Bændablaðið - 08.02.2018, Side 22

Bændablaðið - 08.02.2018, Side 22
22 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. febrúar 2018 Mengun frá skipum verður vel sýnileg við vissar aðstæður Skip sem sigla þvers og kruss um Atlantshafið brenna miklu eldsneyti og skilja þar af leiðandi eftir sig talsvert stór umhverfisspor. Þetta er ekki alltaf sýnilegt, en við vissar aðstæður getur útblásturinn verið áberandi. Á vef bandaríku geimferða- stofnunarinnar NASA var birt MODIS-mynd fyrir skömmu sem sýnir útblástur frá skipum undan ströndum Portúgals og Spánar, sem þeir nefna skipsför í þunnri skýjabreiðunni í lægri loftlögum. MODIS stendur fyrir „Moderate Resolution Imaging Spectroradiometer“ sem er búnaður um borð í gervihnettinum Aqua og var myndin tekin 16. janúar síðastliðinn. Þá var á þessum slóðum uppgufun frá sjónum og við þessar aðstæður hlaða ákveðnar agnir í skipsreyknum á sig raka í lægri loftlögum og verður útblásturinn þá mjög sýnilegur. Eru droparnir í þessum skýjarákum sagðir vera minni en í ómenguðum skýjum þar í kring. Slóðirnar sem í sumum tilfellum teygja sig yfir hundruð kílómetra er að sjá grennst næst skipunum en breiða síðan úr sér eftir því sem fjær dregur. Þetta er ekki ósvipað því sem gerist þegar útblástur frá þotum teiknar rákir á himininn. /HKr. AUÐLINDIR&UMHVERFISMÁL Áhrif hlýnunar loftslags: Horfur á uppskerubresti hjá Quechua- indíánum í Andesfjöllum Áhrif hlýnunar loftslags verða stöðugt meira áberandi. Vísindamenn umhverfisstofnunar Miami-háskóla hafa komist að því að áhrifanna gætir m.a. í minni kartöflu- og maísuppskeru hjá Quechua-indíánum sem lifa hátt í Andesfjöllunum í Perú. Ritað var um málið í vefútgáfu Science Daily nýverið. Þar kemur fram að Kenneth Feeley, sem er yfirmaður í trjálíffræði hjá Miami háskóla, hefur notið aðstoðar líffræðingsins Richard Tito sem er innfæddur Quechua-indíáni, en hann er einnig aðalhöfundur skýrslu um málið. Helsta niðurstaðan er að fram undan séu erfiðir tímar hjá fólki í dreifbýli Andesfjalla sem lifað hafi á ræktun ákveðinna afbrigða af kartöflum og korni mann fram af manni. Rækta afbrigði sem þrífast illa í auknum hita Gerðu rannsakendur tilraunir með þau afbrigði sem indíánarnir hafa nýtt til ræktunar á korni og kartöflum hátt í Andesfjöllum. Við ræktun á þeim afbrigðum í hlýrra loftslagi neðar í fjöllunum, kom í ljós að þau þrifust illa. Þar var jarðvegurinn reyndar öðruvísi samsettur en hærra í fjöllunum. Kom í ljós að við það að lofthitinn hækkaði aðeins um 1,3 til 2,6 gráður á Celsíus drápust nær allar kornplönturnar sem prófaðar voru. Ástæðurnar voru margvíslegar. Þær þoldu m.a. ekki árásir frá skordýrum sem lifðu við þær aðstæður. Niðurstöðurnar varðandi kartöflurnar voru jafnvel enn verri. Flest kartöfluafbrigðin drápust og þau sem lifðu af voru svo ræfilsleg og skiluðu svo lélegum kartöflum að þær voru ekki hæfar til markaðssetningar. Vísindamennirnir skoðuðu líka hvort mögulegt væri að flytja þá ræktun sem indjánarnir stunda enn hærra í fjöllin samfara hlýnandi loftslagi. Niðurstaðan var að slíkt stæði yfirleitt ekki til boða, þar sem ræktun indíánanna fer víða fram nú þegar á fjallstoppum svo hærra verður ekki komist. Þá kom í ljós að korn sem ræktað er hærra uppi í fjöllunum í þynnra lofti skilar mun rýrari uppskeru. Treysta ekki erfðatækni, eitri né aukaefnum Ræktunarsvæði Quechua-indíán- anna er í um 3.000 til 4.000 metra hæð yfir sjávarmáli. Hafa innfæddir verið því mjög mótfallnir að nota erfðabreytt afbrigði, tilbúinn áburð og skordýraeitur til að reyna að auka uppskeruna. Þeir treysta einfaldlega á móður náttúru og gefa engan afslátt af því, enda hluti af þeirra menningu. Kenneth Feeley þykir þetta mjög miður. Segir hann að bændur á þessum svæðum skorti margvíslega tækni til að bregðast hratt við breyttum loftslagsaðstæðum. Því séu þessir bændur sjálfir í hættu sem og milljónir manna í Andeshéruðum Kólumbíu, Ekvador og í Bólivíu sem reiði sig á þeirra uppskeru. /HKr. Mynd / Saúl M. Tito NASA segir árið 2017 það næst- heitasta á jörðinni síðan 1880 – Vísindamenn NOAA segja árið það þriðja heitasta síðan mælingar hófust Árið 2017 var annað heitasta árið á jörðinni frá því skipulegar hitamælingar hófust um allan heim árið 1880, samkvæmt frétt NASA og NOAA. Heitasta árið var 2016. Meðalhitinn á jörðinni á síðasta ári var 0,9 gráðum hærri en á tímabilinu 1951 til 1980 að sögn vísindamanna hjá Goddard stofnun NASA sem vinna við geimrannsóknarverkefni GISS rannsóknarstöðvarinnar í New York. Samkvæmt annarri ótengdri rannsókn v ís indamanna hjá Alþjóðlegu haf- og loftslagsstofnuninni NOAA (National Oceanic and Atmospheric Administration), var árið 2017 þriðja heitasta árið. Mismunurinn á niðurstöðum NOAA og NASA er sögð liggja í aðferðarfræðinni við útreikningana og staðsetningu mælitækja. Þrátt fyrir mismuninn er heildarniðurstaðsn keimlík og hjá báðum hópum eru fimm hlýjustu árin eftir 2010. Ef allt er talið með telja vísindamenn NASA að nákvæmni mælinganna sé með um 95% nákvæmni. Þar á bæ styðjast menn við mælingar frá 6.300 veðurstöðvum á sjó og landi og mælingar á sjávarhita með baujum og skipum. Vísindamenn NOAA styðjast við mjög svipaðar mælingar, en nota aðeins öðruvísi úrvinnsluaðferðir. Hitabreytingarnar eru mestar á norðurhveli jarðar og heldur ísþekjan á norðurpólnum áfram að minnka. Oft heyrast þær gagnrýnisraddir að tal um hlýnun loftslags standist ekki þegar litið er á kólnun á sumum svæðum jarðar. Þessu svarar Gavin Schmidt, yfirmaður GISS hjá NOAA, með því að í heild hafi hitinn á jörðinni verið að hækka ört síðustu 40 ár. Meðalyfirborðshiti jarðar hafi hækkað um eina gráðu á Celsíus á undanförnum 100 árum. Það séu breytingar sem drifnar séu áfram af aukinni losun manna á koltvísýringi út í andrúmsloftið. Síðasta ár sé þriðja árið síðan hitinn hækki um meira en eina gráðu á Celsíus miðað við meðaltalshita á tuttugustu öldinni. Þrátt fyrir þekkta veðuráhrifa- valda, eins og El Niño og La Niña sem hita og kæla lofthjúpinn á Kyrrahafssvæðinu á víxl, þá hafi hitinn hækkað 2017 þvert á það sem búast mátti við vegna áhrifa af La Niña. Var meðalhitinn á síðasta ári mitt á milli þess sem mældist á árunum 29015 og 2016. Segja vísindamenn NASA að ef áhrif af El Niño og La Niña eru tekin út úr reikniformúlunum, þá hefði árið 2017 verið það heitasta í sögunni. /HKr. Mynd / NASA/LANCE/EOSDIS Meirihluti norska þingsins fer þess nú á leit við ríkisstjórn landsins að leggja áherslu á málefni um að setja upp kornlager með varabirgðum árið 2019 til að mæta ófyrirséðum truflunum á innflutningi matvæla. Málið var tekið fyrir í atvinnunefnd þingsins í síðustu viku og segir formaður nefndarinnar, Geir Pollestad, að mikill meirihluti sé fyrir því í þinginu að byggja eigi upp eigin lager af matkorni í Noregi þar sem varabirgðir séu geymdar. „Við biðjum ekki um að ríkisstjórnin íhugi þörf fyrir lager með varabirgðum heldur að kostnaðargreina verkefnið, hversu lengi við ætlum að hafa slíkan lager og aðra hagnýta hluti sem tengjast þessu,“ segir Geir í samtali við Nationen. Nils Kristen Sandtrøer hjá Verkamannaflokknum segir að flokkurinn leggi áherslu á málefnið vegna loftslagsbreytinga og almennra öryggisþátta. Loftslagsbreytingar leiði af sér meiri áskoranir fyrir kornrækt í landinu og að í nánustu framtíð verði meiri þurrkar á ákveðnum svæðum í heiminum þar sem í dag er stunduð mikil kornrækt. Þetta þýði að Noregur þurfi hagnýta og sterka stefnu sem skapi jafnframt störf og verðmætasköpun í landinu. Meirihluti þingsins leggur áherslu á að matvælaöryggi í Noregi sé tryggt með innlendri framleiðslu, verslun og að standa vörð um framleiðsluna. Framboð innan matvælageirans byggist bæði á innlendri framleiðslu og innflutningi sem verði einnig að vera hægt að viðhalda þegar kreppir að. Því snýst málið ekki um að loka á erlenda markaði því neytendur í Noregi séu háðir því að flytja inn mikilvæg matvæli, vélar og tæki. /ehg - Nationen Norðmenn hyggjast tryggja fæðuöryggið: Vilja setja upp kornlager með varabirgðum – Ætlað að mæta innflutningstruflunum matvæla

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.