Bændablaðið - 23.06.2016, Side 42

Bændablaðið - 23.06.2016, Side 42
42 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. júní 2016 Árið 1953 gaf Búnaðarfélag Íslands út bók Ásgeirs Jónssonar frá Gottorp, Forystufé. Mun ekki ofsagt að bókin varð strax mjög vin- sæl og hefur til áratuga verið meðal torfenginna gersema þar sem fornbókasalar landsins eiga langa biðlista kaupenda. Bókaútgáfan Sæmundur vinnur nú að endurútgáfu bókarinnar með margs konar ítarefni. Dýrasögur voru fyrrum vinsælt bókarefni og sköpuðu tengsl borg- arsamfélags við rætur sveitalífsins. Nægir þar að minna á frægar og eftirsóttar dýrasögur rithöfundanna Þorsteins Erlingssonar, Guðmundar Friðjónssonar, Elínborgar Lárusdóttur, Böðvars Magnússonar á Laugarvatni og Bergsteins Kristjánssonar frá Árgilsstöðum. Hér voru sagðar reynslusögur og þjóðsögur af dýrum, atferli þeirra, gáfum og óvanalegum uppátækj- um. Frásagnarstíllinn er sóttur til íslenskra þjóðsagna en sögurnar eru sagðar út frá sjónarhóli bændasamfé- lags þar sem saman hafði farið farsæld í búskap og gott samband bónda og búsmala. Hetjusögur af dýrum Sögur af forystufé falla hér í sérflokk að því leyti að vera í reynd hetjusög- ur. Forystuféð íslenska er einstakur fjárstofn sem var íslenskum beitarbúskap lífs- nauðsynlegur og barg oft og einatt búsmala og sauðamanni heim undan illviðrum og hættum. Sögur af for- ystufénu eru sveipað- ar aðdáun en um leið raunsæi enda um að ræða sögur af raun- verulegum atburðum og flestar geta þær talist samtímafrásagn- ir. Einstöku dæmi eru þó um sagnir sem gerast á önd- verðri 19. öld og hafa svo gengið manna í millum í munnmælum. Annað sem skapar sögum Ásgeirs í Gottorp sérstöðu er stílsnilld höf- undar og mögnuð meðferð málsins. Í formála bókarinnar 1953 kemur fram ótti manna við að með breytt- um búskaparháttum muni sögur af forystufé hverfa og víst er að hlut- verk þessara vísu skepna er annað en var meðan vetrarbeit var stunduð af kappi. En jafnframt vakir fyrir höf- undi að brýna fyrir bændastéttinni að varðveita áfram forystufé í landinu og má segja að sú brýning hafi hrifið. Mikið ítarefni og viðbætur Í bókinni sem kemur út nú hjá bóka- forlaginu Sæmundi er auk endur- prentunar um að ræða verulega viðbót frá fyrra riti. Bæði eru hér prentaðar sögur sem bárust Ásgeiri of seint fyrir fyrri útgáfuna en einnig nýtt efni um ræktun forystufjár frá árinu 1953 til okkar daga, æviágrip Ásgeirs í Gottorp og margs konar annað ítarefni, skrár og heimilda- tilvísanir. Bókin sem er nú litprent- uð verður prýdd fjölda glæsilegra ljósmynda úr forystufjárræktinni auk þess sem allar myndir eldri bókarinnar eru hér endurprentaðar. Fjöldi manns hefur skráð sig á lista sem kaupendur að bókinni en það tryggir viðkomandi gripinn á mun lægra verði en annars auk þess sem nafn viðkomandi birtist í sérstakri töflu fremst ritinu. Skrif frá gömlum þreyttum manni Í gögnum Ásgeirs frá Gottorp sem varðveitt eru hjá fósturdóttur hans, Kolbrúnu Steinþórsdóttur, er m.a. að finna frásagnir sem bárust of seint til að komast í bókina árið 1953. Þar á meðal eru nokkrar sögur frá Ólafi Pálssyni, bónda á Sörlastöðum í Fnjóskadal. Frásögn Ólafs er einlæg og blátt áfram en í niðurlagi bréfs biðst hann afsökunar og segir: „... þetta er illa skrifað, enda gjört á nótt- unni af gömlum þreyttum manni.“ Orðfæri Ólafs er sumt framandi í dag en hér er þó ekki nema á einum stað sem þarf orðskýringar. Í frá- sögninni af Fíólínu hinni tónelsku talar höfundur um samstæðuhús og að það hafi verið spil milli húsanna. Samstæðuhús voru samliggjandi hús og yfirleitt undir einu risi. Spilið sem hér er nefnt er það sem í dag er kall- Mæðginin Komma og Punktur á Gróustöðum eru meðal sögupersóna í síðari tíma frásögnum af Forystufé. Hjónin Ingibjörg Björnsdóttir og Ásgeir Jónsson frá Gottorp. Myndin er tekin eftir að þau brugðu búi og voru sest að í Reykjavík. Systurnar Kolbrún og Auður heima við bæjarhús í Gottorp. Myndin er tekin rétt um eða fyrir 1940. Hetjusögur af dýrum: Forystufé endurútgefin Forystusauðurinn Jóakim sem notaður var til sæðinga fyrir nokkrum árum. Í bókinni eru birtar eldri myndir sem voru í bókinni 1953. Þessi er á bls. 131 í gömlu bókinni með textanum: Vinir í sumarfríi.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.