Bændablaðið - 08.02.2018, Qupperneq 36
36 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. febrúar 2018
Matlaukur er manngerð planta
og finnst ekki í náttúrunni nema
þar sem hann hefur dreifst út frá
ræktun. Að stíga í laukana þýðir
að lifa í sæld en í Austurlöndum
er laukur sagður trufla hugleiðslu.
Ætluð heimsframleiðsla á matlauk
er um 85 milljón tonn á ári og hefur
framleiðslan um það bil tvöfaldast á
síðustu tíu árum.
Kína er stærsti framleiðandinn
og framleiðir rúmlega 20,5 þúsund
tonn á ári. Indland er í öðru sæti með
framleiðslu upp á tæp 13,4 þúsund
tonn og Bandaríki Norður-Ameríka
í því þriðja og framleiðir rúm 3,3
þúsund tonn. Egyptaland er í fjórða
sæti þegar kemur að framleiddu
magni af matlauk í heiminum,
framleiðir rúm 2,2 þúsund tonn,
og Íran er í því fimmta með um 1,9
þúsund tonn. Tyrkland, Pakistan,
Brasilía, Rússland og Suður-Kórea
eru í sjötta til tíunda sæti og framleiða
frá 1,7 og niður í 1,4 þúsund tonn af
matlauk á ári.
Indland er stærsti útflytjandi
matlauks í heiminum og var
útflutningurinn þaðan árið 2016 rúm
11,4 þúsund tonn.
Áhugavert er að Holland, sem
hvorki er á lista yfir þau lönd
sem mest framleiða eða flytja inn
matlauk, er annar mesti útflytjandi
hans í heiminum. Útflutningurinn
frá Hollandi er sagður vera tæp 10
þúsund tonn og greinilegt að landið
er öflugur milliliður þegar kemur að
verslun með matlauk. Kína flytur
út rúm 4 þúsund tonn og Bandaríki
Norður-Ameríku rétt tæp 3 þúsund
tonn.
Stærstu innflytjendur matlauks í
heiminum eru Malasía, sem flytur inn
tæp 5,8 þúsund tonn á ári, Bandaríki
Norður-Ameríku rúm 5,2 þúsund
tonn á ári, Bretlandseyjar, tæp 4
þúsund tonn, Japan um 2,8 þúsund
tonn og Þýskaland um 2,5 þúsund
tonn
Innflutningur á matlauk, fyrir
utan hvítlauk, til Íslands er að finna í
þremur tollflokkum undir heitunum
laukur, skallottlaukur og síðan annar
laukur. Samkvæmt upplýsingum á
vef Hagstofu Íslands var flutt inn árið
2016 tæplega 2000 tonn af lauk. Mest
var flutt inn frá Hollandi, Frakklandi
og Spáni. Innflutningur á skallottlauk
sama ár var rúm 37 tonn, mest frá
Hollandi og Frakklandi. Annar laukur,
til dæmis perlulaukur blaðlaukur og
vorlaukur, var tæp 61 tonn.
Heildarinnflutningur á matlauk til
Íslands, að hvítlauk undanskildum,
árið 2016 var samkvæmt þessu 2.098
tonn.
Ættkvíslin Allium
Mörk tegunda innan ætt-
kvíslarinnar Allium eru oft óljós
og fjöldi þeirra því mjög á reiki
og telst vera frá 200 og í tæplega
þúsund. Af þessum óljósa fjölda
tegunda teljast sumar vera
með mikilvægustu matjurtum
í heimi. Má þar nefna matlauk
A. cepa, blað- eða púrrulauk,
A. ampellopsum var porrum,
graslauk A. schoenprasum og
vorlauk A. fistulosum. Auk
hjálmlauks A. cepa var viviparum
og skallottulauks A. cepa var
aggregatum sem eru afbrigði af
matlauk.
Auk þess sem margar
tegundir lauka eru ræktaðar sem
skrautjurtir.
Flestar tegundir villtra
lauka finnast á tempraða belti
norðurhvelsins en nokkrar vaxa
einnig í Síle, Brasilíu og hitabelti
Afríku. Laukar mynda misstórar
forðarætur, eftir tegundum, sem
gerðar eru úr lögum sem hvolfast
hvert yfir annað. Lögin eru tengd
saman að neðan á eins konar
fæti. Upp af ólíkum laukunum
vaxa stönglar sem geta verið
frá fimm sentímetrum og upp
í einn og hálfan metra að hæð.
Efst á stönglinum mynda blómin
kúlulagasveip, blátt eða hvítt.
Blöðin fá, löng og safarík.
Matlaukur – A cepa
Tvíær laukjurt sem yfirleitt er
ræktuð sem einær. Blöðin dökk
græn, 15 til 50 sentímetra löng,
safarík og vaxkennd viðkomu.
Upp af lauknum vex einn ríflega
eins metra langur og holur
blómstöngull sem ber hvítan eða
fjólubláan og kúlulaga blómsveip.
Neðanjarðarhlutinn er laukur,
hvítur, rauður eða gulur að lit og
misstór eftir yrkjum. Matlaukur
er mest ræktaður allra lauka í
heiminum.
Meðaltalsuppskera af matlauk á
hektara í heiminum er rétt rúm þrjú
tonn á hektara. Mest er framleiðslan
í Suður-Kóreu, Japan, Bandaríkjum
Norður-Ameríku og nokkrum
löndun Evrópu þar sem hún er á
bilinu 6,8 til 10,5 tonn á hektara.
Mesta magn á hektara er 17, 8
tonn. Samkvæmt Heimsmetabók
Guinness er þyngsti laukur sem
veginn hefur verið 8,5 kíló að
þyngd. Laukurinn var ræktaður í
Norður-Yorkshire á Bretlandseyjum
2014.
Frumur í stórum matlauk eru
stórar og vel sjáanlegar undir góðri
víðsjá og því heppilegar til kennslu
í grasafræði.
Nafnaspeki
Ættkvíslarheitið Allium stendur
fyrir hnattlaga eða bólginn og
tegundarheitið cepa er latínuheiti
fyrir lauk. Á grísku kallast matlaukar
kápia, qepë í Albaníu, ceba á
spænsku, og oigon í Frakklandi,
cipallo á ítölsku. Á ensku chive eða
onion. Lök á sænsku, løg á dönsku
og laukur á íslensku.
HELSTU NYTJAJURTIR HEIMSINS
Vilmundur Hansen
vilmundur@bondi.is
Matlaukur er mest ræktaði laukur í heimi. Fjöldi yrkja, afbrigða og landsorta af honum eru nánast óteljandi.
Þyngsti laukur sem veginn hefur verið er 8,5 kíló að þyngd.
Best er að geyma lauk á þurrum stað við stofuhita.