Bændablaðið - 08.02.2018, Blaðsíða 25

Bændablaðið - 08.02.2018, Blaðsíða 25
25Bændablaðið | Fimmtudagur 8. febrúar 2018 TVÆR SÍÐUSTU VÉLARNAR Á TILBOÐSVERÐI 745 www.VBL.is REYKJAVÍK Krókháls 5F 110 Reykjavík Sími: 414-0000 AKUREYRI Baldursnes 2 603 Akureyri Sími: 464-8600 VERÐ MEÐ SKÓFLU kr. 3.698.000 án vsk. Verð miðast við gengi EUR 125 700 lína fjölnotatækjanna frá Avant er nú framleidd með nýju og endurhönnuðu vökvakerfi. HÉR ER Á FERÐINNI MJÖG AFLMIKIL VÉL Í ÞESSUM STÆRÐARFLOKKI OG MEÐ GÓÐUM BÚNAÐI TIL AFGREIÐSLU STRAX Á EINSTAKLEGA HAGSTÆÐU VERÐI SMÁRATORGI | GLERÁRTORGI | KRINGLAN | LINDESIGN.IS ÍSLENSK HÖNNUN FYRIR FERÐAÞJÓNUSTUNA Rúmföt, lök, sængur, koddar, handklæði, svuntur, dúkar og púðar. Fáðu tilboð hjá okkur. sala@lindesign.is, sími 533 2220 RAFKNÚINN BRETTATJAKKUR VISTVÆNN / HYBRID með Lithium rafhlöðu. Leiser skornir gaflar eru sterkir og sniðnir til að fara auðveldlega inn og út úr bretti. Tekur innan við mínútu að skipta um rafhlöðu. Verð 157.000kr + vsk UK/PG stórnbúnaður. Hágæðamótor. Traust drifhjól. Einfaldur í notkun, léttur og meðfærilegur (125kg). Tekur 1,5 tonn. Er stöðugur og snýst á punktinum við þröngar aðstæður, t.d. í gámum og sendibílum Bretti tjakkað upp, einsog á handdrifnum brettatjökkum, en hjól rafdrifið. Ein rafhlaða og hleðslutæki fylgir. Rafhlaða endist í 200 klst. ETNA ehf. Upplýsingar í síma 698-1539 og til sýnis hjá PMT Krókhálsi 1 Fyrirspurnum til siggi@pmt.is, svörum með upplýsingum í tölvupósti eigi sér stað á endurheimt votlendis eins og gerðar hafa verið í skógrækt. „Landgræðsla ríkisins er að vinna að þessum rannsóknum. Eftir því sem þeim vindur fram verður hægt að tala um endurheimt votlendis á sama grunni og skógrækt hvað varðar CO2 bindingu. Þá fyrst verður hægt að velja aðgerðir með tilliti til árangurs og skilvirkni. Rétt er þó að taka fram að rannsóknirnar og vöktunin þurfa að fara fram samfara aðgerðum og því þarf að byrja á nokkrum endurheimtarverkefnum á mismunandi stöðum til að ná að fanga breytileikann í árangri.“ Meðaltalsbinding CO2 á hektara í skógrækt Þröstur segir að binding CO2 í skógrækt hér á landi sé breytileg frá ári til árs vegna mæliaðferðanna sem notaðar eru. „Nýjasta talan í ræktuðum skógum á Íslandi er 7,7 tonn CO2 nettómeðalbinding á hektara á ári og er þá búið að draga losunina frá. Stór hluti af mælingunum er til að ná utan um breytileikann, sem er gríðarlegur og allt frá því að vera svolítil losun og upp í að vera heilmikil binding upp á tugi tonna CO2 á hektara í sumum skógum í einstökum árum. Einnig er munur á milli landgerða og trjátegunda þegar kemur að bindingu og losun CO2. Það sem skiptir aftur á móti mestu máli er mismunurinn á losun og bindingu, það er að segja nettóútkoman.“ Að sögn Þrastar er ekki hægt að flokka tré í lauf- eða barrtré með tilliti til CO2 bindingar. „Lauftré eru til dæmis bæði íslensk birki og alaskaösp sem vex tíu sinnum hraðar. Breytileiki milli landgerða hefur einnig að segja þegar kemur að bindingu einstaka tegunda. Land sem er mest í framboði til skógræktar hér á landi er rýrt, fyrrverandi beitiland, mólendi eða rofið land. Í þess konar landi vex lerki og stafafura best og eru tegundirnar sem binda hvað mest við slíkar aðstæður. Birki vex hægt og bindur hægar en finnst á víðáttumiklum svæðum og heildarbinding í birki er því talsverð. Í frjósömu framræstu landi er hægt að ná miklum vexti með alaskaösp og sitkagreni og því mikilli bindingu. Hins vegar á sama tíma ef það á að vera skynsemi í ákvarðanatöku á að horfa á slíkt land og spyrja sig hvort eigi að nota landið til ræktunar, beitar, skógræktar eða endurheimtar votlendi. Niðurstaðan fer svo eftir markmiði landeigandans og legu landsins því sums staðar er betra að bleyta upp land en annars staðar, sums staðar er landið þegar blautt og því lítið gagn í að fylla upp í skurðina, sums staðar er skógrækt besti kosturinn. Eins og staðan er í dag er ekki búið að fanga þennan breytileika sem óhjákvæmilega verður við endurheimt votlendis og það þarf nokkurra ára rannsóknir til að geta rætt um málið af skynsemi og svo raunhæft sé að bera saman möguleikana.“ Úthlutun fjár til skógræktar Framlög ríkisins til skógræktar á fjárlögum er í grófum dráttum skipt í tvennt. Annars vegar rekstrarfé og hins vegar framlag til skógræktar á lögbýlum. Að sögn Þrastar sér Skógræktin um að úthluta framlaginu til skógræktar á lögbýlum samkvæmt lögum um landshlutaverkefni í skógrækt frá 2006. „Landshlutaverkefnin, sem voru fimm, og Skógrækt ríkisins voru sameinuð í eitt árið 2016 og síðan þá höfum við verið að samræma reglur um úthlutun fjármagns. Lögin eru góð sem slík en ná ekki til allra smáatriðanna og þess vegna höfðu reglur um hvernig ákveðin verkefni voru styrkt þróast á mismunandi hátt á milli landshlutaverkefnanna og núna erum við að vinna í að samræma reglurnar í samstarfi við Landssamband skógareigenda.“ Stefna í skógrækt á Íslandi Aðspurður um heildarstefnu um skógrækt á Íslandi segir Þröstur að Skógrækt ríkisins hafi farið í þá vinnu samkvæmt bréfi frá landbúnaðarráðherra fyrir um tíu árum. „Sú vinna tók tíma og árið 2013 kom út skýrsla sem heitir Skógrækt á tuttugustu og fyrstu öld og þar kemur fram hvað við viljum leggja áherslu á í skógrækt. Á meðan skýrslan var í vinnslu urðu ráðherraskipti og nýi ráðherrann vildi ekki gera neitt meira með skýrsluna og ekki leggja hana fyrir Alþingi og fá samþykkta sem þingsályktun. Pólitískur vilji hans var ekki til þess. Þar með er skýrslan orðin að innanhússplaggi hjá Skógræktinni sem við fylgjum og vinnum eftir án þess að vinnan hafi náð lengra sem stefna stjórnvalda í skógrækt. Í dag endurspeglast formleg stefna stjórnvalda því í lögum um skógrækt og landshlutaverkefni í skógrækt. Í skýrslunni er lögð áhersla á fimm meginþætti í skógrækt á Íslandi. Uppbygging skógarauðlinda, skógarnytjar, verðmæta- og nýsköpun, samfélag, aðgengi og heilsu, umhverfisgæði og líffjölbreytni og loftslagsbreytingar,“ segir Þröstur Eysteinsson skógræktarstjóri. /VH N ýjasta talan í rækt- uðum skógum á Íslandi er 7,7 tonn CO2 nettómeðalbinding á hektara á ári og er þá búið að draga losunina frá.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.