn-
ar í heild eða að hluta, en gjaldtaka
fyrir hvert þeirra má ekki standa
lengur en 30 ár.
Vegna þess hve ólík verkefnin eru
með tilliti til aðstæðna, umferðar-
þunga, stöðu þeirra í skipulagi og á
samgönguáætlun verður Vegagerð-
inni heimilt að velja milli tveggja
kosta um gjaldtöku á hverjum stað.
Stofnunin geti falið einkaaðilum
að innheimta veggjald eða stofnað
sérstakt félag í þeim tilgangi eða
fela öðru félagi í ríkiseigu að sjá um
gjaldtökuna.
Samkvæmt frumvarpinu skulu
mannvirkin verða eign ríkisins við
lok samningstíma við einkaaðila án
sérstaks endurgjalds.
adalheidur@frettabladid.is
Sex samgönguverkefni
eru komin til þingsins
Samgönguráðherra hefur lagt fram frumvarp um sex samgönguverkefni sem
geta farið í einkaframkvæmd að hluta eða heild. Kveðið er á um veggjöld í
frumvarpinu. Sundabraut og tvöföldun Hvalfjarðarganga eru meðal verkefna.
Hringvegur við Selfoss og brú á Ölfusá: Nýr 3,6
kílómetra kafli. Nær frá vegamótum hringvegar og
Biskupstungnabrautar vestan Ölfusár og brú yfir
Ölfusá við Laugardæli og yfir á núverandi hringveg
austan Selfoss. Ætlað að auka umferðaröryggi og
spara tíma. Verkefnið er ekki á samgönguáætlun.
Áætlaður kostnaður er um 6.100 milljónir króna.
Áætluð meðalumferð 5.500 bílar á dag við opnun.
Hringvegur um Hornafjarðarfljót: 18 kílómetra kafli
sem liggur frá núverandi hringvegi við Hólm og um
Hornafjörð með brú yfir Hornafjarðarfljót, þverar
Hafnarveg og tengist inn á núverandi hringveg vestan
Þinganesvegar. 12 kílómetra vegstytting. Í tillögu að
samgönguáætlun er gert ráð fyrir blandaðri fjár-
mögnunarleið. Umhverfismati er lokið og veglínan á
skipulagi. Áætluð umferð við opnun 1.200 bílar á dag.
Axarvegur: 22 km leið sem nær frá vegamótum Skrið-
dals- og Breiðdalsvegar sunnan Skriðdals, yfir Öxi og
niður í botn Berufjarðar að núverandi hringvegi þar.
Gert er ráð fyrir miklum greiðsluvilja vegna mikillar
vegstyttingar (68 km miðað við hringveg). Verkið
er talið geta staðið undir að minnsta kosti helmingi
fjármögnunar einkaaðila. Umhverfismati er lokið
og veglínan í aðalskipulagi. Áætlaður kostnaður um
4.000 millj. króna. Áætluð umferð 220 bílar árið 2018.
Tvöföldun Hvalfjarðarganga: Undirbúningur ekki
hafinn og ekki er gert ráð fyrir fjármagni til fram-
kvæmdarinnar í samgönguáætlun. Stefnt á að um
hreina einkaframkvæmd/reiðugreiðsluleið verði
að ræða. Val á leið liggur ekki fyrir. Hagkvæmasti
kosturinn er talinn geta kostað 21.800 milljónir með
fyrirvara um mikla óvissu í jarðgangagerð. Umferð
7.300 bílar á dag 2018.
Hringvegur um Mýrdal og jarðgöng í Reynisfjalli:
Hugmynd að legu hringvegar sunnan Víkur með jarð-
göngum undir Reynisfjall og svo meðfram Dyrhólaós.
Ekki gert ráð fyrir fjármagni í samgönguáætlun. Um
einkaframkvæmd yrði að ræða. Vegstytting yrði
2 kílómetrar og umferðaröryggi aukið. Áætlaður
kostnaður 6.500–7.900 milljónir miðað við veglínu á
aðalskipulagi. Umferð um 2.600 bílar á dag árið 2018.
Sundabraut: Undirbúningur ekki hafinn og óákveðið
hvort gerð yrðu jarðgöng með lágmarksröskun á
starfsemi Sundahafnar eða lágbrú sem myndi þýða
endurskipulagningu Sundahafnar. Gert er ráð fyrir
hreinni einkaframkvæmd. Vegstytting frá Kjalar-
nesi til miðborgar um 7 til 9 kílómetrar. Áætlaður
kostnaður á bilinu 60.000 til 74.000 milljónir. Áætluð
umferð árið 2030: 32.300 bílar á brú eða botngöngum
yfir Elliðaárvog en 11.400 bílar á brú yfir Kollafjörð.
Áætlaður kostnaður miðast við núverandi verðlag. Óvissa er metin frá –5%/+20% Kostnaðarmatið er sett fram með fyrirvara um óvissu og
þann kostnaðarauka sem óhjákvæmilega hlýst af aðkomu einkaaðila að fjármögnun verkefnanna.
1 4 . M A R S 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð