Bændablaðið - 06.07.2017, Page 48
48 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. júlí 2017
Kristín og Eugen sáu Stóra-
Kropp á ferð um landið og féllu
algjörlega fyrir staðnum.
Býli: Stóri-Kroppur.
Staðsett í sveit: Reykholtsdal í
Borgarfirði.
Ábúendur: Eigendur eru Kristín
Hjörleifsdóttir Steiner og Eugen
Steiner. Bústjóri er Bryndís
Brynjólfsdóttir.
Fjölskyldustærð (og gæludýra):
Kristín og Eugen eiga þrjú börn:
Hrafn, Svövu og Emblu. Á bænum
eru kettirnir Lilli litli og Tímon.
Stærð jarðar? 239 hektarar.
Gerð bús? Ferðaþjónusta og
hrossarækt.
Fjöldi búfjár og tegundir? 50
hross og 2 kettir.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum?
Ávallt byrjað á að gefa hestunum
og köttunum sem láta alveg vita
ef ekki er búið að bæta í dallinn
þeirra.
Svo spilast dagurinn bara dálítið
eftir verkefnum. Girðingar, viðgerðir,
ferðamenn, hestastúss og hugsa um
að halda öllu snyrtilegu.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin? Alltaf gaman að sjá
folöldin fæðast og líka þegar
gefið er útigang í vondum veðrum
hvað þau verða kát, finnst bara öll
bústörf skemmtileg.
Hvernig sjáið þið búskapinn
fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm
ár? Bara svona svipað og í dag,
ferðaþjónusta og hross.
Hvaða skoðun hafið þið á
félagsmálum bænda? Mættu oft
vera snarpari.
Hvernig mun íslenskum
landbúnaði vegna í framtíðinni?
Mjög vel ef rétt er á málum haldið.
Hvar teljið þið að helstu tækifærin
séu í útflutningi íslenskra búvara?
Hreinleiki íslenskra afurða.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Mjólk, kartöflur og kjöt.
Hver er vinsælasti maturinn á
heimilinu? Lambahryggur.
Eftirminnilegasta atvikið við
bústörfin? Get nú ekki tekið
eitt fram yfir annað. Finnst alltaf
frábært þegar ungviðið fæðist.
Svo finnst okkur stórkostlegt að
Faxagleðin er haldin hjá okkur í
ágúst sem er firmakeppni hesta-
mannafélagsins Faxa þar sem fólk-
ið kemur ríðandi og það er keppt og
svo grillum við saman og höfum
gaman.
Líf og lyst
BÆRINN OKKAR
Bakaður Brie-ostur og grillað flatbrauð
Bakaður Brie-ostur
– hunangs- og pecangljáður
Þessi réttur tekur bara augnablik
að útbúa og er hægt að njóta hans
með vinum við grillið, en svo er
líka bara hægt að baka hann
í ofni. Gott er að dýfa ristuðu
súrdeigsbrauði í ostinn eða smyrja
það með ostinum.
› Einn Brie-ostur eða annar
sambærilegur ostur
› Ein lúka pecan-hnetur um 150 g, gróft
hakkaðar
› ¼ bolli púðursykur
› 2 matskeiðar hunang
Hitið ofninn í 160 gráður.
Í skál blanda saman pecan-hnetum,
púðursykri og hunangi.
Setjið ostinn í grunnt fat eða eldfasta
pönnu og toppið með pecan-hnetum
og sykurblöndunni.
Bakið í 10–15 mínútur. Takið úr ofn-
inum og látið kólna ögn svo engin
brenni sig. Framreiðið með ristuðu
brauði eða stökku kexi.
Papriku- og chilihummus með
grilluðu flatbrauði
Geggjað nart til að bjóða upp á
undan og á meðan grillveislan er
undirbúin. Hummus með grilluðu
flatbrauði sem hefur verið penslað
með ólífuolíu og kryddað með góðu
salti og smá blóðbergi eða timjan.
Fyrir hummus:
› Lítil dós niðursoðnar kjúklingabaunir,
sem búið er að skola (flott að geyma
nokkrar kjúklinga sem skraut)
› ¼ bolli tahini sesam mauk (í krukku)
› 1 stk. brennd paprika (á grilli eða
kaupa klárar í krukku)
› ¼ bolli ferskur sítrónusafi
› Ein matskeið harissa chilikrydd eða
chilisósa
› ½ tsk. salt
› ½ tsk. malað cumin-duft
› ¼ tsk. malað kóríanderduft
Öllu hráefninu er blandað saman í
matvinnsluvél og unnið saman þar
til blandan er slétt. Hún er svo geymd
í kæli þar til brauðið er framreitt með
hummus til hliðar.
Fyrir grillað flatbrauð:
› Eitt stykki tilbúið pitsudeig (hægt að
kaupa tilbúið eða gera frá grunni)
› 2 msk. ólífuolía
› Ein tsk. blóðberg eða timjan
› ½ tsk. gott salt
Til að undirbúa flatbrauðið skaltu
byrja með því að hita grillið í 250
gráður.
Skiptu deiginu í tvennt. Rúlla út
hvorn helming á hveiti stráðu yfir-
sentimetra á þykkt – eða jafnvel
þynnra fyrir stökkt flatbrauð.
Penslið deigið með matskeið af ólífu-
olíu, og stráið yfir með ½ teskeið
af timjan og ¼ teskeið af góðu
flögusalti. Grillað í 4–8 mínútur.
Ofnbakaður eða grillaður
rabarbari með ís
og rauðum marengs
› 550 g rabarbari
› 85 g hrásykur
Aðferð
Hitið ofninn að 200 gráðum. Skolið
rabarbara og setjið í sigti, skera
rabarbarann í bita í fingurlengd.
Setjið rabarbarann í grunnt ofn-
fast fat eða kökuform með hliðum,
blandið saman við sykurinn, veltið
saman.
Lokið vel með álpappír og bakið í
15 mínútur. Fjarlægðu álfilmuna.
Sykurinn ætti þá að vera leystur
upp. Veltið bitunum og steikið í fimm
mínútur til viðbótar. Til að athuga
hvort rabarbarinn er tilbúinn skuluð
þið prófa að skera aðeins í hann með
beittum hníf. Rabarbarinn ætti að
vera mjúkur, en halda samt lögun
sinni. Framreiðið með ís, berjum og
marengs.
Berjamarengs
› 2 eggjahvítur
› 1 msk. frælaus rauð hindberjasulta
(við stofuhita)
› 6 dropar af rauðum matarlit
› 1⁄3 bolli af sykri
› 1⁄3 bolli sigtaður flórsykur
› Smjörpappír til að baka á
Hafið eggjahvítuna í stofuhita í 30
mínútur. Setjið smjörpappír á bök-
unarplötu.
Forhitið ofninn í 160 gráður.
Hrærið saman hindberjasultu og
matarlitnum í skál. Setjið til hliðar.
Blandið sykri og flórsykri saman
og setjið svo til hliðar. Þeytið
eggjahvíturnar með rafmagns-
hrærivél á miðlungshraða þar
til mjúk froða hefur myndast.
Bætið því við sykurblönduna, ein
matskeið í einu og þeytið í fimm til
sjö mínútur á meðalhraða – eða þar
til marensinn er stífur og glansandi
og sykurinn er búinn að leysast upp.
af marengsblöndunni varlega saman
við sultuna, svo er restinni varlega
blandað saman við.
Notaðu sprautupoka til að sprauta
marens í hjörtu, stangir eða bara
smyrja flatt á bökunarpappír
Setjið bökunarplötur í forhitaðan
ofninn. Slökkvið á ofninum. Látið
marengsinn þorna í ofni, með dyrnar
lokaðar í eina klukkustund eða þar
til þurr og skörp húð hefur mynd-
ast. Mikilvægt er að hann sé samt
enn ljós á litinn. Láttu hann kólna
á pappír. Taktu marengsinn varlega
af pappírnum og bjóðið upp á sem
skraut með berjum og góðum ís að
eigin vali.
MATARKRÓKURINN – BJARNI GUNNAR KRISTINSSON MATREIÐSLUMEISTARI
Stóri-Kroppur
Bryndís Brynjólfsdóttir.
Fjölskyldan
á Stóra-Kroppi.