Bændablaðið - 08.02.2018, Blaðsíða 34
34 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. febrúar 2018
Árið 1893 stofnaði
John Froelich ásamt
viðskiptafé lögum
sínum fyrirtæki sem
þeir kölluðu The
Waterloo Gasoline
Traction Engine í
Iowa-ríki í Norður-
Ameríku. Fyrirtækinu
var ætlað að framleiða
og selja uppfinningu
Froelich sem var
fyrsta bensínknúna
dráttarvélin.
Þrátt fyrir góðan vilja
sýndu væntanlegir kaupendur
dráttarvélinni lítinn áhuga og
aðeins fjórar slíkar voru settar
saman og tvær seldust. Báðum
var skömmu síðar skilað aftur til
verksmiðjunnar vegna óánægju
kaupendanna.
Nýir eigendur
Tveimur árum seinna
skipti fyrirtækið um
eigendur og fékk nafnið
The Waterloo Gasoline
Engine Company. Nýir
eigendur ákváðu að hætta
framleiðslu dráttarvéla
og einbeita sér að smíði
bensínmótora.
Rúmum einum og
hálfum áratug síðar og
mikla hönnunarvinnu
hóf fyrirtækið aftur
framleiðslu á dráttarvélum sem
komu á markað. Fyrstu vélarnar
fóru á markað 1911 en engin
þeirra seldist. Tveimur árum
síðar framleiddi fyrirtækið
tuttugu dráttarvélar sem fengu
heitið Waterloo Boy.
Traktorinn kallaðist Waterloo
Boy One-Man Tractor og sagður
25 hestöfl og mikið stykki sem
ætlað var til stórplæginga á
sléttunum miklu. Fyrirtæki hóf
fljótlega framleiðslu á minni týpu
sem var rúm 14 hestöfl, tveggja
strokka.
Model R Wateloo Boy
Hjólin fóru að snúast fyrir alvöru
hjá The Waterloo Gasoline
Engine Company árið 1914
þegar það setti á markað traktor
sem kallaðist Model R Waterloo
Boy og með einum gír áfram og
öðrum aftur á bak.
Öllum á óvart urðu vinsældir
þeir rar vélar
gríðarlegar og á
næstu árum seldust
meira en átta þúsund
slíkar. Framleiðslu
Moder R var hætt
1923. Model N, sem
sett var á markað
1916, naut einnig
mikilla vinsælda
enda tæknilegri að
því leyti að hann
var með tvo gíra áfram og einn
aftur á bak.
Bæði Model R og N brenndu
steinolíu en ekki bensíni eins og
forverar þeirra.
Deere & Company
Aftur urðu eigendaskipti á
fyrirtækinu árið 1918 þegar
Deere & Company keypti
Waterloo Gasoline Engine
Company með öllum skrúfum
og skinnum fyrir 2,1 milljónir
dollara sem var mikill
peningur á þeim tíma.
Nýju eigendurnir höfðu
mikla trú á og mikinn
áhuga á að komast inn
á dráttarvélamarkaðinn
en tilraunir þeirra höfðu
mistekist til þess.
Ástæða þess
að Deere keypti
framleiðanda Waterloo
Boy var einföld.
Dráttarvélin var
einfaldlega sú besta á
markaði á þeim tíma.
Eftir eigendaskiptin
var enn skipt um nafn og nú
hét það John Deere Tractor
Company en til að byrja með
voru dráttarvélarnar seldar undir
heitinu Waterloo Boy. Árið 1923
var nafninu breytt í John Deere
Model D.
Í dag er John Deere með stærstu
framleiðendum dráttarvéla og
landbúnaðartækja í heiminum,
auk þess sem fyrirtækið er
stórtækt í framleiðslu tækja til
skógarvinnslu. /VH
Waterloo Boy varð John Deere
Umferð um vegi landsins hefur
aukist gríðarlega frá árinu 2012
– Umferðin í desember jókst um nærri 10 prósent
Umferðin í desember jókst um
9,3% miðað við sama mánuð
árið á undan. Þetta er umtalsverð
aukning en þó minni en var milli
áranna 2015 og 2016.
Umferðin í fyrra jókst um 10,6%
sem er næstmesta aukning frá því
samantekt af þessu tagi hófst árið
2005. Undanfarin ár, eða síðan
2012, hefur umferðin aukist tvöfalt
meira en að meðaltali síðan 2005 um
7,6% meðan meðaltalið á ári yfir allt
tímabilið er 3,4%. Þetta kemur fram
á vef Vegagerðarinnar.
Umferð í nýliðnum desember
jókst um 9,3% miðað við sama
mánuð árið 2016. Þessi aukning
er mun minni en varð á síðasta ári
en svipar til aukningarinnar á milli
áranna 2014 og 2015. Mest jókst
umferð um teljarasnið á Suðurlandi,
eða um 16,1%, en minnst um snið á
Austurlandi, eða um 4,3%.
Fádæma aukning
Af einstaka teljarasniðum jókst
umferð mest um Hringveginn á
Mýrdalssandi, eða um 21,8%. Þessi
mikla aukning vekur athygli þar sem
árið áður hafði umferðin aukist um
89,3% milli desembermánaða 2015
og 2016 og þar á undan um 41,3%.
Aukin umferð austan við Vík í
Mýrdal í desember, sem og raunar
aðra mánuði, er því með fádæmum
mikil. Frá árinu 2005 hefur umferðin
nú aukist að jafnaði langmest í ágúst,
september og október, eða frá 3,8%–
4,2% á ári.
Umferð mest um Suðurland
Fyrir allt árið 2017 gildir að
umferðin hefur aukist um 10,6%
miðað við árið 2016. Þetta er
næstmesta aukning yfir mælisniðin
16 frá upphafi þessarar samantektar.
Mest jókst umferðin um Suðurland,
eða um 15,5%, en minnst jókst
umferðin yfir mælisnið á Austurlandi,
eða um 8,6%. Líkt og milli mánaða
jókst umferð mest, fyrir einstaka
mælisnið, um Mýrdalssand, eða
um 24,4%. Fyrir árið í heild hefur
umferðin nú aukist um 3,4% á ári
að jafnaði frá árinu 2005, sem telja
verður hóflegur vöxtur, en frá árinu
2012 hefur árlegur vöxtur numið um
7,6%, sem telja verður mjög mikill
fyrir áðurnefnt tímabil. /MÞÞ
Bæjarstjórn Seyðisfjarðar:
Göng undir Mjóafjarðarheiði
leysa ekki neinn vanda
Bæjarstjórn Seyðisfjarðar-
kaupstaðar telur hugmyndir um
göng undir Mjóafjarðarheiði og
þaðan til suðurs yfir í Fannardal
í Norðfirði ekki vera þá
samgöngulausn sem bæjarbúar
þurfi á að halda.
Í nýlegri bókun bæjarstjórnarinnar
er bent á að tvö meðalstór snjóflóð
hafi fallið í sunnanverðum
Seyðisfirði, rétt utan við bæinn.
Bent er á að frá í nóvember
hafi orðið verulegar truflanir á
samgöngum bæði á Fagradal og
Fjarðarheiði. Ekki er langt síðan
heiðin lokaðist í á á þriðja sólarhring
og biðu bæði ferðamenn og
flutningabílar eftir að komast til og
frá Norrænu, auk annarrar umferðar
til og frá bænum.
Fram kemur í bókun
bæjarstjórnar Seyðisfjarðar að
þetta sýni að samgöngur til og frá
Seyðisfirði yrðu eftir sem áður jafn
ótryggar og óöruggar ef göng undir
Fjarðarheiði yrðu látin víkja fyrir
lakari kostum svo sem göngum undir
Mjóafjarðarheiði og beint til suðurs
yfir í Fannardal.
„Bæjarstjórn minnir því enn og aftur
á mikilvægi þess, þó ekki sé nema af
framangreindum ástæðum, að tekin
verði ákvörðun um tímasetningu
framkvæmda við Fjarðarheiðargöng.
Samkvæmt núgi ldandi
samgönguáætlun er gert ráð fyrir
að Fjarðarheiðargöng verði næsta
jarðgangaframkvæmd á eftir
Dýrafjarðargöngum og því löngu
tímabært að ákvarðanir liggi fyrir
um upphaf framkvæmda.“ /MÞÞ
Mynd / HKr.