Bændablaðið - 08.02.2018, Blaðsíða 16
16 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. febrúar 2018
Verð á fiskmörkuðum lækkaði
umtalsvert á síðasta ári.
Heildarsalan var samt þokkaleg
í tonnum talið þótt hún hafi ekki
náð metárinu 2016.
Verðmyndun á fiski til útgerða
og sjómanna er flókin hér á landi en
segja má að fjögur kerfi séu í gangi
sem ráða aflaverðmæti skipa.
Í fyrsta lagi er fiskur sem landað
er beint til vinnslu. Fiskverð er þá
ákveðið í samningum fiskvinnslu/
útgerðar og áhafnar en taka þarf mið
af lágmarksverði. Hér er í flestum
tilvikum um skip að ræða þar sem
útgerð og fiskvinnsla er í eigu sama
aðila.
Í öðru lagi er fiskur sem seldur er
á fiskmörkuðum innanlands en þar
ræður framboð og eftirspurn verði.
Í þriðja lagi er sjófrystur afli sem er
í raun fullunnin afurð sem seld er beint
á markaði erlendis. Verð á afurðunum
erlendis ræður því hvað kemur til
skipta milla útgerðar og áhafnar.
Í fjórða lagi er fiskur sem landað
er í gáma og seldur óunninn á
fiskmörkuðum erlendis.
Hér á eftir verður fjallað um
þróunina á fiskmörkuðum landsins
á síðasta ári.
Mest í beinni sölu
Stærstum hluta botnfiskaflans og
flatfiskaflans er landað beint til
vinnslu innanlands en fiskmarkaðir
og sjófrysting koma þar á eftir. Lítill
hluti fer óunninn í gáma erlendis.
Ætla má að um 16–17% af þorski
sem íslensk skipa veiða rati inn á
fiskmarkaðina ár hvert en mun hærra
hlutfall af ýsu, eða 35–36%. Þá er
hátt hlufall af hlýra, steinbít, skötusel
og keilu selt á fiskmörkuðum svo
dæmi sé tekið.
Framfaraspor
Fiskmarkaðir á Íslandi eiga ekki
langa sögu. Fyrsta uppboðið á fiski
fór fram í Hafnarfirði í júní 1987.
Fiskmarkaðir þróuðust hratt og
tilkoma þeirra var mikil framför. Verð
þar endurspeglar markaðsverð, þeir
stuðla að sérhæfingu í vinnslu og hafa
leitt til aukinnar verðmætasköpunar.
Í fyrstu var fiskur boðinn upp á
gólfinu en nú eru uppboðin rafræn
og fara fram alla virka daga. Um
200 til 300 kaupendur bjóða í
fiskinn í fjarskiptum. Reiknistofa
fiskmarkaða hf. annast uppboðin og
tengir 13 fiskmarkaði á 26 stöðum í
eitt uppboðsnet.
Stærstu fiskmarkaðirnir eru
Fiskmarkaður Íslands hf. (FMSÍ) og
Fiskmarkaður Suðurnesja hf. (FMS).
FMSÍ rekur markaði á Arnarstapa,
Grundarfirði, Ólafsvík, Reykjavík,
Rifi, Skagaströnd og Þorlákshöfn.
FMS samanstendur af
rekstrarstöðum í Sandgerði,
Grindavík, Hafnarfirði, Ísafirði
og Höfn í Hornafirði. Einnig er
FMS 65% eigandi í Fiskmarkaði
Siglufjarðar.
Samdráttur í magni og veltu
Í heild nam salan á fiskmörkuðum
landsins tæpum 106 þúsund tonnum
á síðasta ári og söluverðmætin voru
um 21,5 milljarðar króna, samkvæmt
tölum sem Bændablaðið fékk frá
Reiknistofu fiskmarkaða. Þetta er
heldur minna magn en selt var á árinu
2016, sem var metár, en þá voru seld
113 þúsund tonn og söluverðmætin
26,3 milljarðar.
Salan á síðast ári dróst saman um
7,7 tonn, eða um 7%. Þess má geta að
árið 2015 voru seld rúm 104 þúsund
tonn á mörkuðum þannig að salan
2017 er heldur meiri en þá.
Salan í verðmætum á síðasta ári
dróst saman um 4,8 milljarða frá
árinu 2016, eða um 18%, mun meira
hlutfallslega en magnið, enda hefur
meðalverð á fiski lækkað umtalsvert.
Þorskurinn um helmingur
verðmæta
Þorskur var langmikilvægasta
tegundin á fiskmörkuðum árið 2017
sem jafnan áður. Seld voru 49.116
tonn af þorski fyrir 11,8 milljarða
króna sem er 404 tonna aukning frá
fyrra ári. Þorskur er 46% af sölu
markaðanna í tonnum talið en 55% í
verðmætum. Að auki voru seld 1.857
tonn af undirmálsþorski fyrir 271
milljón króna.
Ýsan kemur næst á eftir
þorskinum að mikilvægi en seld voru
um 15 þúsund tonn af henni fyrir um
4,3 milljarða í fyrra. Ýsan er 14% af
sölu fiskmarkaðanna í magni en 18%
í verðmætum.
Þótt salan hafi aukist í magni í
þorski og ýsu dróst hún mun meira
saman í öðrum tegundum, svo sem
makríl, gullkarfa og steinbít.
Meðalverð lækkar
Meðalverð á öllum tegundum
á fiskmörkuðum hefur sveiflast
nokkuð síðustu árin en það fór hæst
í 285 krónur á kíló árið 2011. Það var
231,44 krónur árið 2016 og 2017 fór
meðalverðið niður í 202,88 krónur
og hafði því lækkað um 28,56 krónur
milli ára, eða um 7,5%.
Meðalverð á þorski á fisk-
mörkuðum var 278,75 krónur á kíló
árið 2016 en 241 króna árið 2017.
Lækkunin nemur um 13,5% milli
ára.
Ýsan lækkaði einnig í verði, fór
úr 285,7 krónum á kíló árið 2016 í
258,7 krónu á síðasta ári. Meðalverð
ýsunnar lækkaði þannig um rúm 9%
milli ára.
Fleiri mikilvægar fisktegundir
lækkuðu í verði. Almennt séð má
rekja þessa lækkun til breytinga
á gengi íslensku krónunnar og
markaðsverðs á fiskafurðum
erlendis.
Kennir ýmissa grasa
Í sölulista Reiknistofu fiskmarkaða
kennir ýmissa grasa ef svo má að orði
komast. Alls er þar um 87 tegundir
og afurðir að ræða, sumar tegundir
seldust aðeins í örfáum kílóum eins
og hákarl, búri og trjónukrabbi. Inn
á fiskmarkaðina rataði einnig svo
dæmi sé tekið harðfiskur, flök af
þorski og bleikju og fleiri tegundum,
og að sjálfsögðu gellur, hrogn og
lifur.
Frekar erfitt ár
„Síðasta ár var fiskmörkuðum frekar
erfitt vegna verkfalls sjómanna.
Einnig hafði hátt og stöðugt gengi
mikil áhrif og jafnframt sá tími sem
það tók verkendur að vinna aftur
markaði erlendis,“ sagði Ragnar
Kristjánsson, framkvæmdastjóri
Fiskmarkaðar Suðurnesja hf. (FMS),
í samtali við Bændablaðið er hann
var spurður um rekstur fiskmarkaða
á síðasta ári.
Ragnar sagði að þegar rúmlega
tveggja mánaða verkfalli hefði lokið
seint í febrúar hefðu komið sterkir
mánuðir. „Samt vantaði FMS ein
fjögur þúsund tonn í sölu miðað
við árið 2016. Munaði þar um
rúmlega 2 þúsund tonna minnkun
í makríl. Einnig var stór kvóti í
Sandgerði seldur og fór sá fiskur
út af markaðnum fyrir vikið,“ sagði
Ragnar.
Fiskmarkaðir í vörn
„Fiskmarkaðir eru í mikilli vörn þessi
misserin. Er það út af samþjöppun
í greininni og þeim áhrifum sem
ofsett veiðigjöld virðast vera að
hafa. Töluvert fleiri virðast vera
tilbúnir að selja sig út núna vegna
erfiðari aðstæðna. Fiskmarkaðir
verða þó alltaf til og eru flest stærri
kvótafyrirtæki að selja hjá þeim allan
fisk sem ekki fer í vinnslu hjá þeim.
Ekki er þó víst að hægt verði að
reka alla fiskmarkaði í framtíðinni
eins og gert hefur verið. Hugsanlega
verður að loka einhverjum stöðum
og það ferli er þegar hafið,“ sagði
Ragnar.
Borga hæsta verðið
Atvinnuvegaráðuneytið hefur látið
gera úttekt á starfsemi fiskmarkaða
með tilliti til úthlutunar leyfa
til þeirra og hvort þeir séu að
uppfylla þær reglugerðir sem eru í
gildi. Einnig hefur ráðherra boðað
nýtt frumvarp um fiskmarkaði á
vorþingi.
„Spurningin er hvernig
fiskmarkaðir eru hugsaðir af
stjórnvöldum inn í verðlagskerfi á
sjávarafurðum og hvernig hægt er
að tryggja hráefni til sölu á þeim í
framtíðinni fyrir þá verkendur sem
ekki hafa kvóta. Þeir aðilar eru afar
mikilvægir í keðjunni til að þróa og
selja íslenska fiskinn. Oft hafa þeir
verkendur sem versla eingöngu á
fiskmörkuðum verið frumkvöðlar
í nýjungum. Þeir hafa jú oftast
borgað hæsta verðið fyrir fiskinn
og því leitað leiða til að gera sem
mest verðmæti úr honum,“ sagði
Ragnar Kristjánsson.
Hafrannsóknastofnun:
Breytingar í stofnstærð hafa áhrif á kynskipti rækju
Elsti steingervingur af dýri sem
líkist heimilisketti er 12 milljón
ára gamall. Í Egyptalandi til
forna var til siðs að fjölskyldan
rakaði af sér augabrýrnar þegar
heimiliskötturinn drapst.
Kettir eyða þriðjungi ævinnar
í að þrífa sig. Stundum er sagt að
kettir hafi níu líf vegna þess hve
duglegir þeir eru að bjarga sér.
Ameríska púman
Púma, eða fjallaljón, lifa í Ameríku
á svæði sem nær frá Kanada allt til
Suður-Ameríku. Dýrin halda sig
til fjalla, þau eru mjög sjaldgæf
og í útrýmingarhættu.
Kattarfóbía
Til er fólk sem hræðist ketti á
svipaðan hátt og aðrir hræðast
köngulær. Kattarhræðsla af
þessu tagi nefnist ailurophobia.
Júlíus Cesar, Hinrik II
Englandskonungur og Napóleon
voru allir haldnir óyfirstíganlegri
hræðslu á köttum.
Góð sjón
Hjartað í ketti slær hundrað og
tíu til hundrað og fjörutíu sinnum
á mínútu. Kettir sofa oft sextán
klukkutíma á sólarhring og þurfa
sex sinnum minna ljós en menn til
að sjá. Heyrn katta er ein sú besta
í dýraríkinu, þeir eiga til dæmis
mjög auðvelt með að greina á
milli hljóða úr mikilli fjarlægð.
Mikil fjölbreytni
Það eru til nokkur hundruð
mismunandi afbrigði af
heimilisköttum. Felis nigripes
er minnsta kattartegund í heimi.
Hann vegur 1,2 kíló og er að finna
á gresjum Suður-Afríku, Bótsvana
og Namibíu.
Breytast í anda
Kettir mala þegar þeim líður vel
og stundum hrjóta þeir þegar þeir
sofa. Í japönskum þjóðsögum
segir að kettir breytist í öfluga
anda þegar þeir drepast.
Tamin ljón
Kettir eru miklir einfarar. Ljón eru
eina kattartegundin sem heldur sig
í hópum, það geta verið allt frá
fimm upp í þrjátíu skyld dýr í hóp.
Kínverjar til forna þjálfuðu ljón
sér til skemmtunar og höfðu þau
með á veiðar. Ljónin voru notuð
til að veiða villisvín og bjarndýr.
Mjálma, mala, hvæsa
Kettir notast við fjöldann allan
af táknum í samskiptum við aðra
ketti og önnur dýr, þeir mjálma,
mala, hvæsa, urra og gagga.
Skottið upp í loft
Heimiliskettir eru eina
kattartegundin sem getur
sperrt skottið beint upp í loftið.
Villikettir sperra það beint út og
stinga því á milli fótanna þegar
þeir ganga.
Litir tígrisdýra
Flest tígrisdýr eru brún með
svartar strípur, stundum fæðast
þau hvít með dökkar strípur og
til eru sögur um svört tígrisdýr.
Hvít tígrisdýr eru mjög vinsæl
í dýragörðum en sjaldgæf í
náttúrunni.
Fjölbreytt fæði
Kettir eru hæf rándýr og vitað er
til þess að þau veiði yfir 1.000
dýrategundir sér til matar. Hægt
er að kenna köttum að hlýða
einföldum skipunum.
Villikettir
Evrópski villikötturinn heitir
Felis silvestris á latínu. Búsvæði
hans er í Mið-Evrópu og austur
til Úralfjalla í Asíu. Kettirnir búa
oft í nágrenni við fólk og éta upp
úr ruslatunnum. /VH
Kattarmolar
STEKKUR
HLUNNINDI&VEIÐI
Kjartan Stefánsson
kjartanst@simnet.is
Rækja er tvíkynja. Hún byrjar
lífsferilinn sem karldýr en
nokkurra ára skiptir hún um kyn
og er breytilegt á milli svæða á
hvaða aldri hún skiptir um kyn.
Á heimasíðu Hafrannsókna-
stofnunar segir að ýmsar tilgátur sé
uppi um hvað hefur áhrif á aldur
við kynskipti, má þar nefna stærð
hennar, þéttleikaháða þætti, svo sem
stofnstærð, eða umhverfisþætti eins
og hitastig.
Í nýlegri grein sem starfsmenn
Hafrannsóknastofnunar, Ingibjörg
G. Jónsdóttir, Guðrún G.
Þórarinsdóttir og Jónas P. Jónasson,
birtu í tímaritinu ICES Journal of
Marine Science var fjallað um það
hvort breytingar í stofnstærð hafi
áhrif á það hvenær rækja skiptir
um kyn. Þetta var skoðað í þremur
rækjustofnum við Ísland, Arnarfirði,
Húnaflóa og Öxarfirði.
Ástæðan fyrir því að þessir
stofnar voru valdir var sú að fyrir
norðan, í Húnaflóa og Öxarfirði,
voru rækjustofnarnir stórir fyrir
síðustu aldamót, en þá minnkuðu
þeir snögglega og hafa verið litlir
alla tíð síðan. Hins vegar hefur
stofnstærð rækju í Arnarfirði verið
stöðugri í gegnum tíðina. Þessar
snöggu breytingar í stofnstærð fyrir
norðan höfðu það í för með sér að
rækjan skiptir ári fyrr um kyn. Þar
finnast nú færri árgangar karldýra
og þar að auki hefur hámarksstærð
hennar minnkað. Hins vegar skiptir
rækja ekki fyrr um kyn í Arnarfirði.
Því geta snöggar og miklar
breytingar í stofnstærð leitt til þess
að rækja skiptir fyrr um kyn. Þetta
gæti meðal annars haft neikvæð áhrif
á heildarfrjósemi rækjustofnsins, þar
sem minni rækjur framleiða færri
egg. /VH
Rækja er tvíkynja. Mynd / Hafrannsóknastofnun.
Samdráttur í magni og veltu
hjá fiskmörkuðum
Mynd / HKr.