Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1989, Qupperneq 19
Úrvalið er nóg. Edda sér um það.
kjallarann, þar samtals 682 fer-
metrar. Byggingarnefndin var
skipuð þeim Birni Tiyggvasyni,
Ásgeiri Sigurðssyni og Hannesi
Haukssyni.
Starfsmenn með nefndinni
voru Trausti Sigurlaugsson og
Haukur Bjömsson. Sjálfsbjörg
annaðist greiðslur og bókhald
vegna framkvæmdanna í um-
sjón Páls Valdimarssonar og El-
ínar Ólafsdóttur.
Að þessu verki, hönnun sem
og öllum störfum öðmm, hafa
ótal margir aðilar komið og skil-
að sínu verki mjög vel.
Með hinni nýju byggingu er
bankinn búinn að fá eins góða
aðstöðu og hægt er að ætlast til,
á ákjósanlegum stað, mið-
svæðis við reit höfuðstöðva
Sjálfsbjargar og Oryrkja-
bandalagsins.
Geta skal þess að oft hefur
rekstur verið erfiður og þá hafa
eignaraðilar - Rauði krossinn
og Sjálfsbjörg hlaupið undir
bagga með ómetanleg óaftur-
kræf framlög. Fullyrða má að
framtak og fmmkvæði þessara
tveggja eignaraðila hefur spar-
að ríkisvaldinu stórar fjárhæðir
og aukið þjónustu á þessu sviði.
Við hér í Öryrkjabandalag-
inu flytjum heilla- og ham-
ingjuóskir starfsfólki, stjórn og
eignaraðilum með hið glæsta og
góða verk.
Megi innstæður og útlán
ávalt vera sannri farsæld fólg-
in.
H.S.
Ásgerður framkvæmda-
stjóri Ingimarsdóttir lét
Fréttabréfinu í té gátur
þessar, er faðir hennar ,
Ingimar Jóhannesson full-
trúi fræðslumálastjóra
hélt til haga.
Gáta:
20 karlmannsnöfn.
1. Einn gerir á ísum herja.
2. Annar byijar viku hverja.
3. Með þriðja ervani að hús-
um að hlúa
4. Hét hinn fjórði á guð að
trúa
5. Fimmti hylur ásjónu íta.
6. Ei má skam á sjötta líta.
7. Sjöundi mér sýnist dott-
inn.
8. Sá áttundi - það er meiri
spottinn.
9. Dauðann níundi ei
nálgast hót.
10. Nauða tíundi þyrfti um
snót.
11. Hjá ellefta stendur
heimskan hátt.
12. Heima í þeim tólfta sá
hefur átt.
13. Þrettánda fysir fjöri að
granda.
14. Fjórtándi sýnir mér
skipun landa.
15. Fimmtándi á himni fæð-
ist og deyr.
16. Fleygir sextándi hvöss-
um geir.
17. Seytjándi er afleiðing
unaðstíða.
18. Átjándi má í saurinn
skríða.
19. Eg þeim nítjánda á eld-
inn kasta.
20. Með andanum dreg ég
þann tuttugasta.
(Ráðning er á bls. 27)
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
19