Bændablaðið - 08.02.2018, Blaðsíða 8

Bændablaðið - 08.02.2018, Blaðsíða 8
8 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. febrúar 2018 Kjúklingum á Indlandi gefið heimsins sterkasta sýklalyf – WHO sendur út viðvörun þar sem þetta getur leitt til þróunar lyfjaónæmra ofurbaktería og sýkinga í fólki sem engin lyf ráða við Alþjóðleg heilsuviðvörun hefur verið gefin út í framhaldi af því að komið hefur í ljós að kjúklingabændur á Indlandi hafa notað þúsundir tonna af sýklalyfinu colostin við eldi. Colostin er eitt fárra sýklalyfja sem notað er gegn sýkingum þegar engin önnur lyf virka. Indland eru eitt af stærstu matvælaframleiðslulöndum í heimi og flytja árlega út gríðarlegt magn af kjúklingakjöti. Komið hefur í ljós að árlega nota indverskir kjúklingabændur sterk sýklalyf við eldið og þar á meðal þúsundir tonna af lyfinu Colostin. Colostin er eitt fárra sýklalyfja sem notað er gegn sýkingum þegar engin önnur lyf virka og er talið að notkun þess í landbúnaði auki enn á hættuna á að fram komi svokallaðar ofurbakteríu sem eru ónæmar fyrir öllum sýklalyfjum sem til eru í dag. Slíkt gæti haft skelfilegar afleiðingar og hefur Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) sent frá sér yfirlýsingu þar sem segir að sýklalyfjaónæmi sé ein stærsta ógn við lýðheilsu jarðarbúa í dag. Farmskrár sýna að gríðarlegt magn af Colostin hefur verið flutt til Indlands á síðustu árum. Á Indlandi er lyfið selt til bænda sem nota það til að fyrirbyggja sjúkdóma og sem vaxtarhvata. Alvarleiki málsins felst í því að lyf sem ætlað var sem síðasta úrræði í baráttunni við alvarlegar bakteríusýkingar er nú notað til að auka vaxtarhraða og stærð kjúklinga. Afleiðingin gæti verið sú að lyfið verði fljótlega ónothæft til lækninga. /VH FRÉTTIR Félagsaðild að Bændasamtökum Íslands: Félagsmenn í BÍ eru nú 3.400 talsins Nú er fyrsta ár í innheimtu félagsgjalda BÍ að baki. Í árslok voru félagsmenn samkvæmt félagatali rétt um 3.400 talsins. Félagsgjöldin voru tæplega 87,5 milljónir króna, eða 87% af því markmiði sem sett var í fjárhagsáætlun 2017. Guðbjörg Jónsdóttir, verkefna- stjóri hjá Bænda samtök unum, segir að síðasta ár hafi verið mikið mótunarár í félagskerfi bænda og muni sú vinna halda áfram. „Nú er verið að slípa af þá vankanta sem komu upp í innheimtunni. Það er ástæða til að þakka bændum fyrir þá þolinmæði sem sýnd hefur verið í þessu breytingaferli.“ Rafræn umsókn um félagsaðild Þeir bændur, sem ekki greiddu félagsgjöld á síðasta ári en vilja gerast meðlimir í BÍ, þurfa nú að sækja um aðild. Í boði er að fylla út rafræna umsókn á vef samtakanna, bondi.is, eða hafa beint samband við þjónustufulltrúa. Umsóknin er einnig ætluð þeim sem vilja af einhverjum ástæðum breyta sinni félagsaðild. Bændur geta auk þess leitað til samtakanna og fengið ráðgjöf hjá þjónustufulltrúa um félagsaðildina. Upplýsingar eingöngu fyrir félagsmenn á Bændatorginu „Ástæða er til að benda á að grunnfélagsgjaldið innifelur félagsgjald fyrir tvo og eru félagsmenn hvattir til að nýta sér það. Bændur ættu að sjá félagsaðild sína inni á Bændatorginu en þar er einnig búið að taka í notkun félagssíðu sem er á lokuðu svæði. Þar eru aðgengilegar ýmsar upplýsingar sem aðeins eru ætlaðar félagsmönnum, svo sem umsóknir um sumarhús, ársreikningar samtakanna, fundargerðir og önnur skjöl og tilkynningar,“ segir Guðbjörg. Athygli er vakin á því að aukaaðild að BÍ geta átt þeir einstaklingar, 18 ára og eldri, sem búsettir eru á Íslandi og styðja markmið samtakanna. Aukaaðildinni fylgir enginn atkvæðisréttur eða önnur félagsleg réttindi. Nánari upplýsingar um félagsgjöld BÍ er að finna á vef samtakanna, bondi.is. /TB Mynd / TB Matís: Kortlagning matarlandslagsins Matís vinnur nú að verkefni sem felst í kortlagningu á matarlandslagi Íslands á veflægu formi. Í því felst að unnin er heildarskrá yfir frumframleiðslu á Íslandi og mun kallast Matarlandslagið á íslensku en EatIceland á ensku. Skráin mun sýna fjölda frumframleiðenda og dreifingu þeirra um landið myndrænt á vefnum og hægt verður að flokka þá eftir ýmsum breytum og skoða frekari upplýsingar um hvern þeirra. Sjálfbærnimarkmið Sameinuðu þjóðanna Rakel Halldórsdóttir, ráðgjafi hjá Matís, segir að verkefnið eigi rætur í 17 heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbærni fyrir öll ríki jarðar fyrir 2030. „Ofnýting auðlinda jarðar er eitt af stóru heimsmálunum í dag, sem menn átta sig nú á að er afar áríðandi að bregðast hratt og víðtækt við. Sameinuðu þjóðirnar settu þessi heimsmarkmið sem eiga að tryggja framtíð jarðar, lífs og mannkyns á jörðu. Okkar hlutverk á Íslandi er að vinna að sjálfbærnimarkmiðunum frá þeim grunni sem við höfum hér á landi. Í því samhengi er mikilvægt að við gerum okkur grein fyrir því hvað stuðlar að sjálfbærni okkar og hvernig við sjálf viðhöldum, tryggjum og stuðlum að framþróun þessarar sjálfbærni í sátt við náttúruna. Frumframleiðsla þjóða er grunnur sjálfbærni þeirra, en frumframleiðendur eru allir þeir sem tryggja okkur sjálfbærni með matarafurðum sem koma beint úr auðlindum okkar, lands og sjávar. Ísland er eyja og samfélag okkar ekki ýkja stórt, sem gerir okkur auðvelt fyrir þegar kemur að skrásetningu frumframleiðslu í landinu. Við hjá Matís höfum undanfarið unnið að gerð heildarskrár yfir frumframleiðslu á Íslandi, sem koma mun út á veflægu formi vonandi í vor,“ segir Rakel. Myndræn og nútímaleg framsetning „Þessari heildarskrá er ætlað að gefa heildarsýn yfir frumframleiðslu okkar og vera grunnur upplýsinga; meðal annars með tilliti til framþróunar og stefnumótunar í ljósi sjálfbærnimarkmiða Sameinuðu þjóðanna fyrir þjóðir jarðar og Parísarsamkomulagsins. Hún mun einnig þjóna nýsköpun, framþróun og markaðsþróun í matvælaframleiðslu á Íslandi,“ segir Rakel enn fremur. Skráin verður, að sögn Rakelar, myndræn og nútímaleg í framsetningu sem nýtist vel þegar skoðuð er heildarmynd matvælaframleiðslunnar. Það gagnist svo þegar hugað er að byggðasjónarmiðum og bættri markaðssetningu íslenskra landbúnaðarafurða. Mikilvægt sé að bregðast við væntingum samfélaga á landsbyggðinni og ferðamanna um aukið aðgengi að upplýsingum um sérkenni landsvæða hvað varðar menningu og matarhefðir. „Með skránni verður neytendum einnig gert kleift að miða neyslu sína að því að minnka neikvæð neyslutengd umhverfisáhrif, svo sem minnka kolefnissporið, taka smáskref gegn hlýnun jarðar og stuðla að vistvænna samfélagi og sjálfbærni,“ segir Rakel. /smh
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.