Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1989, Síða 13
Frá foreldri til foreldris
• •
Bréfkorn Onnu Maríu
í þann mund sem Fréttabréfið
síðasta var í prentun var haldið á Flótel
Örk í Hveragerði námskeið fyrir for-
eldraráðgjafa eða svo sem slíkt nám-
skeið hefur oft verið kallað: Foreldri til
foreldris.
Aðstandendur námskeiðsins voru
Landssamtökin Þroskahjálp og Ör-
yrkjabandalag Islands og stjórnendur
þau Halldóra Sigurgeirsdóttir og
Andrés Ragnarsson. Þekktur fyrirles-
ari frá Svíþjóð, Ia Leander fjallaði þar
um meginefni námskeiðsins, en einnig
fluttu Páll Skúlason prófessor, Jóhann
Thoroddsen sálfræðingur, Nanna K.
Sigurðardóttir félagsráðgjafi og Dóra
S. Bjamason, lektor, erindi á nám-
skeiðinu.
Námskeiðið sóttu alls 11 foreldrar
og athyglisvert var að allt voru það
konur.
Sú lengst aðkomna var Anna María
Sveinsdóttir frá Stöðvarfirði, en hún
hefur lengi verið áhugamanneskja
mikil um þessi málefni og er nú í
Svæðisstjórn um málefni fatlaðra á
Austurlandi.
Það var því vel við hæfi að spyrja
hana annars vegar um námskeiðið og
hins vegar um framhaldið, en megin
takmark þessara námskeiða er að fá
þau foreldri er þau sækja til þess að
gera hvort tveggja, miðla af eigin
reynslu og koma áfram til skila því sem
námskeiðið færði þeim. Ég bað Önnu
Maríu að senda mér örfáar línur og hún
brást vel við.
Hér kemur svo bréfkornið góða frá
Önnu Maríu og er birt eins og það kom
í hendur ritstjóra.
Helgi minn, kæri vin!
Þú baðst mig um nokkrar línur um
námskeiðið, sem ég sótti og varhaldið
á vegum Þroskahjálpar og Öryrkja-
bandalags íslands - Frá foreldri til
foreldris.
Eins og fyrirsögnin ber með sér er
þama um að ræða mikilvæga aðferð til
hjálpar foreldrum fatlaðra bama - að
miðla þekkingu og reynslu - og ræðast
við. Við vitum að þegar fatlað bam
fæðist eða fötlun greinist er það mikið
Bréfritarinn - Anna María.
áfall fyrir alla fjölskylduna og við
upplifum það að finnast við vera ein og
vita ekkert. Stuðningur er því
mikilvægur og gott að geta leitað til
einhvers, sem hefur svipaða reynslu,
hefur upplifað það sama eða svipað og
það er einmitt þetta sem um er að ræða.
Við höfum engar „patent“-lausnir, en
höfum gengið í gegnum allt þetta sama
og þekkjum hin ýmsu viðbrögð í
umhverfinu. Allt er þetta nefnilega
mjög svipað.
En þá beint að námskeiðinu sjálfu,
en það var haldið dagana 9.-11. mars
sl. Þar voru flutt hin merkustu erindi af
margs konar toga. Aðalfyrirlesari var
sænsk kona Ia Leander, sem kynnti
uppbyggingu starfsins og sagði frá
reynslu af því í sínu heimalandi og
víðar. Hún gaf okkur mörg hollráð og
góðar leiðbeiningar.
Aðrir fyrirlesarar voru Páll
Skúlason prófessor, Jóhann
Thoroddsen sálfræðingur, Nanna Kr.
Sigurðardóttir, félagsráðgjafi og Dóra
S. Bjarnason, lektor. Erindi þeirra voru
hvert öðru betra og vöktu til um-
hugsunar um svo ótal margt og skýrðu
viðfangsefnið enn betur.
Það var greinilegt að allir höfðu
lagt á sig mikla vinnu og vandað til
verksins, þannig að efnið skilaði sér
sem best beint til okkar.
Öryrkjabandalagið og Þroskahjálp
eiga þakkir skildar fyrir framtakið. Það
hefur þegar sýnt sig að full þörf var á
því að koma svona námskeiði á og
vonandi verður á þvf farsælt framhald.
Sjálf hefði ég svo sannarlega viljað
eiga völ á stuðningi sem þessum þegar
ég var með mitt fatlaða bam. Ég hefði
viljað vita af manneskjú með svipaða
reynslu, sem ég gæti leitað til og haft
samband við m.ö.o. foreldri sem vissi
hvernig það er að eiga fatlað barn,
þekkti erfiðleikana af eigin raun, vissi
um viðbrögðin víða úti í samfélaginu,
gæti leiðbeint um það hvert ætti að
leita o.s.frv. nú eða bara spjalla við
einhvern í svipaðri aðstöðu um daginn
og veginn.
Kynning á þessum stuðningi fer
fram í félögunum hér eystra, hjá
Svæðisstjórn um málefni fatlaðra, í
tímaritinu Þroskahjálp og núna í þessu
Fréttabréfi Ö.B.Í. Nú, þú getur séð um
frekari kynningu eftir því sem þér
finnst ástæða til. Gefinn verður út
bæklingur þar sem stuðningurinn
verður kynntur betur svo og hverjir
taka þar þátt.
Ég vona svo bara að þessar línur
mínar segi einhverjum eitthvað og
megi vekja forvitni um frekari
vitneskju.
Kær kveðja,
þín vinkona
Anna María Sveinsdóttir.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
13