Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1989, Blaðsíða 7

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1989, Blaðsíða 7
heyrnarlausu börnin við okkur á táknmáli. Þau sögðu að þau vildu hafa svona táknmálstexta á ölium myndum í sjónvarpinu. Þegar þetta var búið fórum við niður í tónlistarstofuna. Þar voru mörg hljóðfæri sem ég hef aldrei séð fyrr. Við fengum fullt af bækl- ingum með táknmáli. Einnig fengum við að spreyta okkur á sumum hljóðfærunum. Eg tók myndir af skólastjóranum og heyrnarlausum börnurn. Myndir eftir nemendur héngu uppi á veggjum um allan skólann. Ein myndanna var stór mynd af Islandi, máluð á léreft, á hana hafði einnig verið málað fólk, hús, bátar o.fl. Svo fórum við upp í rútuna og ókum að Melaskóla. Andrea Þ. Magnúsdóttir 5. F. Heimsókn í Heymleysingjaskólann Við lögðum af stað rétt eftir kl. 9 frá Melaskóla. Við áttum að fara í heim- sókn. Þegar inn var komið þurftum við að bíða í nokkrar mínútur þangað til skólastjórinn kom. Þegar hann kom, bað hann okkur að koma með sér. Hann fór með okkur í stórt herbergi þar sem hann sagði okkur frá því hve margir nemendur væru í skólanum og margt annað. Síðan komu nokkrir krakkar sem voru í skólanum og með aðstoð kennara sinna kenndu þau okk- ur nokkur orð í táknmáli. Svo horfðum við á teiknimyndir. En það sérkenni- lega viðþærvar að íhægrahorninu var Skólastjóri Heyrnleysingjaskólans. Nú skal vanda sig vel. við eigum einn mjög góðan, sem heitir Haukur Gunnarsson og vann hann gull á Olympíuleikunum. Honum var mjög vel tekið er hann kom heim aftur og átti hann það svo sannarlega skilið. Brynhildur Guðmundsdóttir 6. D. Heimsókn í Heymleysingjaskólann Við fórum í rútu upp í Heymleys- ingjaskólann frá Melaskóla klukkan 9:15. Það var vel tekið á móti okkur í Heyrnleysingjaskólanum. Við fórum fyrst í salinn. Þar var okkur kennt táknmál s.s. mánuðina og vikudagana og nokkur orð. Svo sýndi skóla- stjórinn okkur teiknimyndir sem þau textuðu sjálf með táknum. Svo töluðu þig. Það ættu að vera betri aðstæður fyrir fatlaða og við ættum að leyfa þeim að vera með okkur eins og öðrum krökkum. Margir fatlaðir eiga enga vini og eru mjög einmana en það eru aðrir sem eru mjög vel staddir. Þeir eru samt kannski eða sumir a.m.k. ekki eins mikið fatlaðir. Heyrnarlausir nota táknmál til að tjá sig, en blindir nota staf (blindrastaf) til þess að þreifa sig áfram. Sumir fatlaðir eru í íþróttum eins og Haukur Gunnarsson sem hljóp á Olympíuleikunum í Seoul og vann gullverðlaun í íþróttum fatlaðra. Sumir fatlaðir ganga í skóla. Það ættu flestir að hafa tækifæri til að gera. Við sáum mynd af stelpu sem er lömuð og er í hjólastól en hún var í menntaskóla og var ákveðin í að mennta sig og læra alveg eins og venjulegirkrakkar. Sum- ir venjulegir krakkar eru ekki einu sinni jafn dugleg og þessi stelpa sem heitir Ásdís Jenna og mættu þeir taka hana til fyrirmyndar. Rakel Guðfinnsdóttir 6. D. Fatlaðir og við Mér finnst að fatlaðir ættu að vera teknir inn í okkar umhverfi vegna þess að þá læra þeir meira að umgangast aðra og tala. Allar leiðir yrði að bæta t.d. láta lyftur í skóla og kenna táknmál í skólum. Leyfa ætti fötluðum bömum að taka þátt í félagslífi ófatlaðra og kenna okkur hinum að stara ekki á þau og segja: „Sjáðu mamma, fatlað bam“. Við ættum að leyfa fötluðum að vera með í öllum íþróttum sem þeir geta og ekki skilja þá útundan. Fatlað íþróttafólk er ekki margt, FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 7

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.