Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1989, Qupperneq 20
Formennirnir þrír í fremstu röð.
stólinn en hann vann með Ágústu að
framsögu hennar um tómstundamál.
Hann ítrekaði kröfuna um eigin fé-
lagsmiðstöð og öruggan samastað fyr-
ir þá sem þangað vildu koma og þar
una.
Magnús Þorgrímsson gerði athuga-
semdir við ályktun um húsnæðismál
fatlaðra. Ábiðlistum svæðisstjómaum
húsnæði væru ekki nærri allir þeir fatl-
aðir, sem í brýnni þörf væm. Minnti á
sérstarfsemi ýmissa hópa fatlaðra
varðandi tómstundatilboð. Síðan voru
afgreiddar ályktanir fundarins, sem
hér eru birtar.
Ásta B. Þorsteinsdóttir sleit svo
fundi með þeim orðum að takmark
þessara funda væri að stilla saman
strengi. Samstillt skilaboð eiga að
gilda til opinberra aðila ekki hvoru
tveggja í senn: samskipan og sérúr-
ræði.
Þakkaði heimafólki fyrir góðar mót-
tökur, starfsfólki fundarins, færði hún
bestu þakkir. Fundinum lauk laust fyr-
irkl. 17.
ÁLYKTANIR FUNDARINS
1. Ályktun um húsnæðismál
fatlaðra.
Fulltrúafundur
Landssamtakanna Þroskahjálpar og
Öryrkjabandalags íslands, haldinn á
Selfossi 6. maí 1989, skorar á
ríkisstjómina að gera nú þegar ráðstaf-
anir til þess að leysa þann brýna vanda
sem ríkir í húsnæðismálum fatlaðra.
Samtök fatlaðra hafa aflað upp-
lýsinga frá öllum svæðisstjómum mál-
efna fatlaðra sem staðfesta svo að ekki
verður dregið í efa að a.m.k. hundrað
mikið fatlaðir einstaklingar eru nú í
brýnni þörf fyrir þjónustuíbúðir.
Fjöldi þeirra býr við alls ófullnægjandi
aðstæður og þrátt fyrir þau sambýli
sem reist hafa verið á undanfömum
árum hrannast upp biðlistar hjá svæð-
isstjómum, sveitarfélögum og Hús-
sjóði Öryrkjabandalags Islands. SumSj
staðar ráða fjölskyldur ekki við að
veita fjölfötluðum einstaklingum
nauðsynlega aðhlynningu og því hefur
skapast neyðarástand á mörgum heim-
ilum.
Fundurinn skorar einnig á stjóm-
völd að vinda að því bráðan bug að
stórefla heimaþjónustu við fatlaða og
gera þeim þannig kleift að lifa sjálf-
stæðu lífi á eigin heimili. Fundurinn
telur mjög brýnt að lagalegur réttur
fatlaðra til heimaþjónustu sé tryggður
og að nauðsynlegu fjármagni sé veitt
til þjónustunnar um allt land.
Fundurinn bendir á, að fatlaðir
einstaklingar eiga rétt á mannsæmandi
húsnæði sem miðast við nútíma kröfur
og telur sinnuleysi stjómvalda í þess-
um efnum ámælisvert.
Fundurinn beinir því til stjómvalda
að þau beiti sér nú þegar fyrir gerð
neyðaráætlunar í samráði við samtök
fatlaðra með það markmið í huga að
útrýma þeim neyðarlistum sem nú eru
fyrir hendi hjá svæðisstjórnum. Full-
nægjandi húsnæði er meðal frumþarfa
hvers einstaklings og einungis með því
að leysa þessar brýnustu frumþarfir,
verður hægt að vinna markvisst að
heildaráætlun um framkvæmdir í þágu
fatlaðra.
2. Um tryggingamál.
Fulltrúafundur Landssamtakanna
Þroskahjálpar og Öryrkjabandalags
Islands haldinn 6. maí á Selfossi beinir
þeirri eindregnu áskomn til heilbrigð-
is- og tryggingaráðherra að snúa sér nú
þegar af fullri alvöru að endurskoðun
tryggingalöggjafarinnar.
Þetta er forgangsverkefni í ráðu-
neyti heilbrigðis- og tryggingamála og
fjöldamörg leiðréttingarefni krefjast
tafarlausra úrbóta.
3. Um sparnað í opinberum rekstri
Landssamtökin Þroskahjálp og Ör-
yrkjabandalag Islands lýsa þungum
áhyggjum vegna ákvörðunar ríkis-
stjómarinnar um 4% spamað á launa-
liðum á sviði heilbrigðis-, félags- og
menntamála. Það eröllum ljóst, sem til
þekkja að afleiðingar slíkrar ákvörð-
unar bitna með mestum þunga á þeim
sem síst skyldi.
Á það skal bent að fjölmargir fatl-
aðir eiga heimili sín á sjúkrastofnunum
alla ævi og erfitt er að sjá, hvemig hægt
er að þrengja frekar en orðið er að
heimilum þessa fólks. Þegar al-
mennum meðferðar- og sjúkra-
stofnunum er gert að spara 4% í rekstri,
er hætt við að þeim einstaklingum, sem
mest em fatlaðir verði fyrst synjað um
þjónustu slíkra stofnana.
Fundur Þroskahjálpar og Öryrkja-
bandalagsins með fulltrúum sam-
takanna í stjómamefnd og svæðis-
stjómum beinir þeim eindregnu til-
mælum til ríkisstjómar að hún end-
urskoði þessa ákvörðun sína og und-
anskilji menntastofnanir, heimili,
meðferðarstofnanir og aðrar stofnanir
fyrir fatlað fólk þessum kröfum um
spamað.
AUGLÝSING
FRÁ STARFSÞJÁLFUN FATLAÐRA
Móttaka umsókna fyrir haustönn 1989 er hafin.
Umsóknarfrestur er til 10. júní.
Forstöðumaður veitir nónari upplýsingar og tekur ó móti
umsóknum í síma 29380 milli klukkan 10 og 12 virka daga.
Skriflegar umsóknir sendist:
Starfsþjólfun fatlaöra
Hátúni lOa, 105 Reykjavík.
20