Bændablaðið - 08.02.2018, Qupperneq 37
37Bændablaðið | Fimmtudagur 8. febrúar 2018
Nafn Chicago-borgar í
Bandaríkjunum er dregið af shika-
kwaa, sem þýðir staðurinn þar sem
villtir laukar vaxa á máli Algonquia
indíána.
Uppruni og saga
Matlaukur er ekki þekktur í
náttúrunni nema þar sem hann hefur
dreifst út frá ræktun og því manngerð
tegund. Ekki er að fullu ljóst um
ætterni matlauksins en tegundirnar
A. vavilovii og A. asarense sem
finnast villtir í Íran eru taldir nánir
ættingjar hans. Fjöldi yrkja, afbrigði
og landsorta af matlauk eru nánast
óteljandi og sagt er að það sé til
laukur fyrir öll tækifæri.
Laukjurta hefur verið neytt til
manneldis frá ómunatíð en þeir sem
láta sig slíkt varða eru ekki á einu
máli um hvar ræktun á lauk hófst og
greinir þar aðallega á um hvort það
var í Asíu eða Persíu. Aðrir telja, og
benda á fornleifarannsóknir máli sínu
til stuðnings, að ræktunin hafi hafist
á svipuðum tíma í Kína, Mið-Asíu
og Persíu.
Rannsóknir benda til að laukur
hafi verið ræktaður í Kína allt að
5000 árum fyrir Krist og að hann
hafi verið verslunarvara sem flutt
var á milli héraða. Leifar matlauka
hafa fundist við fornleifarannsóknir
í bronsaldarbyggðum við botn
Miðjarðarhafs frá fimmtu öld fyrir
Kristsburð. Súmerskar leirtöflur
frá annarri öld fyrir Krist sýna
mataruppskriftir með lauk og í 4.
Mósebók 11:5 segir: „Nú munum
við eftir fiskinum sem við fengum
fyrir ekkert í Egyptalandi, gúrkunum,
melónunum, blaðlaukunum,
laukunum og hvítlaukunum.“ Sem
bendir til laukræktunar í Egyptalandi
á tíma sem Gyðingar eiga að hafa
flúið landið með Móses í broddi
fylkingar.
Laukur var hluti af trúarlífi
og helgisiðum Egypta og í þeirra
augum var lögun hans tákn um
eilíft líf og laukar finnast í myndlist
Forn-Egypta. Þeir voru notaðir við
greftrun og fundist hafa leifar af
lauk í augntóftum Ramses fjórða
faraós og laukur hefur varðveist í
hönd að minnsta kosti einnar múmíu
í Egyptalandi. Laukur var hluti fæðu
þeirra sem byggðu pýramídana og
fyrsta verkfallið sem sögur fara af
má rekja til þess að þeir fengu ekki
sinn daglega skammt af lauk.
Grikkir voru hrifnir af lauk
til matargerðar og rómverskir
skylmingaþrælar voru nuddaðir með
lauk til þess að stæla vöðva þeirra
og lengi hefur bardagahönum verið
gefinn laukur fyrir hanaat til að auka
styrk þeirra.
Rómverjinn Pliny eldri segir í
riti frá fyrstu öld frá lauk og káláti
í Pompei. Hann segir einnig að
Rómverjar hafi talið lauk góðan
við augnsjúkdómum, svefnleysi
og reyndar nánast öllu frá sári
í munni, verkjum í mjóbaki til
sýkinga af völdum dýrabita. Við
fornleifauppgröft í borginni Pompei
sem fór undir hraun árið 79 hafa
fundist minjar um laukagarða
svipuðum þeim sem Pliny segir frá.
Í Evrópu miðalda greiddu
leiguliðar landskuld með laukknippi
og þeir þóttu dýrmætir til gjafa og
Kristófer Kólumbus hafði með sér
lauka til Ameríku 1492. Laukar voru
með fyrstu nytjaplöntunum sem
evrópskir nýbúar ræktuðu í Norður-
Ameríku eftir landafundina þar.
Indíánar Norður-Ameríku þekktu til
lauka fyrir komu Evrópumanna og
ræktuðu og neyttu lauks sem kallast
Kanadalaukur, A. canadense, sem er
algengur um alla Norður-Ameríku.
Laukur þótti ástarörvi, allt frá
löndum Miðjarðarhafsins til Kína,
og sérstaklega þóttu fræin góð til
að kveikja undir líffærum lostans.
Laukurinn sjálfur var sagði góður við
ristregðu og skalla karla, ófrjósemi
kvenna og húsdýra og tannpínu og
hægðatregðu hjá báðum kynjum og
búpeningi.
Laukformið þekkist í bygg-
ingarlist í Austur-Evrópu, Tyrklandi
og í Rússlandi eins og vel má sjá
á turnum dómkirkju heilags Basil
í Moskvu. Laukformið er einnig
vel greinanlegt sem turn gamla
Landshöfðingjahússins sem kallast
Næpan og stendur við Skálholtsstíg
7 í Reykjavík.
Svíinn Carl Linnaeus var fyrstur
til að lýsa matlauk á prenti í bók
sinni Species Planntarum, sem kom
úr 1753.
Laukur í matinn
Þrátt fyrir að flestir sem skorið hafa
lauk hafi fengið tár í augun eru
vinsældir hans sem matvara miklar
og laukur notaður við margs konar
matargerð um allan heim. Reyndar
er auðvelt að losna við augnsviðann
með því að setja upp skíðagleraugu
við laukskurðinn. Lauks er neytt hrás,
steikts, pæklaðs og súrsaðs og það má
borða hann á ýmsum þroskastigum.
Einnig er hægt að fá þurrkaðan lauk
í duftformi sem laukkrydd. Laukur
eu um 90% vatn, 9% kolvetni og 1%
vítamín og steinefni.
Laukur er góður í salat og hann
má hita á pönnu og hafa með flestum
mat. Sjálfur vil ég pylsuna mína með
tómat og sinnepi og bæði steiktum og
hráum lauk.
Mest er laukneysla í Líbýu og
Albaníu, um 34 kíló á mann.
Hafa laukar sál?
Forngríski heimspekingurinn
Empedokles, 490 til 430 fyrir Krist,
sem þekktastur er fyrir hugmyndir
sínar um frumefnin fjögur, jörð, vatn,
loft og eld, hélt því fram að plöntur
hefðu sál. Hann taldi engu minni
synd að borða plöntur en dýr því að í
báðum tilfellum væri verið að taka líf.
Lærisveinum Empedokles var sérlega
illa við laukát þar sem laukar líktust
mannshöfðum að þeirra mati.
Í Austurlöndum er laukát sagt trufla
hugleiðslu.
Laukur í þjóðtrú
Samkvæmt þjóðtrú var gott að bera
lauk í vinstri hönd til að forðast
sýkingar. Einnig þótti gott að setja
hráan lauk á disk væru veikindi í
húsinu. Sagt er að laukurinn dragi í
sig bakteríu og hreinsi loftið. Þessi trú
er nokkuð lífseig og ekki fyrir löngu
var sagt að fólk með kvef og flensu
ætti að sofa í sokkum og með hráa
lauksneið undir iljunum til að flýta
bata. Því hefur verið fleygt að gott sé
að setja lauksneið í diskadrif tölvu og
láta liggja þar yfir nótt til að hreinsa
burt vírusa úr tölvunni.
Sagt er að gott sé að leggja lauk
við brunasár.
Til að auka gæfu sína er gott að
brenna lauk. Það að dreyma lauk er
sagt vera gæfumerki og vilji karlmenn
sjá fyrir lífsförunaut sinn í draumi
skal sofa með lauk undir koddanum
aðfaranótt 20. desember.
Ræktun á matlauk
Vel má rækta matlauk hér á landi
á skjólgóðum stað og við góðar
aðstæður. Sé ætlunin að rækta lauk upp
af fræi skal sá fræjum um miðjan mars
og forrækta inni þar til jarðvegshiti
hefur náð 6° á Celsíus. Einnig má
setja útsæðislauka í jörð í lok maí
með 10 til 15 sentímetra millibili.
Matlaukar dafna best á sólríkum stað
í vel framræstum moldríkum og eilítið
súrum jarðveg með sýrustig milli 5,5
og 6,5. Laukar þurfa reglulega vökvun
í þurrkatíð og sniglar eru sólgnir í þá.
Samkvæmt hugmyndafræði
samplöntunar fer vel að planta laukum
með káljurtum og jarðarberjum auk
þess sem laukar og rósir fara vel saman
og eru vinir.
Best er að geyma lauk á þurrum
stað við stofuhita.
Laukur á Íslandi og í nýlendunni
fyrir vestan
Ein tegund af ættkvísl Allium finnst
villt á nokkrum stöðum hér á landi,
A. oleraceum, og kallast villilaukur.
Mestar líkur eru á að tegundin hafi
verið flutt til landsins til nytja fyrir
alllöngu síðan. Í Laxdælu er sagt frá
laukagarði Guðrúnar Ósvífursdóttur á
Helgafelli. Laxdæla er talin rituð 1250
og ekki vitað hvort laukar hafa verið
ræktaðir í garðinum og líklegt að um
almennan matjurtagarð hafi verið að
ræða.
Í tímaritinu Framfari, 1878, sem
gefið var út á íslensku í Manitoba í
Kanada, er grein eftir ónefndan höfund
sem ætlað er að kynna Íslendingum í
nýlendunni fyrir ræktun á lauk. Ekki er
annað að sjá en að ræktunaraðferðin sé
í fullu gildi og gagnist þeim sem vilja
rækta lífrænan matlauk.
„Frá ómunatíð hefir laukurinn
verið ræktaður sem krydd og
hafður í súpu, kjötmat o.s.frv. hjá
öllum jarðyrkjuþjóðum. Auk þess
næringarefnis, sem í honum er, hefir
hann einnig i sjer lækningarefni, sem
er einkum hollt i hósta og kvefi og
yfirhöfuð fyrir brjóstveika. Þar að auki
er laukur einnig ágætt varnarmeðal
móti skyrbjúgi.
Hann sprettur best i feitum og
lausum jarðvegi, jörðin má vera
nokkuð sendin og rök því laukurinn
þarf mikinn hita og nokkra vætu til að
spretta vel, þess vegna eru dældir milli
hryggja, sem sandur hefir runnið ofan
i, hentugur sáningarstaður fyrir hann.
Sje jörðin mögur, og frjóvgunarefnið
að miklu leyti úttæmt, þarf að bæta
hana með áburði; hentugasti áburður er
hin feita svarta mold (loam), sem hjer
er víða i nýlendunni, eða gömul (fúin)
mykja og er best að hún sje blönduð
með hrossataði.
Það er hæfilegt að plægja fjögurra
þuml. djúpt, herfa svo yfir, og mylja
moldina mjög smátt. Sá skal í grunnar
rásir, með tólf eða fjórtán þuml.
millibili en láta þrjá til fjóra þuml. vera
á milli frækornanna í rásinni, raka svo
mold yfir.
Best er að sá sem fyrst a vorin, er
veður og jörð leyfir, og mun hæfilegur
sáningartími hjer í nýlendunni vera
mánaðamótin apríl og maí.
Einnig má sá laukhnúðunum
sjálfum, og skal þá hafa til
sáningarinnar litla eða hálfvaxna lauka
frá undanfarandi ári.
Tvö lóð af fræi er hæfilegt í sáðreit,
sem er 24 feta langur og 5 feta breiður.
Það þarf vandlega að reyta burt illgresi,
og venjulegt er að reyta það þrisvar
sinnum. Í fyrstu tvö skiptin, þegar
illgresi er reytt skal róta jörðinni
dálitið upp að plöntunum, en þegar
reytt er í þriðja og síðasta sinni, skal
sópa moldinni burt, svo að laukurinn
verði því nær allur ofanjarðar.“
Tákn um eitthvað gott
Í íslensku stendur laukur oft sem tákn
un eitthvað jákvætt. Holdlaukar eru
í bógum og lærum fénaðar sem eru
í góðum holdum. Þannig er sá sem
talinn er bera af í fjölskyldum kallaður
ættarlaukurinn og sagt er að það sé
einn laukur í ætt hverri.
Orðasambandið að stíga í laukana
þýðir að lifa í sæld og ef eitthvað er
sagt vera laukrétt getur það ekki verið
réttara og betra er að vera laukur í
lítilli ætt en strákur í stórri.
Ætluð heimsframleiðsla á matlauk í heiminum er um 85 milljón tonn á ári og hefur framleiðslan um það bil tvöfaldast á síðustu tíu árum.
Neðanjarðarhlutinn er laukur, hvítur, rauður eða gulur að lit og misstór eftir
yrkjum.
Á átjándu öld og fram á þá nítjándu var algengt að franskir lauksalar færu