Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1989, Blaðsíða 27

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1989, Blaðsíða 27
Helgi Selian: Um Framkvæmdasjóð fatlaðra Þegar þetta tölublað Frétta- bréfsins kemur út, verður trúlega ljóst hver orðið hefur skipting Fram- kvæmdasjóðs fatlaðra, þess fjár sem sá sjóður hefur yfir að ráða og nemur í ár 201 milljón. Stjómamefnd um málefni fatlaðra hefur setið löngum stundum við þá óskemmtilegu iðju að skera niður eða fella út hin þörfustu verkefni, ein- faldlega af því að sótt er um nær þre- falda upphæð þess sem til úthlutunar er. Og það skal tekið fram að ekki er um neinar gerviumsóknir að ræða, heldur er hver þeirra slík að ekkert væri gleðilegra en geta orðið við henni að fullu. Frá ríkisstjóm kemur sú lína að ekki skuli til neinna nýrra verkefna veitt og það þýddi algera stöðnun t.d. í uppbyggingu sambýla, enda fjárlög af- greidd um áramót án neinna rekstr- arfjárveitinga í nýjan rekstur, sem stofnað yrði til á þessu ári. Af takmörkuðu fé fram- Ráðning gáta á bls.19 1. Bjöm 2. Helgi 3. Torfi 4. Kristinn 5. Grimur 6. Hreinn 7. Hallur 8. Eilífur 9. Ófeigur 10. Meyvant 11. Álfur 12. Steinn 13. Vigfús 14. Kort 15. Dagur 16. Bogi 17. Ársæll 18. Ormur (Páll) 19. Brandur 20. Loftur kvæmdasjóðs hlýtur stjómamefndin samt sem áður að beina nokkrum fjármunum til nýrra sambýla og freista þess að knýja þannig á um fjárveitingar til rekstrar þeirra á næsta ári. A.m.k. er það trúa mín, að ef slík skrúfa eða sá þrýstingur verður ekki til staðar þá muni lítt stoða að sækja á rekstur þeirra sambýla, sem hvergi sér stað nema í áætlunum næsta árs þá. Eitt er öruggt: Enginn mun sáttur við úthlutun nú, enda víðast verið við komið með kuta niðurskurðarins nema þá þar sem um beinar skuldagreiðslur er að ræða og er þó ekki alls staðar að fullu greitt. Hins vegar mun þess gætt svo sem í fyrra að sjóðsfé verði til hins ýtrasta nýtt, og þegar ljóst verður að ekki komi til framkvæmda á árinu verður endurúthlutað því sem fært þykir. Benda má á að endurúthlutun á sl. ári bjargaði mörgu betur á veg. Hins vegar skal það svo tekið fram að áhrif ráðuneyta eru alltof mikil um skuldbindingar, þó blessunarlega hafi mjög úr því dregið nú. Undirritaður er ekki í efa um að mótmæli stjómamefndar í fyrra við vinnubrögðum ráðuneyta þá hefur þó borið þennan árangur. Ekki skal nein dul á það dregin, að í mörgum verkefnum er hvergi til spar- að, að ekki sé meira sagt og kröfur oft langt umfram það sem hinn venjulegi maður sættir sig vel við, fyrir sjálfan sig, og er þá ekki verið að tala um sjálf- sagðan sérbúnað vegna fötlunar. Fulltrúar hagsmunasamtakanna geta samt unað sæmilega sínum hlut, enda skylt að líta yfir sviðið allt og binda ekki allt við þrengsta sjónhring. En mörg eru vonbrigðaefnin einnig. Engum hygg ég sé þó ljósara en þeim, að framkvæmdasjóðurinn verður að fá eðlilegt fjármagn til framkvæmda sinna og því er ekkert brýnna sem bíður hagsmunasamtaka fatlaðra en að sækja í sig veðrið gagnvart stjórnvöld- um sem öðrum er áhrif hafa. Þar er samvinnunefnd samtakanna nú á réttri leið og við bíðum og vonumst til að „Eyjólfar" íslenskra stjómvalda hress- ist svo um munar. Þá gæti orðið unandi að vera út- hlutunaraðili framkvæmdafjár til fatlaðra - að ég ekki segi ánægjulegt hlutskipti eins og við vildum virkilega sjá það. En tölurnar munu síðar tala sínu máli - og sumir verða sæmilega hressir með sinn hlut - aðrir eflaust gramir, að ég ekki segi ævareiðir. En muna skulu allir það, að hefði sjóðurinn haft til ráðstöfunar nokkurn veginn rétt fjármagn samkvæmt lögum og hefði haft á umliðnum árum, þá væri enginn verulega óánægður í dag með sinn hlut. Svo sáraeinfalt er nú það. Helgi Seljan. Hlerað í hornum Helgi Seljan mætti einum fyrr- verandi „kollega" úr þinginu á dögunum og tóku þeir tal sam- an. Nokkuð þótti Helga sem þingmaðurinn hefði smitast af Bibbu á Brávallagötunni, þar sem hann fullyrti eftir öðrum ágætum manni: „Hann stóð á því fjórum fótum“. Fyrst á orðtæki er minnst, þá er löngu þekkt viðkvæði þeirra sómakvenna hér á skrifstof- unni, að einhver komi loksins eftir „djúpan disk“ og ekki síðra er um það orðtæki þeirra að einhver hafi farið „þegjandi og hljóðandi". Og þetta var gantast með löngu fyrir tíma Bibbu. Hins vegar var smiðnum í Mos- fellsbæ fyllsta alvara, þegar hann talaði svo í spakmælum um sitt fag: „Ja, Róm var nú ekki byggð á hveijum degi“, og „Sjaldan fellur exin langt frá eikinni". Og einnig þetta var fyrir tíma hinnar bráðfyndnu Bibbu. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 27

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.