Bændablaðið - 06.07.2017, Qupperneq 32
32 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. júlí 2017
Mikið var um dýrðir hjá Knúti
Rafni Ármann og Helenu
Hermundardóttur, garðyrkju-
bændum og starfsfólki þeirra í
Friðheimum í Reykjum fimmtu-
daginn 29. júní. Þá var vígt nýtt
og fullkomið aðgerðareldhús og
skrifstofuhúsnæði sem byggt
hefur verið við garðyrkjustöðina.
Fjöldi gesta var við athöfnina
og þar á meðal umhverfisráðherr-
ann, Björt Ólafsdóttir, nokkrir
þingmenn, sveitarstjórnarmenn og
bændur og búalið úr nágrenninu.
Bauð Knútur gestina velkomna og
sagði að mikið hefði breyst frá því
þau Helena fluttu að Friðheimum
í Biskupstungum sem nú tilheyrir
Bláskógabyggð. Liðin væru 22 ár
síðan þau hófu þar búskap.
„Við fluttum 25 ára gömul upp í
sveit með þann draum í maganum
að vera með hesta og stunda garð-
yrkju. Við vorum mikið lánsöm að
detta niður á þennan yndislega stað.
Í þessari yndislegu sveit þar sem
okkur var tekið einstaklega vel. Frá
fyrsta degi var þetta sveitin okkar,“
sagði Knútur.
Hann sagði að þau hjón hafi
tekið svolítið stóra ákvörðun fyrir
átta árum með því að opna búið
fyrir gestum. Upphaflega hafi það
bara átt að vera lítil sæt hliðarbú-
grein þar sem þau gætu verið að
tína tómata við hliðina. Þetta sé nú
orðið svo miklu stærra og meira en
þau hafi óraðfyrir.
Auk hestasýninga og heimsókna
í hesthús fóru gestir að spyrjast fyrir
um hvort ekki væri boðið upp á
heimsókn í gróðurhús. Þau hafi
verið hálf hissa á því í byrjun og
spurt sjálf sig hvað fólk vildi eigin-
lega skoða í gróðurhúsi. Við nánari
hugsun hafi þau séð að það væri
auðvitað ekkert síðra að kynna fólki
gróðurhúsaræktunina en hestana.
Var í framhaldinu farið að bjóða
hópum upp á gróðurhúsaheimsókn-
ir þar sem fólki var kynnt tómata-
rækt eins og hún gerist heilnæmust.
Þetta vatt fljótt upp á sig.
Þegar garðyrkjustöðin var
stækkuð 2011 var byggð gestastofa
í leiðinni sem vígð var fyrir
nákvæmlega fjórum árum. Þá var
Sigurður Ingi Jóhannsson, þáver-
andi landbúnaðarráðherra, fenginn
til að klippa á borða.
Sagði Kútur að þetta hafi þróast í
það að nú væri opin þarna veitinga-
staður allt árið um kring þar sem
boðið er upp á afurðir gróðrarstöðv-
arinnar ásamt bakkelsi og öðru góð-
gæti sem galdrað er fram af meist-
arakokknum Jóni K.B. Sigfússyni
og samstarfsfólki á staðnum.
Ótrúleg staða
„Einhvern veginn hefði maður
aldrei trúað því fyrir fjórum árum að
hér væri hægt að reka veitingastað
100 kílómetra frá Reykjavík sem
væri fullur af gestum alla daga frá
tólf til fjögur yfir vetrarmánuðina.
Þetta sýnir okkur hversu gaman og
áhugavert það er að flétta saman
landbúnaði og ferðaþjónustu.“
Stóri draumurinn
„Þetta hefði þó aldrei orðið að
veruleika nema að við hefðum
fengið til okkar ótrúlega flottan
hóp af hæfileikaríku fólki. Það
hefur einhvern veginn laðast að
okkur yndislegt fólk sem hefur
byggt þetta upp með okkur af
alúð. Hér eru 47 manns að vinna
í sumar, en rétt rúmlega 30 yfir
vetrarmánuðina.
Með þessari stóru stund í dag
erum við komin með þetta í það
form sem okkur hefur dreymt um.“
Seldu tómatsúpu til Mexíkó
„Við fórum í það fyrir þrem árum
að opna litlu tómatabúðina okkar.
Hún varð svo vinsæl að ári seinna
opnuðum við vefverslun og höfum
verið að senda tómataafurðir um
allan heim. Mér fannst það t.d.
mjög gaman þegar við sendum 6
lítra af tómatsúpu til Mexíkó. Mér
fannst það svona eins og að selja
kaffi til Brasilíu. Þetta sýnir okkur
bara hvað er hægt að gera og hvað
möguleikarnir eru miklir.“
Knútur segir að allar þessar
vinsældir og þrengslin sem þau
hafi búið við m.a. í eldhúsinu,
sem stækkað hefur verið þrisvar
sinnum, hafi sýnt þeim að það yrði
að búa til betri vinnuaðstöðu.
Ráðist í að byggja
almennilegt eldhús
„Það var því ákveðið fyrir tæpu
ári að við myndum ráðast í að
byggja almennilegt eldhús og vera
með skrifstofuhúsnæði ofan á því
ásamt fundar- og kaffistofu. Þetta
er því eingöngu aðstöðuhús til að
gera vinnuaðstöðu okkar betri og
að betur fari um okkar starfsfólk.
Þarna eru tvö eldhús. Annars vegar
keyrslueldhús fyrir veitingastaðinn
og inn af því er vinnslueldhús sem
hægt er að vinna í þótt verið sé að
sinna gestum.“
Byrjað var að grafa fyrir húsinu
í byrjun desember á síðasta ári
og fyrstu steypu var hellt í mót
daginn fyrir Þorláksmessu. Síðan
hafa framkvæmdir gengið vonum
framar og þökkuðu Knútur og
Helena iðnaðarmönnunum fyrir
vel unnin störf og leystu þá út með
koníaksflöskum.
Knútur sagði að með nýju
aðstöðunni væri miðað við
að þar væri hægt að nýta alla
framleiðslu stöðvarinnar og búa
til úr því góðgæti. Hann sagði að
það hafi líka verið mikil guðsgjöf
að kynnast Jóni K.B. Sigfússyni.
Hann hafi haft svipaðar hugmyndir
og þau um hvernig hægt væri að
þróa staðinn áfram.
Myndir / HKr.
Nýtt og fullkomið eldhús opnað á Friðheimum
– „Erum komin með þetta í það form sem okkur hefur dreymt um,“ sagði Knútur Rafn Ármann
Flaggað fyrir Jónshúsi í Friðheimum.
Ármann.
mikinn heiður að fá að vinna með fjölskyldunni á Friðheimum og öllu því
einstaka starfsfólki sem þar starfar.