Bændablaðið - 08.02.2018, Blaðsíða 7

Bændablaðið - 08.02.2018, Blaðsíða 7
7Bændablaðið | Fimmtudagur 8. febrúar 2018 „Það er augljóst að hraða þarf framkvæmdum eins fljótt og auðið er, einfaldlega vegna þess að hinn stöðugi straumur ferðamanna þarfnast þjónustu sem staðurinn getur ekki sinnt nema að litlu leyti við þær aðstæður sem nú eru,“ segir Kristján Valur Ingólfsson, vígslubiskup í Skálholti, vegna nýs vígslubiskupshúss sem stendur til að byggja á staðnum. Haldin var samkeppni um hönnun hússins og var dómnefnd sammála um að mæla með tillögu ASK arkitekta til frekari útfærslu. Áhersluatriði keppnislýsingar voru: Innra fyrirkomulag, aðlögun húss að nýrri starfsemi, aðkoma og tengingar við nærliggjandi umhverfi og mannvirki, samhljómur við aðrar byggingar og umhverfi Skálholts og hagkvæmni í byggingu og rekstri. Þjónustuhús fyrir ferðamenn Með breytingu á biskupshúsinu, frá því að vera heimili og móttökurými vígslubiskups, og aðstaða fyrir Skálholtsskórinn og organistann, verður nýja húsið þjónustuhús fyrir kirkjugesti og ferðamenn. Reiknað er með að framkvæmdir við húsið hefjist í byrjun sumars. „Ég er hvorki fagmaður né spámaður og ætla ekki að geta mér til um kostnað eða byggingalok,“ bætti Kristján Valur við þegar hann var spurður út í kostnað við framkvæmdina. /MHH Biskupshúsið í Skálholti fær nýtt hlutverk MÆLT AF MUNNI FRAM Á tímum misvirðingar karla á konum, þá er næsta víst að þær kenndir eru ekki nýtilkomnar. Í þingsal Alþingis veitti Kristinn J. Magnússon því eftirtekt að augu þingmanna mældu út þingkonu á leið í ræðustól: Gekk í salinn fljóðið frítt, fljótt það Einar kenndi. Ástartillit undur blítt eftir frúnni sendi. Brynjólfur í Þverárdal A-Húnavatnssýslu var mikill höfðingi á sinni tíð. Eitt sinn fylgdi hann úr hlaði góðum gestum sínum, þar á meðal var Þorsteinn Erlingsson skáld. Þorsteini þótti sérstakt af Brynjólfi að gefa sér tíma frá heyönnum til að fylgja gestum að þjóðbraut hjá Bólstaðarhlíð: Að gera sér með gestum kátt í glaumi og söng er hérna vandi, og með þeim ríða um miðjan slátt. Margt er skrítið á Norðurlandi. Þó er það máske mest um vert, sem mér var sýnt á þessum degi, Bólstaðarhlíð af þjóðbraut þvert, Þverárdalur á hvers manns vegi. Karl Kristjánsson, alþingismaður á Húsavík, var eitt sinn á ferð í áætlunarbíl ásamt fjölda fólks: Auðlegðin er eigi smá, og ekki smiðurinn gleyminn að láta sérstakt andlit á alla, er koma í heiminn. Til Karolínu Einarsdóttur magisters orti Karl: Þú átt flest í anda og æðum einmitt það, sem töfrar mig. Vildi ég á himinhæðum hleypa Sleipni og reiða þig. Karolína svaraði Karli: Orðalaus er ástin mín, örðum kvæðaglíma, en hestinum mínum heim til þín hleypi ég einhverntíma. Karl sat veislu þingmanna sem haldin var í London. Jón Pálmason frá Akri var meðal þingmanna, og ljóðaði til Karls: Enginn vafi er um það; ungum burt frá hrundum fíkjuviðar fýkur blað fyrr en varir, stundum. Karl svaraði að bragði: Gerum enga yfirsjón, er það fararkvöðin. Horfðu á brosin hýru, Jón heldur en fíkjublöðin. Síðan héldu þeir félagar heim til Íslands. Í flugvélinni orti Karl: Þó um loftsins léttu svið liðugt Faxi rynni, hafð‘ann ekki að hálfu við heimþrá minni og þinni. Þegar þeir félagar lentu hér heima var það fyrsta sem þeir heyrðu fréttnæmt, að einhver hefði sprengt „hafmeyjuna“ af stalli sínum í Reykjavíkurtjörn. Karl orti þá: Ómynd býður eyðing heim, -Auður brást með vörnina- enginn hefur uppi á þeim sem afmeyjaði Tjörnina. Hjörleifur Jónsson á Gilsbakka fyllir svo þennan þátt: Þegar aðrir laga ljóð, list og snilli finna, yla ég mér við aringlóð æskudrauma minna. Sæti ég lagi, sigli af gát sundin æ þótt bláni. Oftast ræ ég einn á bát, árarnar fæ að láni. 175 Umsjón: Árni Geirhjörtur Jónsson kotabyggð1@gmail.com Skálholt er einn af vinsælustu ferðamannastöðum landsins, enda koma þar margar rútur á hverjum degi ársins með ferðamenn. LÍF&STARF Svona mun biskupshúsið í Skálholti líta út samkvæmt tillögu ASK arkitekta. Uppbyggingarsjóður Norðurlands eystra hefur úthlutað alls 100 milljónum króna til menningar, atvinnuþróunar og nýsköpunar á starfssvæði Eyþings. Sjóðurinn er samkeppnissjóður og veitir verkefnastyrki til menningarverkefna, atvinnuþróunar og nýsköpunar auk stofn- og rekstrarstyrkja til menningarmála. Hann er hluti af samningi milli Eyþings og ríkisins um Sóknaráætlun Norðurlands eystra 2015–2019. Uppbyggingarsjóði bárust samtals 133 umsóknir, þar af 51 til atvinnuþróunar og nýsköpunar og 82 til menningar. Uppbyggingarsjóður samþykkti að veita 85 verkefnum styrkvilyrði að upphæð 100 milljónir króna. Samtals var sótt um rúmlega 271 milljón í sjóðinn að þessu sinni. Meðal verkefna má nefna að Ágúst Marinó Ágústsson hlaut eina milljón króna til að vinna að spænisframleiðslu. Búnaðarsamband S-Þingeyjarsýslu fékk hálfa milljón vegna verkefnis sem nefnist Matarauður Þingeyjarsýslu, Fræðasetur um forystufé hlaut þrjá styrki, ríflega 2 milljónir í allt, vegna þriggja verkefna, m.a. að koma upp útilistaverki við setrið og annars verkefnis sem ber nafnið Fjalla Bensi. Þá hlaut Hafsteinn Hjálmarsson 750 þúsund krónur til að setja upp kjötvinnslu á Gilsbakka, Heimskautagerðið á Raufarhöfn fékk eina milljón króna og Hjörleifur Hjartarson sömu upphæð til að vinna að hljóðleiðsögn um Dalvík. Verksmiðjan á Hjalteyri fékk 4 milljónir króna. Kvenfélagið Baugur í Grímsey hlaut styrk til að vinna að atvinnuskapandi hönnun í eynni. Vistorka hlaut tvo styrki, annan vegna verkefnis sem heitir Jarðefnalaus Hrísey og hitt vegna nýtingar á lífrænum úrgangi. Skjálftasetrið á Kópaskeri hlaut styrk og einnig Könnunarsetrið á Húsavík. Þróunarverkefni vegna grænþörunga hlaut sömuleiðis styrk og sjónvarpsstöðin N4 fékk 3,3 milljónir króna vegna verkefnis sem heitir „Uppskrift að góðum degi“. /MÞÞ Uppbyggingarsjóður Norðurlands eystra: 100 milljónir í styrki vegna margvíslegra verkefna Uppbyggingarsjóður Norðurlands eystra hefur úthlutað alls 100 milljónum króna til menningar, atvinnuþróunar og nýsköpunar á starfssvæði Eyþings.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.