Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1989, Blaðsíða 10
Minning:
Theodór A. Jónsson
F. 28.06.1939 ■ D. 07.05.1989
Skarð er fyrir skildi.
Theodór A. Jónsson var fæddur á Stað
í Staðardal, Steingrímsfirði, annar sonur
hjónanna Helgu Tómasdóttur og Jóns
Sæmundssonar, bónda og hreppstjóra.
Theodór var mikilhæfur og af-
kastamikill félagsmálamaður. Hann stóð
frá stofnun Sjálfsbjargar í eldlínu
baráttunnar fyrir breyttu þjóðfélagi og
bættum hag fatlaðra. Theodór var einn af
stofnendum Sjálfsbjargar, félags fatlaðra í
Reykjavík og nágrenni, 27. júní 1958, þá
aðeins 18 ára að aldri. Hann var ritari
Sjálfsbjargar í Reykjavík fyrstu tvö árin.
Árið 1959 þegar Sjálfsbjargarfélögin
stofnuðu með sér landssamband, var hann
kjörinn varaformaður þess. Árið eftir varð
hann formaður Sjálfsbjargar, landssam-
bands fatlaðra. Þegar Theodór tók við for-
mennsku hjá landssambandinu, voru
Sjálfsbjargarfélögin sem mynduðuð það,
átta að tölu, 28 árum síðar, árið 1988, þegar
hann lét af formennsku, voru
Sjálfsbjargarfélögin orðin fimmtán. Undir
forystu hans hefur Sjálfsbjargarhreyfingin
stöðugt sótt fram og hvergi hvikað í
baráttunni fyrir samfélagi öllum til handa.
Auk þess að vera mikilvirkur fé-
lagsmálamaður, var Theodór stórbrotinn
persónuleiki. Hann var sannur vinur vina
sinna og það var hans líf og yndi að vera í
góðra vina hópi.
Theodór var ræðumaður góður og á
viðeigandi stundum hélt hann stór-
skemmtilegar tækifærisræður auk þess
sem hann hélt fjörinu gangandi, þegar að
Sjálfsbjargarfélagar hittust.
Theodór var kjölfestan í starfi
Sjálfsbjargar og honum verður best lýst
með því að segja að hann hafi verið talandi
tölvubanki um málefni fatlaðra og
Sjálfsbjargar. Missir okkar Sjálfs-
bjargarfélaga er því mikill og skarð
Theodórs verður vandfyllt. Með sam-
stilltum frumherjum Sjálfsbjargar vann
Theodór stórvirki í því að breyta
viðhorfum og aðstæðum í íslensku
þjóðfélagi til hagsbóta fyrir fatlaða. Það
væri ekki í Theodórs anda að leggja árar í
bát þó móti blási, hann á það inni hjá okkur
öllum að blásið sé í herlúðrana og ný sókn
verði hafin fyrir betri framtíð, fyrir
SAMFÉLAGI FYRIR ALLA. Látum
merkið aldrei síga!
Jóhann Pétur Sveinsson,
formaður Sjálfsbjargar,
Landssambands fatlaðra.
KVEÐJA FRÁ
ÖRYRKJABANDALAGI ÍSLANDS
Theodór A. Jónsson fyrrverandi
formaður Sjálfsbjargar - Landssambands
fatlaðra og framkvæmdastjóri þar er látinn.
Hniginn er að velli mikill
félagsmálagarpur og mikilhæfur foringi.
Sjálfsbjörg hefur mikils misst, fatlaðir
hafa misst einn sinn besta málsvara um
áratugi.
Hann fór í fylkingarbrjósti um fjölda
ára og auðnaðist að sjá ýmsar draumsjónir
rætast, sumpart fyrir mátt samtakanna, en
ekki síður vegna farsællar forystu sinnar.
Það eitt skal sagt nú við leiðarlok, að
Öryrkjabandalagið sér nú á bak einum
ötulasta liðsmanni sínum, en Theodór var í
varastjóm þess og ávallt til taks þar sem
annars staðar, þegar eftir var kallað.
Honum em þökkuð gifturík störf
heilum huga og við í Öryrkjabandalaginu
kveðjum kæran vin og félaga hinztu
kveðju.
Spumingar þessar komu frá MS-
félögum og þeim svaraði af mikilli
ljúfmennsku og vinsemd; Margrét H.
Sigurðardóttir deildarstjóri félags-
mála- og upplýsingadeildar Trygg-
ingastofnunar ríkisins.
Og nú er svo bara að senda inn
spumingar fyrir næsta tölublað Frétta-
bréfsins og við munum reyna að veita
þeim úrlausn.
1) Spurt er: Við hvaða reglur er
miðað, þegar veittur er hærri bif-
reiðastyrkurinn 400 þús. til meira
fatlaðra? Verður viðkomandi hjóla-
stólsöryrki t.d. að geta ekið sjálfur?
2) Spurt er: Hvaða skilyrði þarf að
uppfylla til að fólk fái bensínpeninga frá
Tryggingastofnun rikisins?
3) Hvers vegna greiðir fólk í
endurhæfingu aukagjald á Heilsuhæli
N.L.F.Í. en ekki á Reykjalundi? Em
þess dæmi að þessi gjöld séu felld niður
eða tryggingar endurgreiði þau til ein-
hverra hópa öryrkja eða einstakra illa
staddra?
4) Hvaða reglur gilda um niðurfell-
ingu bótagreiðslna vegna sjúkrahús-
vistunar?
Hver em rökin fyrir þeirri reglu?
SVÖR:
1. Samkvæmt reglugerð nr. 170 frá
22. apríl 1987 var ákveðið að veita
stjTki til bifreiðakaupa, sem kæmu í
stað niðurfellingar á aðflutnings-
gjöldum.
Umsóknir um bifreiðastyrki skulu
berast lífeyrisdeild Tiyggingastofnunar
rikisins.
Úthlutað er tvenns konar styrkjum,
sem í ár em:
1) Kr. 130 þús. sé um að ræða fatlað
fólk.
2) Kr. 400 þús. sé um að ræða mjög
hreyfihamlað fólk.
Greiðslur miðast við 600 bifreiðir á
ári sbr. lið 1 og 50 bifreiðir á ári sbr. lið
2.
Styrkir þessir em ekki veittir sama
fólki nema á 3-4ja ára fresti.
Skilyrði til úthlutunar em:
1) Ökuréttindi.
2) Nauðsyn bifreiðar vegna hreyfi-
hömlunar.
3) Umsækjendur skulu vera undir
75 ára aldri.
Heimilt er að vikja frá 1. tl. mæli
sérstakar ástæður með því. Þá skal
umsækjandi tilnefna 2 ökumenn, sem
aka mega bifreiðinni með tilliti til
ábyrgðartryggingar hennar, öðmm er
10