Bændablaðið - 23.06.2016, Blaðsíða 28
Landsmót
hestamanna
á Hólum í Hjaltadal
27.06-03.07 2016
L
A
N
D
SM
ÓT HESTAM
AN
N
A
N
A
T
IO
N
AL HORSE SHOW
O
F
IC
E
L
A
N
D
Afar öflugar kynbótasýningar á þessu vori:
Arður frá Brautarholti hlýtur Sleipnisbikarinn
Landsmótsvorið 2016 hefur verið
afar öflugt hvað kynbótasýningar
varðar og hefur einkennst af
áhuga, góðri mætingu hrossa til
dóms og mögnuðum hestakosti.
Alls hafa verið kveðnir upp 1.242
dómar og hrossin eru 950 sem mætt
hafa til dóms. Þetta er aukning frá
landmótsárinu 2014 en þá voru
vordómarnir alls 1.202.
Ákveðið var í vetur að hverfa
frá einkunnalágmörkum sem hafa
ákvarðað þátttökurétt kynbótahrossa
á landsmótum og hafa þess í stað
ákveðinn fjölda efstu hrossa í hverj-
um flokki – miðað var við að hafa
165 kynbótahross á mótinu. Ljóst
er að afar öflug hross voru sýnd í
öllum flokkum í ár og töluvert háar
aðaleinkunnir þurfti til að komast
inn á mótið.
Ef stuðst hefði verið við sömu
einkunnalágmörk og giltu fyrir síð-
asta landsmót, þá hefðu rúmlega 340
kynbótahross unnið sér þátttökurétt
á þessu móti.
Vor nýrra afkvæmahesta
Eitt af því sem hefur einkennt vorið
er að nýir afkvæmahestar hafa
komið fram á vettvanginn með
athyglisverð afkvæmi. Margir af
þessum hestum vöktu fyrst athygli
sjálfir fjögurra vetra á Landsmótinu
á Vindheimamelum 2011. Má þar
nefna þá Arion frá Eystra-Fróðholti
og Ský frá Skálakoti en þeir eiga
báðir tvö afkvæmi á Landsmóti og
byrja afar vel sem afkvæmahestar.
Efsti fjögurra vetra stóðhestur-
inn inn á Landsmót, Valgarð frá
Kirkjubæ, er undan Sjóði frá
Kirkjubæ sem stóð efstur sjálfur á
Landsmótinu 2011.
Þá komu til dóms í vor fyrstu
afkvæmin undan Vita frá Kagaðar-
hóli og lofar það góðu en efsta
hryssan inn á mót í fjögurra vetra
Torfunesi. Eins hafa verið að koma
athyglisverð hross undan Hákoni frá
Ragnheiðarstöðum en hann á fjögur
afkvæmi á landsmóti nú og einnig
má nefna Trymbil frá Stóra-Ási en
hann á tvö afkvæmi á mótinu, þær
List og Lukku frá Þúfum.
Einnig má nefna stóðhesta sem
hafa verið að koma fram með fyrstu
II, Frakk frá Langholti, Korg frá
Ingólfshvoli og Lord frá Vatnsleysu.
Verðmætt er að sjá svo marga nýja
afkvæmahesta koma fram og áhuga-
vert verður að fylgjast með fram-
vindu þeirra til ræktunar.
Í vor voru sýnd á Akureyri fimm
afkvæmi Fáfnis frá Hvolsvelli.
Fáfnir er nú staddur í Þýskalandi en
það sem er merkilegt við þessar sýn-
ingar er að öll hrossin eru frá þeim
Agnari Þór og Birnu Tryggvadóttur í
Garðshorni á Þelamörk og telja allan
2012 árganginn úr þeirra ræktun.
Öll fóru þessi hross í góða dóma,
fjögur í fyrstu verðlaun og Sirkus
frá Garðshorni á Þelamörk er með
næsthæstu einkunn í fjögurra vetra
flokki stóðhesta inn á Landsmót.
Afar merkilegur árangur hjá þessu
magnaða ræktunarfólki.
Afkvæmahestar á landsmóti
Lágmörk vegna afkvæmasýninga á
stóðhestum miðast við kynbótamat
aðaleinkunnar eins og það reiknast
2016 og fjölda dæmdra afkvæma.
Öll dæmd afkvæmi hestanna liggja
til grundvallar kynbótamatinu. Öll
afkvæmi sem fylgja hestunum skulu
vera dæmd í kynbótadómi.
Heiðursverðlaunahestum skulu
fylgja 12 afkvæmi í sýningu en 1.
verðlauna hestum 6 afkvæmi. Til að
hljóta fyrstu verðlaun fyrir afkvæ-
mi þarf hesturinn að eiga 15 dæmd
afkvæmi og hafa að lágmarki 118
stig í kynbótamati aðaleinkunnar
en til að hljóta heiðursverðlaun fyrir
afkvæmi þarf að eiga 50 dæmd af-
kvæmi og hafa að lágmarki 118 stig.
Arður frá Brautarholti
fær Sleipnisbikarinn
Alls verða stóðhestar sem taka við
afkvæmaverðlaunum á Landsmóti
sjö en tveir taka við heiðursverðlaun-
við fyrstu verðlaunum fyrir afkvæmi.
Heiðursverðlaunahestarnir eru þeir
Arður frá Brautarholti með 122 stig
og 51 dæmd afkvæmi og Gaumur frá
Auðsholtshjáleigu með 118 stig og 72
dæmd afkvæmi. Það verður því Arður
sem tekur við Sleipnisbikarnum en þá
viðurkenningu hlýtur sá stóðhestur
sem efstur stendur til heiðursverðlauna
fyrir afkvæmi og er æðsta viðurkenn-
ing íslenskrar hrossaræktar.
Fimm efstu fyrstu verðlauna
hestarnir fyrir afkvæmi
Spuni frá Vesturkoti stendur efstur til
fyrstu verðlauna fyrir afkvæmi með
128 stig og 24 dæmd afkvæmi. Alls
voru sýnd undan honum 20 ný af-
er magnaður árangur.
Annar í röð til fyrstu verðlauna
fyrir afkvæmi stendur Álffinnur frá
Syðri-Gegnishólum með 123 stig og
23 dæmd afkvæmi. Álffinnur náði
lágmörkum til fyrstu verðlauna fyrir
afkvæmi í fyrra, þá einungis átta vetra
gamall sem er einsdæmi og frábær
árangur.
Í þriðja sæti er Grunur frá Oddhóli
með 119 stig og 17 dæmd afkvæmi.
Raðast Grunur ofar næsta hesti á
aukastöfum en í fjórða sæti er Seiður
frá Flugumýri II, einnig með 119 stig
og 17 dæmd afkvæmi. Í fimmta sæti
er svo Kjerúlf frá Kollaleiru með 118
stig og 17 dæmd afkvæmi.
Listar yfir afkvæmi sem koma
til með að fylgja feðrum sínum á
Landsmóti liggja fyrir og ljóst er
að hóparnir verða allir glæsilegir
og tilhlökkunarefni er að berja þá
augum.
Það stefnir í mikla veislu á
Landsmóti á Hólum þar sem glæsi-
leg kynbótahross munu koma fram
í öllum flokkum, veislu sem enginn
áhugasamur um ræktun og íslenska
hestinn má láta fram hjá sér fara.
Þorvaldur Kristjánsson.
Arður frá Brautarholti. Myndir / Kolbrún Grétarsdóttir
Spuni frá Vesturkoti.