Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1989, Síða 8
Unnið af einbeitni.
kona að tala táknmál svo að krakkamir
í Heymleysingjaskólanum gætu skilið
hvað var verið að segja. Síðan varfarið
í tónstofuna þar sem öll hljóðfærin
vom geymd. Síðan lauk ferðinni og við
fórum upp í Melaskóla.
Steingrímur Helgason 4. C.
1) Þekkirðu til fatlaðra og
hvemig er sú fötlun?
Dæmi um já-svör:
Já. Stúlku sem er hreyfihömluð.
Hún er 21 eða 22 ára. - Já, hann er
þroskaheftur. Svo á ég annan frænda,
sem er spastískur. - Já, það er eitthvað
að í höfðinu. - Já, stelpa, sem ég þekki
er blind og tvíburasystir hennar er
mjög nærsýn.
2) a) Hvemig heldur þú að
það sé að vera blindur?
Dæmi um svör:
Það hlýtur að vera leiðinlegt. Mað-
ur sér ekkert af því sem hægt er að sjá.
En sem betur fer heyra þeir. - Það er
örugglega hörmulegt því þá getur
maður ekki skynjað umhverfi sitt í
ljósi. - Það þarf að nota hin skynfærin
betur. - Það er margt fallegt sem blindir
geta ekki séð.
b) Hvemig heldur þú að það
sé að vera heymarlaus?
Dæmi um svör:
Ég held að það sé örugglega ekki
erfiðara en að vera blindur. Maður
getur ekki talað við fólk. - Það er alveg
hljótt. - Mjög óþægilegt. - Hræðilegt. -
Geta ekki talað við einhverja um
vandamál því sumir myndu kannski
ekki skilja fingramál eða táknmál.
c) Hvemig heldur þú að
það sé að vera
hreyfihamlaður?
Dæmi um svör:
Ég mundi ekki vilja vera
hreyfihömluð þá væri svo erfitt að
koma sér áfram. - Erfitt. Það er
örugglega leiðinlegt að geta ekki leikið
sér. Og svo er margt annað. - Þeir eru
oft í hjólastól og þá kemst maður ekki
leiðar sinnar eins og venjulegur
maður. - Hræðilegt, maður getur ekki
neitt.
d) Hvemig heldur þú að
það sé að vera þroskaheftur
(vangefinn)?
Dæmi um svör:
Ef maður væri eitthvað öðruvísi þá
gæti það komið fyrir að maður væri
skilinn útundan. - Mjög slæmt vegna
þess að þá er maður oft ekki tekinn í
umhverfi sitt. - Hræðilegt. - Þegar þú
reynir að tala, koma kannski ekki orð
út heldur aðeins hljóð og fólk forðast
oft fatlað fólk.
3) Þekkir þú fleiri fatlanir?
Hverjar?
Dæmi um svör:
Spastískur. - Nei, ég þekki engar
aðrar fatlanir. - Heilaskertur. - Nei.
4) Hvaða hjálpartæki veist
þú um, sem fatlaðir
einstaklingar geta notað til
að auðvelda sér daglegt
líf?
Dæmi um svör:
Blindrastaf, gleraugu, heymar-
tæki, hjólastól, hækjur. - Nei engin. -
Blindir geta notað hvíta stafinn og sér-
þjálfaða hunda, sjónskertir nota gler-
augu, heymarskertir nota heymartæki,
fótlama nota hjólastól, sumir þurfa
göngugrind og svo margt fleira.
✓
5) A hvem hátt getum við
í samfélaginu bætt sam-
skipti okkar við fatlaða?
Dæmi um svör:
Með því að hjálpa þeim og taka
mark á þeim og vera svoleiðis vinir
Táknmálið er ekki auðvelt.
8