Bændablaðið - 06.07.2017, Síða 14
14 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. júlí 2017
Björgvin Jóhannesson stýrir
Hótel Kötlu, rétt austan Víkur
í Mýrdal. Hann var á dögunum
kjörinn formaður Félags
ferðaþjónustubænda. Hann telur
að ferðaþjónustan á Íslandi sé á
réttri leið en vaxtarverkir hafi verið
óhjákvæmilegir í því að fylgja eftir
þeirri miklu aukningu ferðamanna
sem komið hafa til landsins á
síðustu tveimur árum.
Björgvin segir að eitt af verkefnum
ferðaþjónustunnar í landinu og Félags
ferðaþjónustubænda sé að koma
ferðamönnunum meira út á land – í
sveitirnar. „Ég held að ferðaþjónustan
á Íslandi sé á réttri leið í flestum
málum en vissulega fylgja ákveðnir
vaxtarverkir þessari miklu fjölgun
ferðamanna undanfarin ár. Vinsælustu
staðirnir eru orðnir ansi þétt setnir
á álagstímum og væri gaman að sjá
einhverja betri stýringu þar, til að
dreifa álaginu yfir daginn,“ segir
hann.
Nauðsynlegt að ríkið komi
að stuðningi
„Það ætti að vera mögulegt með
góðu skipulagi og samvinnu
rútufyrirtækjanna. Eins þyrftu
sveitarfélög í samvinnu við
ferðaþjónustuaðila á hverju svæði
að vera sneggri til við að koma upp
viðunandi salernisaðstöðu og tryggja
gott aðgengi og stýringu að vinsælum
stöðum svo náttúran láti ekki á sjá.
Ég held að það sé nauðsynlegt að
sveitarfélögin fái meira fjármagn frá
ríkinu til uppbyggingar á vinsælum
ferðamannastöðum, því eins og
staðan er núna er útsvar starfsfólks
og fasteignagjöld einu tekjurnar
til að standa undir kostnaði.
Ríkissjóður hefur gífurlegar tekjur
af ferðaþjónustunni í dag, sem er
frábært fyrir þjóðarbúið, en ég myndi
vilja sjá stjórnvöld duglegri í að skila
fjármagni til baka til greinarinnar til
uppbyggingar,“ segir Björgvin um
hvernig helst þurfi að bæta innviði
íslenskrar ferðaþjónustu.
Ferðaþjónustubændur hafa staðið
sig vel
En hvernig skyldu ferðaþjónustu-
bændur hafa mætt þessari
aukningu – margir hafa vafalaust
þurft að fara í uppbyggingu?
„Ferðaþjónustubændur hafa staðið
sig mjög vel í að auka flóruna í
afþreyingu úti á landi. Það er gaman
að sjá hversu margir möguleikar eru
nú í boði fyrir ferðamenn miðað
við hvernig staðan var fyrir um tíu
árum. Þetta á bæði við um gistingu,
afþreyingu og veitingasölu.
Margir ferðamenn eru sólgnir
í að upplifa söguna og tengjast
nærumhverfinu og þar koma
ferðaþjónustubændur sterkir inn.
Mikil eftirspurn er eftir afurðum beint
frá býli og upplifun gestanna verður
yfirleitt meiri og betri þegar eitthvað
sem kallast „local“ er á boðstólum.“
Fjölbreytt afþreying í boði við Vík
Björgvin er sem fyrr segir hótelstjóri
á Hótel Kötlu, sem er í eigu foreldra
hans. Hann hefur verið viðloðandi
ferðaþjónustuna þar allt frá því að
búskapur með sauðfé og hross var
aflagður í kringum 1990 og rekstur
bændagistingar hófst. Byrjað var að
leigja út tvö til þrjú herbergi en nú
telja þau 103 og starfa 40 manns á
Hótel Kötlu yfir sumartímann.
Vík er meðal vinsælustu
áningarstaða ferðamanna á Íslandi
og segir Björgvin að heimamenn
hafi haldið ágætlega í við fjölgunina
að undanförnu. „Já, mikill fjöldi
ferðamanna leggur leið sína í
Mýrdalinn og hefur uppbygging
í ferðaþjónustu verið umtalsverð
á síðustu árum. Reynisfjara og
Dyrhólaey hafa mikið aðdráttarafl
og fjölbreytt afþreying er hér
í boði, til dæmis jeppaferðir,
ísklifur, jöklagöngur, hestaleiga,
svifvængjaflug og veiði.
Þessi fjöldi ferðamanna hefur
haft þau jákvæðu áhrif á samfélagið
að hægt er að velja úr fjölda
veitingastaða, afgreiðslutími verslana
er rýmri og vöruúrval meira. Við
viljum fá fleiri gesti í Mýrdalinn, en
ekki endilega alla á sama tíma.
Innleiðing Vakans leiðir til
aukinnar fagmennsku
Að sögn Björgvins eru spennandi
tímar fram undan fyrir Félag
ferðaþjónustubænda, sem telur
um 180 félaga, og ýmis áhugaverð
verkefni í pípunum. „Vakinn
er til dæmis gæðakerfi fyrir
ferðaþjónustufyrirtæki sem verið er
að innleiða. Ferðamálastofa hefur
umsjón með verkefninu. Nokkur
fyrirtæki eru þegar komin með
vottun hjá Vakanum og enn fleiri í
umsóknarferli. Ég held að það séu
allir sammála um það að auka þurfi
gæði og fagmennsku í ferðaþjónustu á
Íslandi og Vakinn er klárlega verkfæri
sem ferðaþjónustuaðilar geta nýtt sér
til þess. Félag ferðaþjónustubænda
stefnir á að fjölga meðlimum í
Vakanum á næstu misserum. Ég held
að Vakinn geti verið gott verkfæri til
markaðssetningar en ég vildi samt
sjá meiri aðgreiningu á milli þeirra
sem eru meðlimir og þeirra sem kjósa
að vera fyrir utan Vakann, til dæmis
varðandi gjöld og starfsleyfi.“
Eitthvað virðist hafa hægt á fjölgun
þeirra erlendu ferðamanna sem
heimsækja Ísland, miðað við sama
tíma í fyrra. Fleiri afbókanir eru nú, að
sögn Björgvins, en áður og einnig hefur
dregið úr sölu á ferðum og gistingu.
„Þrátt fyrir þetta er útlitið ágætt núna.
Aukningin undanfarin ár hefur verið
óeðlilega hröð og þarf ekki að koma
á óvart að aðeins dragi úr henni, en
ég hef samt áhyggjur af því að þróun
gengismála – styrking krónunnar
– geti hægt enn meira á vextinum.
Íslandsferð erlendra ferðamanna er í
dag um 25–30 prósent dýrari en fyrir
tveimur árum. Þetta leiðir til þess að
fólk kaupir styttri ferðir og verslar
minna. Ef að svo við bætist hækkun
á virðisaukaskatti á ferðaþjónustu um
mitt næsta ár líst mér ekki á blikuna
– sérstaklega fyrir dreifbýlið og aðila
í Félagi ferðaþjónustubænda. Ég
er nú þegar farinn að verða var við
auknar afbókanir fyrir þetta sumar,
eitthvað sem við höfum ekki upplifað
síðastliðin ár. Ferðaþjónustan á Íslandi
þarf því að aðlagast fljótt breyttu
rekstrarumhverfi,“ segir Björgvin.
/smh
Ferðamenn sólgnir í
upplifun á sögunni
– Ferðaþjónustubændur hafa staðið sig vel í að auka afþreyingarmöguleikana
Fjölbreytt dagskrá í boði
á Hvanneyrarhátíð
Hvanneyrarhátíðin verður
haldin laugardaginn 8. júlí nk.
frá kl. 13.30 til 17 á Hvanneyri
í Borgarfirði. Þennan dag taka
heimamenn vel á móti gestum og
gangandi með fjölbreyttri dagskrá
fyrir alla fjölskylduna.
Upphaf hátíðarinnar má rekja til
Safnadagsins sem Landbúnaðarsafn
Íslands tók þátt í, og bauð þá
velunnurum sem og gömlum
nemendum að koma á Hvanneyri og
kíkja á safnið, sér að kostnaðarlausu
og hitta gamla félaga og vini. Nú
hefur Safnadagurinn verið færður
fram í maí og Hvanneyrarhátíðin
stendur nú sem sér viðburður
sem hefur vaxið fiskur um hrygg
undanfarin ár og fjöldi gesta
margfaldast á milli ára.
Heyvagnaakstur og opið fjós
Meðal dagskrárliða í ár eru
heyvagnaakstur, opið fjós hjá
Hvanneyrarbúinu, leiðsögn verður
um Yndisgarða, markaður í gömlu
íþróttahöllinni, leiðsögn um gömlu
Hvanneyrartorfuna með Sveini
Hallgrímssyni, tónlistaratriði, húsdýr
verða á staðnum og ýmsir leikir
verða í boði fyrir börnin. Eigenda-
og ræktendafélag landnámshænsna
mun einnig vera með sína árlegu
landnámshænsnasýningu á
hátíðinni. Þá mun matsala vera
á vegum Kvenfélagsins 19.
júní, Skemmunnar kaffihúss og
Hvanneyri pub.
Frítt á Lanbúnaðarsafnið
Frír aðgangur verður að Land-
búnaðar safni Íslands og ætla
konurnar sem standa að Ullarselinu
að leika listir sínar. Einn af
vinsælustu viðburðunum er innkoma
Fornbílafjelags Borgarfjarðar sem
mun stilla bifreiðum sínum upp
ungum sem öldnum til gamans ef
veður leyfir.
Tenging fyrrverandi nemenda
Bændaskólans við Hvanneyri er sterk
og hjá mörgum er það orðinn fastur
liður að sækja Hvanneyrarhátíðina
heim þar sem gamlir og góðir tímar
eru rifjaðir upp.
Formleg dagskrá hefst kl. 13.30
og lýkur henni kl. 17.00. Allar nánari
upplýsingar um hátíðina og dagskrá
má finna á Facebook-síðunni www.
facebook.com/hvanneyrarhatid.
Extreme Chill Festival
í Reykjavík 6.–9. júlí
Íslenska tónlistarhá-
tíðin Extreme Chill
Festival verður haldin í
Reykjavík helgina 6.–9.
júlí.
Hátíðin mun eiga sér
stað á sex mismunandi
stöðum í miðborginni, í
Húrra, Fríkirkjunni, Bíó
Paradís, Mengi, Lucky
Records & Miðgarður-
Center Hotels.
Extreme Chill Festival
er fjögurra daga tónlistarveisla þar
sem íslenskir og erlendir listamenn
með ólíkan bakgrunn á öllum aldri
mætast í sköpun sinni undir áhrif-
um íslenskrar náttúru. Þetta verður
leyndardómsfullt ferðalag um raf-
ræna Reykjavík.
Í ár kemur mikill fjöldi
listamanna fram á hátíðinni sem
verður með enn stærra sniði en áður.
Heimsþekktir tónlistarmenn á við
The Orb (UK), Mixmaster Morris
(UK), Courtesy (DK), Christoper
Chaplin (UK), Studnitzky (DE),
mæta íslenskum tónlistarmönnum í
hæsta gæðaflokki. Fremsta í flokki
má nefna Jónas Sen, Jón Ólafsson
& Futuregrapher, Gyða Valtýsdóttir,
Stereo Hypnosis, Reptilicus, Tonik
Ensemble, Mikael Lind, SiGRÚN,
Poco Apollo (Halldór Eldjárn) ofl.
Í tengslum við hátíðina í ár
verður frumsýnd í Bíó Paradís
heimildamyndin um The Orb „Lunar
Orbit“ sem hefur unnið til fjölda
verðlauna víða um heim: www.
lunarorbitfilm.com
Takmarkaðir miðar verða í boði í
ár og kostar passinn á hátíðina aðeins
7.900 kr. Við hvetjum því fólk til
að tryggja sér passa tímanlega en
síðustu ár hefur selst upp og komust
færri að en vildu. Passinn gildir líka
á tónleika The Orb laugardaginn 8.
júlí á Húrra.
Viðburðir:
6. júlí - Lucky Records (passi
gildir/Frítt inn)
6. júlí - Mengi (Miðasala við
hurð, takmarkaðir miðar í boði)
7. júlí - Bíó Paradís - Lunar Orbit:
The Orb Movie (passi gildir,
miðasala við hurð)
7. júlí - Húrra (Tryggvagata
22) passi gildir, dagspassi eða
miðasala við hurð.
8. júlí - Miðgarður - Center
Hotels - Frítt Inn.
8. júlí - Húrra (Tryggvagata
22) passi gildir, dagspassi eða
miðasala við hurð
9. júlí - Fríkirkjan, Reykjavík
(passi gildir, dagspassi eða miða-
sala við hurð.
FRÉTTIR
Björgvin Jóhannesson stýrir Hótel Kötlu
rétt austan við Vík. Hann er nýkjörinn
formaður Félags ferðaþjónustubænda.
Mynd / smh