Bændablaðið - 06.07.2017, Page 31

Bændablaðið - 06.07.2017, Page 31
31Bændablaðið | Fimmtudagur 6. júlí 2017 Margar vel heppnaðar fyrir- myndir eru til staðar og þekk- ing á því hvernig standa megi að opnun og eflingu starfsstöðva opinberra stofnana af höfuð- borgarsvæðinu úti á landsbyggð- inni, en stefnu stjórnvalda skortir sárlega. Þetta má segja að hafi verið ein af niðurstöðum fundar sem Akureyrarstofa og Atvinnu- þróunarfélag Eyjafjarðar stóðu fyrir á Akureyri nýverið. Markmið fundarins var að hvetja stofnanir og fyrirtæki til að skoða þau tækifæri sem felast í því að styrkja starfsstöðvar sínar vítt og breitt um landið, m.a. með því að setja upp dreifða starfsemi með sérhæfingu og þekkingu á völdum stöðum eða með því að skilgreina störf án staðsetningar. Greint er frá ráðstefnunni á vefsíðu Akureyrarbæjar. Fram kom að nauðsynlegt sé að stjórnvöld taki grundvallarákvörðun um að byggja upp tvo borgarkjarna á Íslandi og að það sé góð leið til að tryggja jafnari dreifingu þjónustu og opinberra starfa á landinu og þar með byggðar. Vantar skýrari stefnu Guðmundur Baldvin Guðmunds- son, formaður bæjarráðs Akureyrar, ræddi augljósa kosti þess fyrir landsbyggðirnar og íbúa að fyrir- tæki og stofnanir byggi upp starfs- stöðvar víðar en bara þar sem mark- aður er stærstur og nefndi einnig að skýrari stefnu stjórnvalda um opinberar stofnanir skorti. Skúli Eggert Þórðarson ríkis- skattstjóri og Margrét Hauksdóttir, forstjóri Þjóðskrár, sögðu frá sínum stofnunum og tóku dæmi um hvern- ig má byggja upp öfluga og góða þjónustu þótt starfsstöðvar séu á fleiri en einum stað á landinu. Þegar embætti skattstjóra á landinu voru sameinuð undir einum hatti ríkisskattsjóra varð í raun til ný stofnun og miklar breytingar urðu m.a. með þeirri afleiðingu að störfum á starfsstöð á Akureyri fjölgaði. Starfsfólki Þjóðskrár á Akureyri hefur líka fjölgað jafnt og þétt á síðustu árum. Í máli beggja mátti heyra að það hvað Akureyri er öflugur þjónustukjarni, skipti miklu máli þegar lagt var af stað og ræður miklu um það hversu vel hefur gengið. Skúli nefndi sérstak- lega að Akureyri hafi marga þætti sem borg hefur og það hafi skipt sköpum. Rafræn stjórnsýsla forsenda þess að skipulag gangi snurðulaust Fram kom hjá báðum að rafræn stjórnsýsla er forsenda þess að þjón- usta og skipulag gangi snurðulaust fyrir sig. Þá nefndu þau bæði að til- vist Háskólans á Akureyri er og var grundvallaratriði í að árangur hefur náðst. Skipulag beggja stofnananna felur í sér að sérhæfð svið þeirra eru staðsett á Akureyri þannig að til verður sérþekking og teymi margra starfsmanna sem vinna að sömu verk efnum. Skúli nefndi sér- staklega að mikil tíðni flugferða milli Akureyrar og Reykjavíkur hafi verið stór þáttur í að byggja upp á Akureyri á sínum tíma og að fækk- un ferða á þessari leið hafi bitnað t.a.m. á fundarhaldi á Akureyri. Svavar Pálsson, sýslumaður á Norðurlandi eystra, var síðastur frummælenda. Hann brýndi fólk til dáða og sagði frá öflugri stefnu Dana í flutningi valdra stofnana frá Kaupmannahöfn. Danir hafa sett sér það markmið að 11,5% opinberra starfa verði flutt frá höfuðborgar- svæðinu. /MÞÞ Hefur þú tryggt þér tæki fyrir heyskapinn? Austur vegur 69 - 800 Selfoss // Lónsbakk i - 601 Akureyr i // Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir // Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is Mynd / Þórgnýr Dýrfjörð Ráðstefna um opinber störf á landsbyggðinni: Góðar fyrirmyndir til staðar en stefnu stjórnvalda skortir

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.