Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1989, Page 16
Þorlákur Hermannsson
STARFSEMI LAUF:
31. mars 1984 voru formlega
stofnuð í Reykjavík Landssam-
tök áhugafólks um flogaveiki
LAUF, skráðir stofnfélagar
voru 107.
LAUF eru því orðin 5 ára
gömul samtök. Ari seinna eða
22.júní 1985 var stofnuð LAUF
deild á Norðurlandi eystra. I dag
eru félagar orðnir vel á þriðja
hundrað.
Aðalmarkmið samtakanna
eru:
1. Fræðsla og upplýsingamiðl-
un til félagsmanna og almenn-
ings um flogaveiki.
2. Að bæta félagslega aðstöðu
flogaveikra.
3. Að styðja rannsóknir á floga-
veiki.
Á þeim 5 árum sem samtökin
hafa starfað hefur verið reynt að
koma umfjöllun um flogaveiki
upp á yfirborðið, þar sem að hún
hefur alltaf verið feimnismál.
Þögn, þekkingarleysi og for-
dómar um flogaveiki hafa orðið
þess valdandi að gróusögur og
kerlingabækur hafa blómstrað.
Til að fá fram sannleikann og
umfjöllun um flogaveiki hafa
samtökin haldið 20 kynningar-
og fræðslufundi, gefið út tvö
LAUF-blöð sem er frétta- og
LANDSSAMTOK
ÁHUGAFÓLKS
UM FLOGAVEIKI
5 ÁRA
kynningarrit samtakanna og
einn fræðslubækling sem heitir
Flogaveiki, Hvað er það?
Hvemig skal bregðast við?
LAUF er fullgildur aðili að
samnorrænum flogaveikis-
samtökum. Þau hafa átt fulltrúa
á fjórum norrænum ráðstefnum
um málefni flogaveikra svo og á
þingi alþjóðasamtaka gegn
flogaveiki.
LAUF er einnig aðili að
Ö.B.I: og verður seint þakkaður
sá stuðningur og velvilji sem
samtökin hafa sýnt félagsskap
okkar.
Félagar í LAUF búa vítt og
breitt um landið og til að allir
geti fylgst sem best með því
hvað er að gerast, hefur stjóm
LAUF sent út fréttabréf með
jöfnu millibili síðustu 3 árin. Þar
1AUF
er greint frá því helsta sem
fjallað er um á fræðslufundum
og félagsfundum auk annars
sem fréttnæmt þykir.
Þorlákur Hermannsson.
Fyrsta stjórn LAUF.
16