Bændablaðið - 06.07.2017, Blaðsíða 31
31Bændablaðið | Fimmtudagur 6. júlí 2017
Margar vel heppnaðar fyrir-
myndir eru til staðar og þekk-
ing á því hvernig standa megi
að opnun og eflingu starfsstöðva
opinberra stofnana af höfuð-
borgarsvæðinu úti á landsbyggð-
inni, en stefnu stjórnvalda skortir
sárlega. Þetta má segja að hafi
verið ein af niðurstöðum fundar
sem Akureyrarstofa og Atvinnu-
þróunarfélag Eyjafjarðar stóðu
fyrir á Akureyri nýverið.
Markmið fundarins var að
hvetja stofnanir og fyrirtæki til
að skoða þau tækifæri sem felast
í því að styrkja starfsstöðvar sínar
vítt og breitt um landið, m.a. með
því að setja upp dreifða starfsemi
með sérhæfingu og þekkingu á
völdum stöðum eða með því að
skilgreina störf án staðsetningar.
Greint er frá ráðstefnunni á vefsíðu
Akureyrarbæjar.
Fram kom að nauðsynlegt sé að
stjórnvöld taki grundvallarákvörðun
um að byggja upp tvo borgarkjarna
á Íslandi og að það sé góð leið til að
tryggja jafnari dreifingu þjónustu
og opinberra starfa á landinu og
þar með byggðar.
Vantar skýrari stefnu
Guðmundur Baldvin Guðmunds-
son, formaður bæjarráðs Akureyrar,
ræddi augljósa kosti þess fyrir
landsbyggðirnar og íbúa að fyrir-
tæki og stofnanir byggi upp starfs-
stöðvar víðar en bara þar sem mark-
aður er stærstur og nefndi einnig
að skýrari stefnu stjórnvalda um
opinberar stofnanir skorti.
Skúli Eggert Þórðarson ríkis-
skattstjóri og Margrét Hauksdóttir,
forstjóri Þjóðskrár, sögðu frá sínum
stofnunum og tóku dæmi um hvern-
ig má byggja upp öfluga og góða
þjónustu þótt starfsstöðvar séu á
fleiri en einum stað á landinu.
Þegar embætti skattstjóra á
landinu voru sameinuð undir einum
hatti ríkisskattsjóra varð í raun til
ný stofnun og miklar breytingar
urðu m.a. með þeirri afleiðingu
að störfum á starfsstöð á Akureyri
fjölgaði. Starfsfólki Þjóðskrár á
Akureyri hefur líka fjölgað jafnt
og þétt á síðustu árum. Í máli beggja
mátti heyra að það hvað Akureyri
er öflugur þjónustukjarni, skipti
miklu máli þegar lagt var af stað
og ræður miklu um það hversu vel
hefur gengið. Skúli nefndi sérstak-
lega að Akureyri hafi marga þætti
sem borg hefur og það hafi skipt
sköpum.
Rafræn stjórnsýsla forsenda þess
að skipulag gangi snurðulaust
Fram kom hjá báðum að rafræn
stjórnsýsla er forsenda þess að þjón-
usta og skipulag gangi snurðulaust
fyrir sig. Þá nefndu þau bæði að til-
vist Háskólans á Akureyri er og var
grundvallaratriði í að árangur hefur
náðst. Skipulag beggja stofnananna
felur í sér að sérhæfð svið þeirra
eru staðsett á Akureyri þannig að
til verður sérþekking og teymi
margra starfsmanna sem vinna að
sömu verk efnum. Skúli nefndi sér-
staklega að mikil tíðni flugferða
milli Akureyrar og Reykjavíkur hafi
verið stór þáttur í að byggja upp á
Akureyri á sínum tíma og að fækk-
un ferða á þessari leið hafi bitnað
t.a.m. á fundarhaldi á Akureyri.
Svavar Pálsson, sýslumaður á
Norðurlandi eystra, var síðastur
frummælenda. Hann brýndi fólk
til dáða og sagði frá öflugri stefnu
Dana í flutningi valdra stofnana frá
Kaupmannahöfn. Danir hafa sett sér
það markmið að 11,5% opinberra
starfa verði flutt frá höfuðborgar-
svæðinu. /MÞÞ
Hefur þú tryggt þér
tæki fyrir heyskapinn?
Austur vegur 69 - 800 Selfoss // Lónsbakk i - 601 Akureyr i // Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir // Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is
Mynd / Þórgnýr Dýrfjörð
Ráðstefna um opinber störf á landsbyggðinni:
Góðar fyrirmyndir til staðar
en stefnu stjórnvalda skortir