Bændablaðið - 06.07.2017, Qupperneq 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. júlí 2017
Reynir Bergsveinsson minkaveiðimaður þrautseigur við að hemja fjölgun á villtum minkum við veiðiár og vötn:
Veiddi á sjötta hundrað minka
á yfirstandandi veiðitímabili
– Bændur í Ísafjarðarbæ beittu sér fyrir skipulögðu átaki í fækkun minka á sínu svæði og þar veiddust 55 dýr
Villiminkur getur verið mikill
skaðvaldur í lax- og silungsveiðiám
og vötnum. Þá er hann einnig
skæður í varplöndum mófugla og
einnig í æðarvarpi þar sem hann
á í harðri samkeppni við refinn.
Hreinsun með minkasíum sem
eru í umsjón Reynis Bergsveinssonar
minkaveiðimanns virðist muni skila
hátt á sjötta hundrað minka úr 16
sveitarfélögum á tímabilinu júlí 2016
til júlí 2017. Reynir er afkastamikill
við sína iðju og fer víða um land í
þeirri viðleitni að halda villimink
í skefjum. Oft án þess að fá mikla
umbun fyrir. Hann segir að víða sé
lítill skilningur á málinu og ekki
ósjaldan að sveitarfélög ráði til sín
minkaveiðimenn meira til mála-
mynda fremur en að þeim sé ætlað
að stunda veiðar.
Bændur á Vestfjörðum beittu sér
fyrir aðgerðum
Bændasamfélagið á svæði
Ísafjarðarbæjar beitti sér fyrir því
að skipulagt átak er hafið til þess
að fækka minkum á mikilvægum
svæðum svo sem æðarvörpum og
öðru. Vaskur á Bakka ehf., fyrir-
tæki Reynis, vinnur að skipulagi og
aðgerðum þar að lútandi.
Eingöngu er unnið með minkasíur.
Nokkrar gildrur voru lagðar á svæð-
in í október og vitjað var um þær
vestan Rafnseyrarheiðar í febrúar.
Þá var tekinn 21 minkur úr minkasí-
unum í Dýrafirði, Önundarfirði og
Súgandafirði.
55 minkar veiddust á
Ísafjarðarsvæðinu
Tala veiddra dýra á svæðinu var
53 minkar frá júlí /ágúst 2016.
Þegar veitt er í minkasíur er veiði-
tímabilum skipt síðari hluta júlí. Þá
fer að veiðast nýr minkaárgangur.
Nú er enn verið að veiða minkaár-
ganginn 2016. Lokatölur fyrir svæði
Ísafjarðarbæjar á veiðitímabilinu
sem nú er að ljúka voru 55 dýr.
Þar af veiddust 7 í Arnarfirði, 32
minkar í Dýrafirði, 14 í Önundarfirði
og 2 í Súgandafirði. Reynir segir að
þótt fá dýr hafi að þessu sinni komið
í síur í Súgandafirði þá sé það ekki
endilega vísbending um að stofninn
þar hafi minnkað svo mjög. Miklar
rigningar og vatnavöxtur í lækjum
og ám hafi gert það að verkum að
erfiðara hafi verið að finna heppilega
staði fyrir minkasíur en ella.
Þótt veiði á þessu tímabili sé
lokið, þá segist hann reikna með að
fara aftur af stað í ágúst og septem-
ber, en þá megi gera ráð fyrir að ná
hvolpum.
„Það verður samt að mínu
mati aldrei hægt að hreinsa svæði
Ísafjarðarbæjar alveg af mink. Þar
sem sjórinn hefur meira vægi en
árnar ræður minkurinn sér mikið
til sjálfur. Við árnar getum við hins
vegar ráðið því hvort við höfum hann
árið um kring eða hvort honum er
haldið í algjöru lágmarki.
Reynir telur litlum árangri skila
að nota einungis minkahunda við
veiðar á mink á vorin. Það sé röng
áhersla þar sem sjósilungurinn er þá
genginn niður.
„Minkurinn veldur langmestu
tjóni við árnar þegar hann hrekur
silunginn af hrygningarslóðinni í
september og október. Einnig þegar
hann hamstrar silung og lax á haustin
og það sem hann étur af fiski framan
af vetri.“
Minkurinn getur verið
afkastamikill við dráp
Reynir segir samt rangt að alhæfa um
að minkurinn drepi grimmt allt sem
hann kemst yfir. Það beri þó við öðru
hvoru að minkurinn strádrepi allt
kvikt í kringum sig. Vísar hann þar
m.a. til frásagnar Péturs í Ófeigsfirði
sem kom að varpi í úthallandi
varptíma í Hrútey við Ófeigsfjörð.
Þá hafi hann talið frá fjöruborði og
upp á eyju á milli fjögur til fimm
hundruð dauða æðarunga. Sagðist
Reynir hafa þráspurt Pétur hvort þar
hafi örugglega verið minkur á ferð
og taldi hann svo vera án nokkurs
vafa.
Annað tilfelli nefnir hann
vestur á Fossá á Hjarðarnesi í
Barðastrandarhreppi fyrir 40 árum.
Þar var stór varphólmi með um 200
æðarkolluhreiðrum. Endalaus ófrið-
ur var í varpinu og hurfu ítrekað egg
úr hreiðrum. Þá var fenginn maður
með minkahund. Fannst minkastegg-
ur í klettaglufu sem var búinn að
draga þangað til sín um 200 egg.
Minkurinn ekki hrææta
eins og refurinn
Reynir segir að minkurinn sé þó ekki
hrææta og leggist ekki einu sinni á
hræ sem hann hafi drepið sjálfur. Það
gerist þó á veturna að hann dragi upp
úr ám stóra silunga og láti frjósa og
geymi þannig til matar síðar. Hann
éti aldrei skemmda fæðu.
Ég man t.d. eftir einu dæmi úr
Fremri-Gufudal um 1975 til 1978. Í
fyrstu snjóum sá ég spor eftir mink
við ána fyrir neðan vatnið. Þau lágu
frá ánni og spölkorn upp í skóg sem
kalla má. Þar undir fönninni í þurr-
um lækjarfarvegi var minkurinn. Við
sonur minn stukkum til og skutum
minkinn, en hjá honum var tíu punda
lax sem hann var hálfnaður með að
éta. Hann byrjaði á að bryðja hausinn
og var kominn aftur að miðju.
Í einni af frægustu veiðiám á
norðanverðu landinu í fyrra voru
veiðimenn á öðrum bakkanum, en á
hinum bakkanum horfðu þeir á mink
koma með sjö punda lax upp úr ánni.
Þá nefndi einn veiðimað-
ur við mig, sem var að veiða í
Húnavatnssýslunni, að hann hafi
horft á mink sem gekk hreinlega á
botninum í einum hylnum. Stuttu
seinna stekkur tíu punda lax upp
úr hylnum. Að sögn veiðimannsins
var minkurinn þá klofvega aftan við
hausinn á fiskinum og hafði bitið sig
fastan við hnakkann og læst klónum
í tálknin.“
Reynir segir þetta engar lygasög-
ur eða ýkjur þótt lygilegar séu. Það
sé þó ekki algengt og svona lagað
gerist. Ekki geri svo sem heldur
mikið til þótt minkurinn taki einn
og einn stóran lax. Minkurinn geti
hins vegar lamað alla veiði í ám
með nærveru sinni. Tiltekur hann
dæmi af á sem hann kom að í fyrra
en vildi ekki að yrði nafngreind. Þar
hafi minkafjölskylda verið búin að
hreiðra um sig við þekktan veiði-
stað sem yfirleitt gaf mikla veiði.
Allur laxinn var orðinn svo styggur
af nærveru minksins að hann sýndi
engan áhuga á að bíta á agn sem
fyrir hann var lagt. Þarna voru líka
svanir sem ekki bættu ástandið fyrir
veiðimennina.
Mun betra ástand
í Reykhólasveit en áður
„Í Reykhólasveit er nú miklu betra
ástand en var fyrir tíu árum. Það er
fyrst og fremst, að ég tel, vegna þess
hvað við höfum veitt mikið.“
Fjölbýlishús byggð óafvitandi
fyrir minka
Reynir vill benda fólki í sveitum og
ekki síst sumarhúsaeigendum á að
það kunni að vera að búa til fínustu
fjölbýlishús fyrir minkauppeldi án
þess að gera sér grein fyrir því.
Þannig viti hann til þess að fólk hafi
verið að snyrta trjágarða sína og hent
hríslum í haug við lóðamörkin í þeim
tilgangi að láta það rotna og verða
á endanum að jarðvegi. Ef minkur
er á svæðinu þá nýti hann slíkt
með þökkum því betri vistarverur
fyrir mink sé vart hægt að finna. Í
greinaflækjunni getur hann nefnilega
búið haganlega um sig án þess að
eiga það á hættu að maðurinn komist
að honum. Þá getur hann líka verið
þar alveg óhræddur og í friði fyrir
ref og minkahundum sem komast
ekki í gegnum trjáflækjuna.
Sumarhúsafólk þarf
að vera á varðbergi
Reynir hefur líka bent sumar-
húsaeigendum á að vera vara um
sig ef minkur leynist á svæðinu. Þá
geti verið varasamt að skilja ungbörn
eftir eftirlitslaus utandyra í vögnum
eða kerrum. /HKr.
HLUNNINDI&VEIÐI
Hreinsun með minkasíum í umsjón Reynis Bergsveinssonar, á tímabilinu júlí 2016 til júlí 2017, virðist vera að skila
hátt á sjötta hundrað minka úr 16 sveitarfélögum.
Myndin sýnir 7 minka sem allir komu í aprílmánuði í eina minkasíu við Apa-
vatn. Minkarnir sóttu í félagsskapinn á fengitíma, einfaldlega allir minkar af
½ ferkm.–1 ferkílómetra. Veiðiaðferðin er þægilegri en ýmsar aðrar aðferðir,
bæði fyrir menn og minka. Afköst gildruveiða hafa verið metin í afköstum á
100 gildrunóttum. Hér eru það 7 minkar eftir 30 nætur.
Reynir að hreinsa úr minkasíu.