Bændablaðið - 08.02.2018, Side 42
42 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. febrúar 2018
Undanfarin ár hefur
mjaltaþjónum hér á landi fjölgað
ört og nú um áramótin voru 180
kúabú með slíka tækni í notkun
og hafði þeim fjölgað um 30 bú
frá árinu á undan, eða um 23% á
einungis einu ári.
Um áramótin voru 222
mjaltaþjónar í notkun hér á landi
en þeir voru 192 um áramótin
2016–2017 og hefur því fjölgað
um 30 stykki, eða um 16%. Alls
lögðu 150 mjaltaþjónabú inn mjólk
allt síðasta ár og voru þrjár ólíkar
gerðir mjaltaþjónategunda í notkun
hér á landi allt árið 2017, þ.e. frá
Lely, DeLaval og GEA. Á árinu
2017 bættist svo við ein ný tegund
mjaltaþjóns hér á landi er Fullwood
kom einnig inn á markaðinn.
Hvert bú með 435 þúsund lítra að
jafnaði
Að jafnaði var hvert mjaltaþjónabú,
sem lagði inn mjólk allt síðasta ár, að
leggja inn 439 þúsund lítra á síðasta
ári. Eðlilega var töluverður munur á
milli mjaltaþjónabúanna og þannig
lögðu t.d. þrjú bú inn meira en 1
milljón lítra hvert og 31 bú inn meira
en hálfa milljón lítra.
Framantalin 150 kúabú lögðu á
síðasta ári inn 65,8 milljónir lítra og
við þá tölu bætist svo mjólk þeirra
30 mjaltaþjónabúa sem bættust við
á árinu.
Ef miðað er við að þessi 30 bú
hafi skilað að meðaltali helmingi
framleiðslu þeirra mjaltaþjónabúa
sem voru með framleiðslu allt árið,
þá má áætla að heildarframleiðsla
mjaltaþjónabúa hér á landi hafi
verið í kringum 72 milljónir lítra
sem er tæplega helmingur allrar
framleiddrar mjólkur hér á landi.
Dagljóst er að árið 2018 mun þetta
hlutfall halda áfram að hækka.
Vannýtt afkastageta
Þar sem meðalfjöldi mjaltaþjóna á
hverju búi var 1,28, var innvigtun á
bak við hvern mjaltaþjón 343 þúsund
lítrar að meðaltali og er verulega
mikill munur á milli búa þegar horft
er til nýtingar mjaltaþjónanna. Sé
horft til þeirra búa sem lögðu inn
mesta mjólk frá hverjum mjaltaþjóni
þá lögðu fjögur bú inn meira en hálfa
milljón lítra og voru allar þrjár gerðir
mjaltaþjónategunda hér á landi þar á
meðal. Mesta innlagða mjólkin frá
einum mjaltaþjóni árið 2017 voru
552.555 lítrar.
Ef horft er til hámarks-
framleiðslugetu mjaltaþjóna hér
á landi, miðað við innlagða mjólk
frá hverjum mjaltaþjóni árið 2017,
þá er ljóst að tæknilega séð þá geta
mjaltaþjónar landsins afkastað mun
meiru en þeir gerðu á síðasta ári.
Ef allir mjaltaþjónar landsins
hefðu t.d. skilað jafn mikilli mjólk
í afurðastöð og sá afurðamesti hefði
þetta magn verið 106,1 milljónir
lítra.
Tæknileg framleiðslugeta er
því töluvert meiri en núverandi
nýting bendir til, en skýringin á
þessum mun á milli búa felst m.a. í
mismunandi afurðasemi kúa, fjölda
kúa sem pláss er fyrir í hverju
bú, framleiðsluheimildum og svo
hefur lengi verið þekkt að bústjórn
og vinnulag skiptir verulegu máli
einnig.
72 árskýr á hverju mjaltaþjónabúi
Alls voru 10.747 árskýr á þeim
150 mjaltaþjónabúum sem lögðu
inn mjólk allt síðasta ár sem svarar
til 71,6 árskúm að jafnaði á hverju
mjaltaþjónabúi og að jafnaði voru
56,0 árskýr um hvern mjaltaþjón.
Þessi fjöldi árskúa á hvern mjaltþjón
er í góðu samræmi við nýtingu
mjaltaþjóna hér á landi undanfarin ár.
Það vekur þó athygli að sum bú
eru töluvert langt ofan við önnur
bú þegar horft er til árskúafjölda
á hvern mjaltaþjón og voru alls
21 bú með fleiri en 70 árskýr um
hvern mjaltaþjón á síðasta ári.
Væntanlega hefur verið í nógu að
snúast á þessum búum en erlendar
vinnurannsóknir hafa sýnt að
vinnuálag á mjaltaþjónabúum
snareykst þegar árskúafjöldinn er
um og yfir 70 kýr.
7 bú með lægri frumutölu en 150
þúsund
Að nota mjaltaþjón við mjaltir
getur reynt svolítið á þolrifin þegar
mjólkurgæði eru annars vegar, en
mælingarnar frá síðasta ári sýna
þó að það er vel hægt að framleiða
hágæða mjólk með mjaltaþjóni bæði
þegar horft er til frumu- og líftölu
mjólkur.
Margfeldismeðaltal frumutölu
þeirra mjaltaþjónabúa sem lögðu
inn mjólk allt síðasta ár var 233
þúsund frumur/ml sem er vissulega
ekki lágt en sé horft til einstakra
búa þá skáru nokkur bú sig úr hvað
snertir frumutölu. Þannig voru t.d. 7
bú með meðaltal undir 150 þúsund
frumur/ml og þar á meðal voru allar
þrjár gerðir mjaltaþjónategundanna
og af þessum búum voru 3 þeirra
með meðaltal sem var lægra en 125
þúsund frumur/ml. Frumulægsta
Stuðningsgæludýr í flugvélum:
Páfuglinn Dexter fékk
ekki að fara um borð
Konu nokkurri
var meinað
um að hafa
gælupáfuglinn
sinn með um
borð í flugvél
United Airlines
fyrir skömmu. Í
innanlandsflugi í
Bandaríkjunum
hafa f lug-
hræddir haft
leyfi til að
hafa með sér
stuðnings gælu-
dýr til andlegs
stuðnings.
United flug-
félagið taldi að
eigandi fullvax-
ins páfugls hefði
farið yfir strikið
þegar konan
sem á fuglinn mætti með hann til
innritunar í flug og bannaði henni
að hafa fuglinn með sér um borð.
Aðdragandi málsins er að farþegar
sem þurfa blindrahunda mega hafa
með sér hundana í innanlandsflugi
í Bandaríkjunum sér til stuðnings.
Einnig hefur fólk sem þjáist af
flughræðslu fengið að hafa með sér
stuðningsgæludýr í innanlandsflugi.
76.000 stuðningsdýr á ári
Gríðarleg aukning hefur orðið í að
fólk vilji hafa með sér stuðningsdýr
í flug og á síðast ári voru 76 þúsund
dæmi skráð um slíkt en 46 þúsund
árið 2016. Stuðningsdýrin sem
flugfarþegar hafa haft með sér í flug
til þessa eru margs konar, hundar,
kettir, skjaldbökur, grísir og endur.
Að sögn talsmanns United var
konunni þrisvar sinnum greint frá því
áður en hún kom að innritunarborðinu
að hún fengi ekki að fara með fuglinn
um borð þrátt fyrir að hún hafi keypt
fyrir hann flugsæti.
Konan beitti fyrir sig þeim
rökum að hún treysti sér ekki til
að fljúga án þess að hafa páfuglinn
Dexter sér við hlið. Að lokum var
rökum konunnar hafnað á þeim
forsendum að páfuglinn væri of
stór og ómeðfærilegur til að vera í
farþegarýminu.
Nauðsynlegt að endurskoða
reglurnar
Talsmaður United segir nauðsynlegt
að endurskoða reglurnar um
stuðningsdýr í flugvélum. Til dæmis
að tryggja að þau séu heilbrigð og
sérþjálfuð til stuðnings.
Eigandi páfuglsins neitaði að fara
í flugið án Dexters og segir sagan að
konan hafi fengið sér bílaleigubíl
og keyrt þvert yfir Bandaríkin til að
komast í sumarfrí. /VH
Á FAGLEGUM NÓTUMUTAN ÚR HEIMI
Mega vera þriggja til fimmtán vetra
Greiðum 20.000,- án vsk. fyrir hryssuna og sækjum
frítt á Suðurlandi, Vesturlandi og Norðvesturlandi
austur, í Eyjafjörð.
Nánari upplýsingar hjá hryssa@isteka.com eða í síma
581 4138.
Geymið auglýsinguna!
Hrossabændur
óska eftir hryssum
Um áramótin voru 222 mjaltaþjónar í notkun hér á landi en þeir voru 192 um áramótin 2016–2017 og hefur því fjölgað
um 30 stykki, eða um 16%. Mynd / HKr.
Snorri Sigurðsson
snsig@arlafoods.com
Mjaltaþjónabú á Íslandi eru nú 180:
Standa undir tæplega helmingi
mjólkurframleiðslunnar
Þrjár ólíkar gerðir mjaltaþjónateg-
unda voru í notkun hér á landi allt
árið 2017, þ.e. frá Lely, DeLaval og
GEA. Á árinu 2017 bættist svo við
ein ný tegund mjaltaþjóns hér á
landi er Fullwood kom einnig inn á
markaðinn.
Páfuglinn Dexter við innritunarborðið.
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300