Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1989, Page 5
iðnaði, sem gerði úttekt á þáttum yfir-
lýsingarinnar og hvílfk alvara þar væri
á bak við m.a. það að vanefndar íbúðir
og afgreiðslan nú þýddi að víða dytti
heilt ár út.
Hann fullyrti að ríkið yrði að
hækka hlutfall sitt í verkamannabú-
stöðunum, svo jafnrétti milli sveitar-
félaga yrði í raun.
Hann tók svo Reykjavík sem dæmi
um aðgerðir eða aðgerðarleysi stjórn-
valda síðustu ár og ört versnandi stöðu.
Viðlíka sögu mætti eflaust rekja miklu
víðar.
Verkamannabústaðir í Reykjavik:
Umsóknir Uthl. þ.afnýtt
1986 um 692 250 100
1987 um 760 260 100
1988 um 845 205 100
1989 um 1130 215 líkl. 100
Þessar tölur eru mjög sláandi og
segja sitt.
Hér fylgir yfirlýsing hópsins,
annars vegar um ástand, hins vegar um
tillögur til aðgerða.
Undir þá yfirlýsingu rituðu allir
fulltrúar hinna átta samtaka:
YFIRLÝSING UM
HÚSNÆÐISMÁL
Þann 10. mars 1988 héldu sömu
aðilar fund á þessum stað, þar sem
mótmælt var niðurskurði og seina-
gangi í húsnæðiskerfinu og þeirri van-
rækslu sem félagslega húsnæðiskerfið
bjó við.
Nú rúmu ári síðar hefur engin
breyting orðið á nema síður sé.
Ástandið er í stuttu máli þannig:
1. Á árinu 1988 var gert ráð fyrir
lánum úr Byggingarsjóði verkamanna
að upphæð 2.338 milljónir. Útlán urðu
hins vegar kr. 1.869 milljónir eða 469
millj. kr. minni en gert var ráð fyrir eða
samdráttur um 20%. Fyrir þá upphæð
hefði verið hægt að byggja 100 fbúðum
meira. Áætluð lán úr Byggingarsjóði
ríkisins voru kr. 5853 milljónir en út-
lán reyndust kr. 5.858 eða aukning um
5 millj. kr. Áætlun og útlán stóðu því
þar nánast á.
2. Ekki hafa enn verið afgreiddar
umsóknir um lán til félagslegra íbúða
af ýmsu tagi fyrir þetta ár - umsóknir
sem lagðar voru inn fyrir 1. ágúst 1988
og venju samkvæmt hafa verið af-
greiddar á haustmánuðum sama ár.
3. Útlit er fyrir stórfelldan niður-
skurð á fjármagni til félagslega hús-
næðiskerfisins á þessu ári. Áætlun um
Ásgerður framkvæmdastjóri er hér
máske að syngja: Allir þurfa þak
yfir höfuðið
fjármögnun hefur ekki enn verið gerð
opinber þótt þriðjungur árs sé liðinn.
4. Upplýst er að engin fram-
kvæmdalán verða að óbreyttu veitt fyrr
en í haust sem þýðir að framkvæmdir
hefjast ekki fyrr en á árinu 1990 að
einhverju marki.
5. Ibúðabyggingar á landsbyggð-
inni eru nánast lagðar af og miki II sam-
dráttur og óvissa rfkir í bygginga-
iðnaði, en núverandi ríkisstjórn boðaði
í stjórnarsáttmála að stórefla félags-
legar fbúðabyggingar utan Reykja-
víkursvæðisins.
6. Aldrei hafa legið fleiri óaf-
greiddar umsóknir um húsnæði en nú
eða biðlistar verið lengri, hvort sem
litið er til verkamannabústaða, sveitar-
félaga, Búseta eða hjá samtökum ör-
yrkja, námsmanna og aldraðra.
7. Þrátt fyrir gefin loforð er enn
ekki farið að endurskoða félagslega
húsnæðiskerfið, en stjórnvöld hafa
marglýst því yfir sl. 5-6 ár að slfk
endurskoðun stæði fyrir dyrum.
8. Ekki sér fyrir endann á erfið-
leikum þess fólks sem fengið hefur
greiðsluerfiðleikalán á undanförnum
árum. Hjá mörgum virðist þeta von-
laus barátta.
9. Endurteknar breytingar á hús-
næðiskerfinu á undanförnum árum
hafa leitt til vaxandi óstöðugleika og
óvissu. Enn eru breytingar á döfinni
með frumvarpi um húsbréf, en skiptar
skoðanir eru um afleiðingar þess, verði
það að lögum.
TILLÖGUR UM AÐGERÐIR
1. Sjá þarf til þess að lánveitingar
til félagslegra íbúðabygginga verði
ekki minni í ár en sem nemur áætlun
ársins 1988 og nýbyggingar dragist
ekki saman frá því sem orðið er. Því er
sérstaklega beint til stjórna lífeyris-
sjóðanna að þriðjungur af framlagi
sjóðanna til húsnæðiskerfisins renni til
félagslegra íbúðabygginga.
2. Þá þarf að gera áætlun til a.m.k.
3ja næstu ára um tryggt fjármagn svo
hægt verði að ljúka byggingu á 900-
1000 íbúðum á ári í félagslega hús-
næðiskerfinu og bæta um leið fyrir ára-
tuga vanrækslu. Það hefur verið mark-
mið stjórnvalda síðan 1974 að þriðj-
ungur alls nýs húsnæðis ætti að vera í
félagslega kerfinu eða um 500-600
íbúðir á ári, en reyndin hefur verið sú
að aðeins 13,5% eða um 230 nýjar
íbúðir voru í því kerfi.
3. Skapa þarf víðtæka samstöðu
um þetta átak, þar sem ríkisvald, sveit-
arfélög, samtök launafólks, húsnæðis-
samvinnufélög og önnur samtök, s.s.
öryrkja, námsmannaog aldraðra leggj-
ast á eitt til að komast út úr þeim
ógöngum sem húsnæðiskerfið er nú í.
4. Endurskoðun félagslega hús-
næðiskerfisins verði Hraðað, lög sam-
ræmd og kerfið verði gert ntun skil-
virkara en nú er. Haft verði sem nánast
samráð við Húsnæðishópinn um þessa
endurskoðun og tillögur liggi fyrir í
haust. Þá sé þess vandlega gætt að allar
breytingar sem ganga yfir í almenna
húsnæðislánakerfinu bitni ekki á
félagslega kerfinu.
Við þessa ágætu yfirlýsingu er
e.t.v. rétt að bæta því, nú þegar Frétta-
bréfið er að fara í prentun að eitt þeirra
samningsatriða, sem gengið var frá
milli Alþýðusambands íslands og
stjórnvalda nú 1. maí sl. vareinmitt um
byggingu 200 félagslegra íbúða á
þessu ári. Er þá að sjálfsögðu reiknað
með því átaki umfram það, sem áður
var gert ráð fyrir.
Þetta vekur upp þá áleitnu spurn-
ingu: Var þá ekki til einskis barist? og
svarið hlýtur að vera hvatning til enn
frekari baráttu fyrir félagslegum
lausnum í íbúðamálum .
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
5