Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1989, Qupperneq 6
Af störfum ræðara
og stýrimanns
Undanfarið hefur verið unnið að
framkvæmd hinnar félagslegu fram-
kvæmdaáætlunar Þroskahjálpar og
Öryrkjabandalagsins. I mörgu hefur
verið að snúast og að mörgu þurft að
huga.
FUNDIR Á LANDSBYGGÐINNI
Kynning á málefninu sem og sam-
starfi Þroskahjálpar og Öryrkja-
bandalags eru meðal þeirra verkefna
sem unnið hefur verið að með ýmsum
hætti s.s. með skrifum í blöð og tímarit.
Þá hafa fundahöld úti á landi einnig
verið notuð í sama tilgangi, auk þess
sem leitast er við að finna leiðir til að
samtökin geti í sameiningu náð ár-
angri.
I félagslegri framkvæmdaáætlun
stendur m.a. að samtökin skuli hafa
frumkvæði að almennum fundahöld-
um víðs vegar um land og að mynda
skuli 3-5 manna hóp á hverju svæði, er
sjái urn kynningu og fræðslu til ýmissa
aðila.
Mikilvægt er að varpa ljósi á störf
aðildarfélaganna á hverjum stað og
viðra hugmyndir með framtíöina í
huga. Þannig fæst betri yfirsýn en ella
af aðstæðum og geta samtökin því
komið sterkari fram. Reynt er að nýta
ferðimar eins og kostur er. Skólar eru
heimsóttir, þar sem námsefni um mál-
efni fatlaðra er kynnt ásamt því sem
sagt er frá Starfsþjálfun fatlaðra, starf-
semi Tölvumiðstöðvar fatlaðra og
fleiru sem til fellur. Ferlimálin eru
skoðuð og athugað hvað betur má fara.
Þessum málum er síðan fylgt eftir með
bréfaskriftum og samtölum.
AÐ NÁ TIL FLESTRA
LANDSHLUTA
Fyrsta ferðin var farin á Selfoss í
nóvember síðastliðnum. Á fundinn
mættu milli 40 og 50 manns. I des-
ember var farið til Vestmannaeyja og
fundur haldinn í Kertaverksmiðjunni
þar sem 16 heimamenn mættu. Á
þessum fundum urðu til hópar þar sem
Þau skemmtu sér vel á námskeiðinu.
í eru fulltrúar frá báðum samtökum. Þá
fór stýrimaður á fund sem haldinn var
á Isafirði á vegum Sjálfsbjargar. Ofan-
greindar ferðir eru aðeins byrjunin og
er áætlað að fara 8 ferðir á þessu ári.
Tvær þær næstu verða farnar til Homa-
fjarðar 9. febrúar og til Keflavíkur 23.
febrúar næstkomandi. Þannig hyggj-
umst við ná til flestra landshluta.
NAMSKEIÐ I SAMVINNU VIÐ
SKÁTA
Þá er hafin samvinna við Bandalag
íslenskra skáta um starfrækslu útivist-
arnámskeiða sniðin að þörfum fatl-
aðra. Tvö slík námskeið voru haldin
síðastliðið sumar og þóttu takast vel.
Farið var í Nauthólsvík þar sem ýmis
verkefni voru leyst; t.d. kenntááttavita
og farið í bátsferðir. Slökkvistöðin var
skoðuð, farið til Krísuvíkur, um
Reykjanessvæðið og að Bláa lóninu,
Viðey var heimsótt og farið í útilegu í
Heiðmörk þar sem kennt var að tjalda,
elda mat á eldi og um kvöldið efnt til
kvöldvöku.
Skátarnir hafa látið í ljós ánægju
með þessi námskeið og eru reiðubúnir
til frekara samstarfs. Áætlað er að
halda fleiri svipuð námskeið næsta
sumar. Þá er ætlunin að efna til undir-
búningsnámskeiðs fyrir leið-
beinendur þar sem þeir fá tilsögn í
ýmsu sem nauðsynlegt er að kunna skil
á.
NÁMSEFNI í
FRAMHALDSSKÓLA
Einnig hefur verið unnið að því að
koma námsefni um málefni fatlaðra í
framhaldsskóla. En nú eru Mennta-
skólinn í Hamrahlíð og Menntaskólinn
í Kópavogi þeir einu sem hafa slíkt efni
á boðstólum. Samráð hefur verið haft
við Guðrúnu Hannesdóttur sem sér um
6