Feykir - 28.11.2018, Blaðsíða 8
2 01 88
Uppáhalds tónlistartímabil? Ætli það sé
ekki bara frá ´60 og upp í ´70. Gæti trúað
því enda voru Bítlarnir, Presley og fleiri góðir
upp á sitt besta.
Hvaða tónlist fær þig til að sperra eyrun
þessa dagana? Maður er bara ánægður að
heyra eitthvert lag í útvarpinu sem manni
líkar. Það eru mörg lög sem maður hefur
ekki áhuga á að hlusta á og færir sig yfir á
aðra stöð til að finna eitthvað skárra. Ég er
nú aðallega að tala um rappið.
Hvers konar tónlist var hlustað á á þínu
heimili ? Á þessum tíma er ég var að alast
upp þá voru náttúrulega bara kórar og pabbi
söng líka mikið bara einn. Maður hafði
gaman af því að hlusta á það.
Hver var fyrsta platan sem þú keyptir þér?
Ég man nú bara eftir því þegar ég keypti
fyrstu Hljóma-plötuna. Það var æðislega
gaman. Ég keypti hana hér út á Krók og ætli
ég hafi ekki keypt hana hjá Itta. Ég hlustaði
á hana alveg fram á miðja nótt því mér
fannst hún alveg æðisleg.
Hvaða græjur varstu þá með? Það voru
Pioneer græjur. Þegar ég var búinn að gefa
út mína fyrstu plötu 1972, Bíddu við og
Nú er ég léttur, fékk ég frá útgefandanum
flottustu Pioneer græjur vegna þess hve
platan seldist vel. Þær eru til ennþá niðri í
kjallara hjá mér.
Hvert var fyrsta lagið sem þú manst eftir
að hafa fílað í botn? Þau voru mörg hjá
Hljómum en svo voru það Bítlalögin, I Saw
Her Standing There og ef við förum í rólegu
deildina, Yesterday.
Hvaða tónlist hlustar þú helst á í jólaundir-
búningnum? Jólatónlistin í útvarpinu mallar
bara undir.
Hvert var uppáhalds jólalag unglings-
áranna? Það var t.d. Gefðu mér gott í skóinn,
útsett af Þóri Baldurs fyrir Rúnna Júl, María
Baldurs söng það. Mér þótti útsetningin flott.
Hvaða lag getur eyðilagt fyrir þér daginn?
Það er ekkert lag sem hefur eyðilagt daginn
fyrir mér. Það er svo mikil tónlist í hausnum
á mér að ég þoli ýmislegt. Það væri þá
eitthvert rapplag sem engin melódía er í.
Þú heldur dúndurball í kvöld, hvaða lög
tekurðu til að koma öllum í stuð? Ég er
búinn að spila Nú er ég léttur og Bíddu við á
hverju einasta balli síðan þau komu út ´72.
Fólk biður um þetta ennþá og syngur með.
Undir bláhimni hefur verið vinsælt og nú
Ég er kominn heim. Það er frábært lag sem
Óðinn Valdimarsson söng inn á plötu með KK
sextettinum ´58. Heyrðist ekki mikið fyrr en
fótboltastrákarnir okkar fóru að gera það gott.
Það er með ólíkindum hvað fólk syngur með í
þessu lagi en það kunna þetta allir.
Þú átt þess kost að fara hvert sem er í
heiminum og skella þér á tónleika. Hvert
færirðu, á hvaða tónleika og hvern tækirðu
með þér? Ég myndi fara á tónleika með
Paul McCartney og það er ekki útilokað að
ég fari einhvern tímann. Mig langar rosalega
til að fara á tónleika með honum og láta
taka mynd af okkur saman. Hann er að vísu
þremur árum eldri en ég en hann klikkar
ekki. Við erum kannski ekki ósvipaðir því
hann tekur ekki pásu á tónleikum. Hann
sendir strákana í pásu og sest við píanóið
eða spilar á gítarinn. Þetta er snillingur.
Hvernig eru jólalögin best? Ég gaf út
jólaplötu 2013, sem ég ætlaði aldrei að
gera. En hún heppnaðist vel að mínu mati
og seldist ágætlega. En þau heyrast bara
„Ég vil bara heyra eitthvað brjálað stuð“
UMSJÓN
Óli Arnar & Páll Friðriksson
JÓLA TÓN-LYSTIN : Geirmundur Valtýsson / sveiflukóngur
Það þarf ekki að kynna Geirmund Valtýsson fyrir
neinum. Það kannast allir við sveiflukónginn
skagfirska og sennilega langflestir lesendur
Feykis sem hafa verið á balli með Hljómsveit Geirmundar, tjúttað, trallað og
jafnvel tekið fyrsta vangadansinn undir tónum Geira og félaga.
Það er að sjálfsögðu löngu kominn tími til að Geiri svari Tón-lystinni í Feyki og ekki
þótti síðra að fá hann til að svara Jóla-Tón-lystinni. Geirmundur er fæddur á lýðveldisárinu
1944 og ólst upp á Geirmundarstöðum hjá foreldrum sínum, Valtý Sigurðssyni og
Önnu Hjartardóttur. Hann segir fyrsta hljóðfæri sitt hafa verið harmonikku sem hann
og Gunnlaugur bróðir hans fengu lánaða hjá nágranna þeirra, Steinbirni heitnum á
Hafsteinsstöðum, þegar Geiri var ellefu ára gamall. „Þar byrjuðum við Gulli að æfa og
spila,“ segir Geirmundur.
Geirmundur hefur verið í ballbransanum í 60 ár en hann byrjaði að skemmta 14
ára gamall og margir halda því fram að hann hafi vart misst úr ballhelgi sl. 50 ár. Hann
hefur gefið út fjölda hljómplatna, á ótal lög sem hafa komið sér snoturlega fyrir í hugum
Íslendinga og það er fjallgrimm vissa fyrir því að það er stuð á balli með Geirmundi.
Hann segir það sem upp úr standi eftir langan feril vera fjölmarga tónleika sem hann
hefur haldið í Miðgarði, Hótel Íslandi, Austurbæ, Sjallanum og víðar, 60 ára afmælið
í íþróttahúsinu og þegar hann tók við fálkaorðunni á Bessastöðum. Og það er augljóst
hverjir voru helstu áhrifavaldar Geira í tónlistinni. „Bítlarnir náttúrulega átu mann upp,
Paul McCartney, eins og hann gerir ennþá reyndar,“ segir hann léttur.
ekki í útvarpinu, bara þau gömlu. Maður var
að reyna að koma einhverju nýju inn en það
bara tókst ekki.
Þú vaknar í rólegheitum á jóladagsmorgni,
hvað viltu helst heyra? Ég vil bara heyra
eitthvað brjálað stuð. Það er búið að vera
nóg af rólegheitunum fram að því.
Hvaða músík var helst blastað í bílnum
þegar þú varst nýkominn með bílpróf? Ég
held að ég verði að segja pass við þessu.
Ég er ekki viss um að það hafi verið komnar
neinar græjur í bíla þegar ég tók bílpróf.
Ef þú þyrftir að skjóta á á hversu mörgum
böllum þú hefur spilað í gegnum tíðina hver
heldurðu að niðurstöðutalan yrði? Ja, það
er bara eitt ball að jafnaði á helgi frá 1958.
Fólk verður bara að reikna það út. [Það gera
3120 böll en Feykir er fullviss um að talan
sé nær 5000.]
Hefurðu misst úr helgi í spilamennsku frá
því Hljómsveit Geirmundar var stofnuð?
Það hefur þá bara verið vegna veikinda eða
einhverra óviðráðanlegra ástæðna.
Er eitthvert eitt ball sem þú gleymir aldrei?
Já, það eru mörg böll sem sitja í manni.
Við vorum að spila austur á Egilsstöðum,
keyrðum norður á Akureyri og tókum flugvél
þaðan en þegar við vorum komnir miðja
leið í fluginu var okkur sagt að það væri svo
mikil þoka, dimmt og leiðindaveður að það
væri búið að loka vellinum á Egilsstöðum.
Þá sagði flugmaðurinn við þann sem var í
flugturninum: „Ég er hérna með hljómsveit
sem á að spila á balli þarna hjá ykkur í
kvöld,“ segir flugmaðurinn. „Heyrðu, er það
Geirmundur? Við opnum völlinn,“ segir hinn.
Ég man að við vorum mjög kvíðnir fyrir þessu
balli því að Pálmi Gunnarsson, sem var
óhemju vinsæll þá, var búinn að setja upp
ball á móti okkur á Reyðarfirði sem er örstutt
frá. En vegna þess að flugvöllurinn lokaðist
þá komst hann ekki með áætlunarvélinni
og við fengum ballið og allt fólkið, 7-800
manns. Það var æðislegt.
Ef þú gætir valið þér að syngja jóladúett
með hvaða söngvara sem er, lífs eða
liðnum, hver væri það og hvaða lag yrði
tekið? Ég er nú búinn að syngja jólalög með
Helgu Möller og fleirum, til dæmis Ég sá
mömmu kyssa jólasvein. Við erum búin að
syngja það oft í kringum jólin.
Hvaða tónlistarmaður hefur þig dreymt um
að vera? Ja, ég er búinn að vera innan um
mikla tónlistarmenn hér á Íslandi og vinna
með mörgum. Það eru náttúrulega Maggi
Kjartans og Gunni Þórðar. Maggi Eiríks er
mikið stórskáld og það sem hann hefur fram
yfir hina er að hann gerir ljóðin sín sjálfur.
Og það er alveg ofboðslega mikill munur. Ég
finn hvað það er pirrandi þegar ég er tilbúinn
með lag að geta ekki búið til textann sjálfur.
Ég get það reyndar en ég er bara svo lengi að
því. Ég hef enga þolinmæði til þess.
Hvaða plata skiptir þig mestu máli? Ég fer
inn á sjálfan mig ́ 89 þegar ég gaf út plötuna
Í syngjandi sveiflu. Hún skipti mig öllu máli
og kom mér inn á kortið. Þetta er safnplata
með Júróvísionlögunum sem ég hafði sent
í keppnina ásamt fáeinum rólegum lögum,
Ort í sandinn og Ég syng þennan söng.
Þessi tvö síðasttöldu seldu plötuna, að ég
held. Þessi plata skipti mig mestu máli.
Hvenær eru jólin komin? Ætli það sé ekki
bara þegar maður fer í messu á aðfangadag.
Svo náttúrulega þegar krakkarnir fara að
taka upp jólabögglana. Þá eru þau komin!
Geirmundur. MYND: PÉTUR INGI
7