Bændablaðið - 08.02.2018, Blaðsíða 49
49 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. febrúar 2018
Yndislegar skriðbuxur
Skriðbuxur / romper, eru mjög
vinsælar á litlu krílin. Þessar
skemmtilegu skriðbuxur eru
fljótprjónaðar, mjög klæðilegar
og krúttlegar. Uppskriftin
inniheldur einnig sokka og húfu
en uppskriftina að því finnur þú á
garnstudio.com, uppskrift númer
cm-006-bn.
Stærðir: 1/3 - 6/9 - 12/18 mánaða.
Garn: DROPS Cotton Merino.
100-150-150 g.
Prjónar: Hringprjónar 40 cm nr 3 og 3,5 – eða sú
stærð sem þarf til að 22 L og 30 umf í sléttu prjóni
verði 10 x 10 cm á prjóna nr 3,5.
Skriðbuxur
ÚRTAKA-1: úrtökur eru frá réttu
Prjónið þar til 3 L eru að prjónamerki, prjónið: 2 L
slétt saman, 2 L sl (prjónamerki er staðsett mitt á
milli þessa 2L), takið 1 L óprjónaða eins og prjóna
eigi hana sl, 1 L sl, steypið óprjónuðu L yfir.
ÚRTAKA-2: úrtökur eru frá réttu
Fellið af á eftir 3 kantlykkjum með garðaprjóni:
Takið 1 L óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 L
sl, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir.
Fellið af á undan 3 kantlykkjum með garðaprjóni:
Byrjið 2 L á undan 3 kantlykkjum og prjónið 2 L
slétt saman.
GARÐAPRJÓN (prjónið fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.
MYNSTUR:
Sjá teikningu A.1. Teikning sýnir allar umf í mynstri
séð frá réttu.
Skriðbuxur:
Stykkið er prjónað fram og til baka í 2 hlutum neðan
frá og upp eftir opi fyrir fætur. Síðan er stykkið
prjónað í hring áður en það skiptist aftur upp við mitti
og framstykki er prjónað til loka fram og til baka.
BAKSTYKKI:
Fitjið upp 14-16-18 L á hringprjóna nr 3,5 og
prjónið slétt prjón fram og til baka. JAFNFRAMT eru
fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur í lok hverrar umf alls 9
sinnum á hvorri hlið = 50-52-54 L á prjóninum og
stykkið mælist ca 6 cm. Geymið stykkið og prjónið
framstykki.
FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 14-16-18 L á hringprjóna nr 3,5 og prjónið
slétt prjón fram og til baka í 5 cm. Fitjið nú upp 6 nýjar
lykkjur í lok hverrar umf alls 3 sinnum á hvorri hlið =
50-52-54 L á prjóninum og stykkið mælist ca 7 cm.
FRAM- OG BAKSTYKKI:
Sameinið fram- og bakstykki á hringprjón = 100-
104-108 L. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið (=
50-52-54 l á milli prjónamerkja) – HÉÐAN ER NÚ
MÆLT! Prjónið slétt prjón í hring – byrjun umf =
hlið. Þegar stykkið mælist 2-3-5 cm er fækkað um
1 L hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ
ÚRTAKA-1 (= 4 L færri). Endurtakið úrtöku með 2
cm millibili alls 4 sinnum = 84-88-92 L á prjóninum.
Þegar stykkið mælist 10-11-14 cm frá prjónamerki
(stykkið mælist ca 17-18-21 cm frá uppfitjunarkanti)
er prjónuð upphækkun að aftan þannig: Prjónið sl
eins og áður yfir fyrstu 42-44-46 L þ.e.a.s. fram að
2. prjónamerki (= framstykki – ATH: Ekki er prjónuð
upphækkun yfir þessar lykkjur), prjónið sl þar til 5 L
eru að prjónamerki í byrjun umf, snúið við og prjónið
br til baka þar til 5 L eru eftir að prjónamerki á hinni
hliðinni, snúið við. Prjónið sl þar til 10 L eru eftir á
undan prjónamerki, snúið við og prjónið br til baka
þar til 10 L eru eftir á undan prjónamerki á hinni
hliðinni, snúið við. Prjónið sl þar til 15 L eru eftir á
undan prjónamerki, snúið við og prjónið br til baka
þar til 15 L eru eftir á undan prjónamerki á hinni
hliðinni. Snúið við og prjónið sl til baka í byrjun umf
(= hlið). Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið 1
umf slétt yfir allar L JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn
jafnaður til 80-88-96 L – ATH: Til þess að koma í veg
fyrir göt þegar snúið er við er lykkjan sótt á milli 2 L
upp og prjónað er áfram slétt með næstu L á prjóni.
Prjónið síðan stroff í hring þannig: 1 L sl, *2 L br, 2
L sl*, endurtakið frá *-* þar til 3 L eru eftir af umf,
endið á 2 L br og 1 L sl. Þegar stroffið mælist 1½ cm
er prjónuð gataumferð þannig: 1 L sl, *2 L br saman,
sláið uppá prjóninn, 2 L sl*, endurtakið frá *-* þar til
3 L eru eftir af umf, endið á 2 L br saman, sláið uppá
prjóninn og 1 L sl. Prjónið síðan áfram þar til 1 umf
er eftir áður en stroffið mælist 3 cm. Næsta umf er
prjónuð þannig: Prjónið stroff eins og áður yfir fyrstu
40-44-48 L (= framstykki), fellið LAUST af næstu
40-44-48 L með sl yfir sl og br yfir br (= bakstykki).
FRAMSTYKKI:
Setjið 1 prjónamerki – HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5 og prjónið fyrstu umf
frá réttu þannig: 3 kantlykkjur með GARÐAPRJÓN –
sjá skýringu að ofan, 9-11-13 L slétt prjón, prjónið
mynstur eftir teikningu A.1 (= 16 L) 9-11-13 L
slétt prjón og 3 kantlykkjur með GARÐAPRJÓN.
Haldið áfram með mynstur svona fram og til baka.
JAFNFRAMT eftir 1-1-0 cm er fækkað um 1 L á
hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA-2. Endurtakið úrtöku
í 2.- 4.- 6. hverri umf alls 7-7-6 sinnum = 26-30-
36 L á prjóninum. Þegar stykkið mælist 7-9-11 cm
frá prjónamerki – stillið af þannig að næsta umf er
prjónuð frá réttu, prjónið 6 umf garðaprjón fram og
til baka yfir allar L. Næsta umf er prjónuð frá réttu
þannig: Prjónið 8 L sl og setjið þessar L á þráð/nælu
(axlaband), fellið af næstu 10-14-20 L og prjónið sl
yfir síðustu 8 L (= axlaband).
AXLABAND:
Haldið áfram með garðaprjón fram og til baka þar
til bandið mælist ca 18-20 cm (eða sú lengd sem
hentar). Fellið af og prjónið seinna axlabandið.
STROFF:
Prjónið upp frá réttu ca 50 til 56 L meðfram öðru
fótaropinu á hringprjóna nr 3 með. Prjónið 1 umf
br frá röngu en JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir í
58-62-66 L. Prjónið síðan stroff (2 L sl, 2 L br) fram
og til baka með 1 kantlykkju með garðaprjóni á hvorri
hlið. Þegar kanturinn mælist 2 cm er fellt laust af með
sl yfir sl og br yfir br. Endurtakið meðfram hinu opinu.
Saumið saman op í klofbótinni innan við 1 kantlykkju
– þ.e.a.s. saumið saman annan stroff kantinn, síðan
er saumað saman í klofi og að lokum hitt stroffið.
Saumið tölu neðst í hvort axlaband. Tölurnar eru
hnepptar í gegnum gat á gataumferð í stroffi.
SNÚRA:
Klippið 2 þræði Cotton Merino ca 3 metra. Tvinnið
þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman
tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur
saman. Hnýtið hnút á hvorn enda. Byrjið við miðju að
framan og þræðið snúruna upp og niður í gegnum
göt í gataumferð á stroffi í mitti.
Prjónakveðja,
mæðgurnar í Handverkskúnst, www.garn.is
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
Létt
Þung
Miðlungs
1 3 5 7
5 9 8 6 1
6 7 3 2
4 6 5 8 7 9
2 5 4 3
1 9 6 4 8 5
2 9 3 4
3 6 2 1 5
5 8 9 1
Þyngst
8 4 6
9 5 1 7
5 1 6 3 8
6 2 4 5
3 5 1 4
9 3 1 8
2 8 7 6 9
4 5 8 2
7 2 1
7 3 4 8
1
4 5 8 3
3 7 2 1 6 4
6 7 1
1 2 6 5 9 3
6 8 2 5
9
2 4 6 9
9 4 1
8 4 3 5
9 1 2
5 2 3
4 2 9
6 7 3
1 7 8 5
3 5 4
Það klikkaðasta að
drekka ógeðsdrykk
Katla Björk er hress og jákvæð
stelpa, sem býr í sveit. Hún á
bróður, Davíð Bjarma (13), og
fullorðinn fósturbróður, hann
Sigurð Alexander.
Þótt hún búi í sveit er hún samt
ekki bóndi, nema hún þarf stundum
að fóðra nokkrar hænur fyrir mömmu
sína.
Nafn: Katla Björk Víkingsdóttir.
Aldur: 9 ára.
Stjörnumerki: Í tvíburamerkinu.
Búseta: Á heima í Sandfellshaga 2,
Öxarfirði.
Skóli: Lundarskóli, Öxarfirði.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Stærðfræði.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt? Kettir
eru uppáhaldsdýrin.
Uppáhaldsmatur: Lambasnitsel.
Uppáhaldshljómsveit: Amabadama.
Uppáhaldskvikmynd: Uppáhalds-
myndin er E.T.
Fyrsta minning þín? Þegar við vorum
í fjöruferð og ég var á háhest á pabba.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á
hljóðfæri? Katla er bæði að læra á
gítar og söng.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór? Hönnuður.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Það klikkaðasta var að
drekka ógeðsdrykk.
Ætlar þú að gera eitthvað skemmtilegt
á nýju ári? Ætla til útlanda.
Næst » Katla skorar á Bergstein Jökul
Jónsson, Reistanesi, að svara næst.
HANNYRÐAHORNIÐ
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ