Bændablaðið - 08.02.2018, Side 45

Bændablaðið - 08.02.2018, Side 45
45Bændablaðið | Fimmtudagur 8. febrúar 2018 Í kringum 1940 hefst sá merki kafli í sögu sauðfjárræktar á Íslandi að sauðfjárræktarfélög fara að starfa en á Búnaðarþingi 1939 voru starfsreglur þeirra samþykktar. Félögin gegndu lykilhlutverki í uppbyggingu skýrsluhaldsins og voru því grunnstoð í ræktunarstarfinu. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar. Í dag hafa forsvarsmenn félaganna ekki neinum skyldum að gegna í skýrsluhaldinu og þau njóta ekki lengur fjárframlaga út á skýrslufærða gripi. Skýrsluhaldsniðurstöður eru nú mun aðgengilegri en áður var þar sem upplýsingar má nálgast inn í skýrsluhaldskerfinu Fjárvís.is. Starfsemi ráðunauta þjón- ustunnar er nú í meira mæli rekin á notendagjöldum en opinberum framlögum en sauðfjárræktarráðunautar störfuðu þétt með félögunum. Víða hefur starfsemi þessara félaga lognast út af en það er þó alls ekki raunin í öllum sveitum. Sum félögin lifa enn góðu lífi og halda úti ýmiss konar starfsemi sem lýtur að því að efla sauðfjárrækt félagsmanna. Óhætt er að fullyrða að þar sem gróskan er mikil í slíku starfi má sjá árangurinn í öflugri fjárrækt. Dæmi um starfsemi félaganna í dag eru sameiginlegar hrútasýningar (þar sem slíkt er mögulegt), skipulag lambadóma, verðlaunaveitingar, sameign á tækjum og tólum, kynnisferðir, námskeiðahald og sameign á kynbótahrútum. Til að standa straum af rekstri félaganna hafa þá gjarnan verið tekin upp félagsgjöld, félög hafa sameinast eða tekið upp samstarf. Fastur punktur í starfi margra fjárræktarfélaga hefur verið árlegur fundur þar sem farið er yfir niðurstöður skýrsluhaldsins og fleira tengt málefnum sauðfjárbænda. Þessu sinna ráðunautar RML nú sem áður, en slík þjónusta hefur verið verðlögð sem nemur tveggja stunda vinnu og kostar fundurinn nú 15.000 kr. Okkur þykir mikilvægt að sinna þessu starfi áfram, efla tengslin við bændur og bjóða félögunum upp á fræðslu tengda sauðfjárrækt og kynbótastarfinu. Forsvarsmenn fjárræktarfélaga eða annarra félaga sem starfa að eflingu sauðfjárræktar eru því hvattir til að nýta sér þessa leið til að fræðast og ræða saman um hvað eina sem tengist sauðfjárrækt. Hægt er að beina fyrirspurnum til sauðfjárræktarráðunauta eða ráðunauta á viðkomandi svæði sem hafa sinnt sauðfjárræktinni. Tími fjárræktarfélaganna er ekki liðinn en starfsemin þarf að þróast í takt við nýja tíma. Eyþór Einarsson ábyrgðarmaður í sauðfjárrækt ee@rml.is Er tími fjárræktar- félaganna liðinn? Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins auglýsir eftir ráðunaut til þess að sinna fjölbreyttri ráðgjöf í nautgriparækt. Starfs- og ábyrgðarsvið: » Starf í ráðgjafateymi RML og sérstaklega faghópi nautgriparæktar og fóðrunar. » Fjölbreytt ráðgjöf með áherslu á fóðrun og kynbætur í nautgriparækt. » Þróun og sala á fjölbreyttri ráðgjöf á landsvísu í samstarfi við annað starfsfólk RML. » Önnur tilfallandi verkefni. Menntunar og hæfniskröfur: » Háskólapróf sem nýtist í starfi og framhaldsmenntun á sviði fóðrunar, kynbóta eða annara þátta sem tengjast framleiðsluferlum í nautgriparækt æskileg. » Þekking á sviði landbúnaðar. » Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð. » Geta til að vinna undir álagi. » Góðir samskiptahæfileikar. Við leitum að einstaklingi með brennandi áhuga á nautgriparækt í sínum víðasta skilningi og sem hefur metnað og frumkvæði sem nýtast til að byggja upp þekkingu sem nýtist til að efla búgreinina. Gert er ráð fyrir að starfsstöð viðkomandi verði á Akureyri. Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins er ráð gjafar - fyrirtæki í eigu bænda sem sinnir landbúnaðarráðgjöf um allt land. Starfsemin er dreifð um landið á 13 starfsstöðvum. Við bendum áhugasömum á heimasíðu fyrirtækisins www.rml.is þar sem sótt er um starfið, en þar er einnig hægt að kynna sér starfsemina enn frekar. Umsóknarfrestur er til og með 22. febrúar. Nánari upplýsingar veita Karvel L. Karvelsson klk@rml.is og Berglind Ósk Óðinsdóttir boo@rml.is. RÁÐUNAUTUR Í NAUTGRIPARÆKT rúarbfe. og fitumats, það hlutfall er 2,60 árið 2017 og hefur sú tala hækkað á undanförnum árum. Af búum sem höfðu holdfyllingarmat yfir 9,5 árið 2017 hafa tvö bú hlutfallstöluna 3 eða hærra. Það er bú LbhÍ að Hesti og bú Bergs Sigfússonar að Austurhlíð í Skaftártungu. Sláturaldur, kjötprósenta og bötun Ytri aðstæður til sauðfjárræktar hafa sjaldan verið verri en árið 2017 við þá miklu lækkun afurðaverðs sem þá varð. Kynbótastarfið í sauðfjárrækt hefur undanfarin ár skilað okkur þeim árangri að framleiðni hvers grips hefur aukist umtalsvert. Ef skoðuð eru gögn frá 1996 og 2016 um fjölda sauðfjár í landinu og heildarframleiðslu kindakjöts hefur framleiðslumagn á hvern grip aukist um 21,3%, þar af 13,5% á árunum 2006-2016. Meðalaldur sláturlamba er 138 dagar fyrir árið 2017. Á 2. mynd má sjá tengsl sláturaldurs og fallþunga lamba. Sambærilegar myndir fyrir síðustu ár sýna sama mynstur, þ.e. fram að 135 daga aldri eru lömbin stöðugt að þyngjast en síðan virðist fallþungi lambanna falla og ekki aukast að ráði fyrr en þau eru orðin 160 daga gömul. Þetta atriði þurfa bændur að skoða mjög vel. Vitað er að ekki kemst allt fé til slátrunar á sama tíma en ef menn gera ekki ráðstafanir varðandi beit eru menn að tapa á því að geyma lömbin of lengi. Áborin há er hentugasta beitin fyrir lömb sem þarf að geyma í 2-4 vikur en grænfóður getur borgað sig fyrir minnstu lömbin sem geyma á, í mánuð eða lengur – ávinning kálbeitar þarf þó alltaf að horfa á með gagnrýnum augum og ekki er hægt að mæla með bötun lamba nema eftirspurn sé eftir slíku. Þessu tengt þurfa menn að hafa í huga hvernig kjötprósenta lamba breytist eftir því sem lömbin verða eldri. Í skýrsluhaldinu voru ríflega 190.000 lömb árið 2017 sem hafa upplýsingar um kjötprósentu þar sem líða 15 dagar eða minna frá vigtunardegi lífþunga að sláturdegi. Í 3. töflu má sjá hvernig kjötprósentan breytist eftir sláturvikum yfir haustið. Í ágústslátrun er kjötprósentan 43,3% en lækkar svo niður í 41% þegar komið er fram í október. Þannig er lamb sem vigtar 38 kg 20. ágúst að vigta 16,5 kíló væri því slátrað þá, en lamb með sama lífþunga í byrjun október myndi vigta 15,6 kíló. Munur upp á 900 grömm. Þetta er atriði sem bændur þurfa almennt að gefa betri gaum og vera duglegri við að vigta lömb og velja sláturlömb á þeim grunni. Að lokum Listar með öllum helstu niðurstöðum skýrsluhaldsins árið 2017 er hægt að finna á heimasíðu RML. Þar má einnig finna niðurstöður skýrsluhaldsins undanfarin ár. Grunnforsenda allrar upplýsinga- öflunar er vel fært skýrsluhald og flest þau bú sem eru að ná góðum árangri eru að nýta sér kosti skýrsluhaldsins til fullnustu. Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.