Bændablaðið - 08.02.2018, Síða 46

Bændablaðið - 08.02.2018, Síða 46
46 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. febrúar 2018 Fyrir nokkrum árum prófaði ég Dacia Duster þegar hann kom fyrst á markað hér. Svo hrifinn varð ég að ég keypti einn slíkan og átti í tvö ár. Fínn bíll til almenns brúks, sparneytinn og þægilegur í alla staði. Ástæða þess að ég seldi bílinn var lítið farangursrými og að mér fannst vélin of lítil þegar kerra var hengd aftan í bílinn. Nú er kominn nýr Duster og töluvert breyttur sem ég prófaði fyrir stuttu. Sama vél og kassi, en útlit og þægindi bætt Dísilvélin er sú sama og alltaf hefur verið í boði, 1461 rúmsentímetra vél (CC) sem skilar 110 hestöflum við 4000 snúninga. Gírkassi og drif er það sama og í eldri bílunum. Dráttargetan er því sú sama og er 1.500 kg með hemlum, en ekki nema 695 kg án hemla. Nýtt mælaborð, GPS leiðsögukerfi, loftþrýstiskynjarar í dekk og ýmislegt annað hefur breyst inni í bílnum á þessum þremur árum síðan ég skrifaði um Duster. Einn kunningi minn sagði að með því að færa flauturofann úr stefnuljósarofanum í stýrið hefði bíllinn farið hjá sér úr traktorsflokki í flokk jepplinga. Fyrir mér var flautan ekkert vandamál enda sjaldan notuð, aðalatriðið er að stjórntæki séu þannig að maður þurfi ekki að líta af veginum né teygja sig mikið í stjórntæki samanber að stilla útvarp, spegla og fleira. Nýi bíllinn er aðeins breiðari og lengri en fyrri árgerðir og því þægilegri í akstri og stöðugri. Bíllinn virðist að keyra og í útliti vera lengri og breiðari, en uppgefin mál bílsins eru nánast þau sömu og í bílnum sem prófaður var af Bændablaðinu 15. nóv. 2012. Afar sparneytinn bíll við réttar aðstæður Á þeim tíma sem ég átti minn Duster náði ég nokkrum sinnum meðaleyðslunni niður í 4,6 lítra á hundraðið í langkeyrslu og í innanbæjarakstri var ég oftast að eyða á milli 5,5 til 6,5 lítrum. Eyðslan rauk upp í miklum vindi og þegar ég var með kerru aftan í bílnum, var oft á bilinu 7–12 lítrar á hundraðið, en það fór eftir hvað verið var að draga þungt. Prufuaksturinn hjá mér á nýja bílnum var rúmir 150 km og var meðalhraðinn 38 km hraði og samkvæmt aksturstölvunni var ég að eyða 6,2 lítrum á hundraðið. Útsýnið er töluvert breytt í nýja bílnum til hins betra og hallar framrúðan töluvert meira á nýja bílnum. Svona mikið hallandi rúðu er tilvalið að bóna með Ultra Glozz bóni og þá þarf maður aldrei að nota þurrkur og mun auðveldara að skafa á morgnana. Hliðarspeglarnir eru enn þeir sömu, en að mínu mati eru þeir óþægilega litlir. Langsöluhæsti jepplingurinn Nýi Dacia Duster bíllinn er fáanlegur í ýmsum útgáfum. Á 16 tommu felgum án bakkmyndavélar var bíllinn sem ég prófaði, en í boði er að fá bílinn á 17 tommu felgum. Sé bíllinn settur á 17 tommu felgur tel ég að við það tapist mikið af jepplingaeiginleikum og fjöðrun verði of stíf. Hins vegar er ég alltaf hrifnastur af stálfelgum þar sem svoleiðis felgur gefa svolitla fjöðrun á vondum vegum. Í bílnum sem ég prófaði var ekkert varadekk, en varadekkslaus bíll er ekki boðlegur við svona lélegt vegakerfi sem við Íslendingar búum við. Fyrri árgerðir af Duster voru allir með fulla stærð af varadekki (ekki aumingja eins og í mörgum öðrum bílum). Vona ég að þetta sé einhver mistök sölumanna að sýna og lána til prufuaksturs varadekkslausan jeppling sem nú þegar eftir fjögur ár á Íslandi er orðinn lang söluhæsti jepplingurinn öll árin sem hann hefur verið í sölu. Ánægður með sumt en vantar að breyta öðru Það fyrsta sem ég tók eftir var að takkinn sem var til að opna afturhlerann var farinn. Hann mátti alveg missa sín, fraus alltaf fastur í frosti og á drullugum malarvegum fylltist holan af drullu. Nú er afturhlerinn opnaður eins og í flestum öðrum bílum með því að setja höndina undir handfangið og lyfta upp. Flest allt við mælaborðið er betra og sérstaklega var ég ánægður að sjá GPS fyrir þá sem ekkert rata og 4x4 upplýsingarnar um halla og stefnu bílsins. Nýju afturljósin eru að mínu mati flottari. Það sem vantar eru stærri hliðarspeglar, en ég mæli með að tekinn sé bíll með akreinavara í hliðarspeglum sem er að mínu mati mikill öryggisauki fyrir ökumann á þessum bíl. Eitt vantar sárlega í Duster, en það er takki til að læsa algjörlega öllum hjólum ef maður festir bílinn. Að öðru leyti er bíllinn góð fjárfesting fyrir það verð sem hann er boðimn á, sem er frá 3.590.000, sem er bensínbíllinn og væntanlegur er í mars, en fjórhjóladrifni dísilbíllinn er á verði frá 3.690.000. Elsneytistankur 50 lítrar Hæð 1.693 mm Breidd 1.804 mm Lengd 4.341 mm Helstu mál og upplýsingar É ÁV LAB SINN Hjörtur L. Jónsson liklegur@internet.is Við fyrstu sýn og þetta sjónarhorn er Duster eins og sá gamli. Myndir / HLJ Munurinn er mestur að sjá aftan á bílinn. Virkar aðeins breiðari að sjá, en afturljósin minna óneitanlega á Jeep Renagade. Takkinn leiðinlegi til að opna afturhlerann farinn og nú er kominn opnari á mun þægilegri stað. Lítill snertiskjárinn var mér óvenju auðveldur í notkun og gefur mikið magn ýmissa upplýsinga. Ekkert varadekk, tjakkur né felgulykill á íslenskum vegum. Það er eitthvað sem banna ætti með lögum.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.